Rauðgrænt bandalag. Hryllingur !
3.1.2009 | 15:47
Formaður Vinstri grænna hefur nú lýst yfir áhuga á myndun
rauðgræns bandalags VG og Samfylkingarinnar. Já hrein-
ræktaða vinstristjórn. Þar með yrði fyrirséð að sú mikla upp-
bygging sem Íslendingar standa nú frammi fyrir í efnahags-
málum mun seinka um fleiri áratugi nái slík afturhaldsöfl á
vinstrikantinum að mynda stjórn. - Því þá yrði skrúfað
nánast fyrir alla skynsamlega nýtingu á okkar helstu orku-
auðlindum, en nýting þeirra er frumforsenda þess að við
komust upp úr þeim efnahagslega öldudal sem við erum
nú stödd í. - Ef viss vinstrisinnuð arfturhaldsöfl innan Sam-
fylkingarinnar og hinir rótæku og öfga-umhverfissinnar í
VG ná saman við myndun ríkisstjórnar á Íslandi yrði þá
fyrst voðinn vís. - Allt verður að gera til að koma í veg
fyrir það!
Til að liðka fyrir draumsýn formanns VG hafur hann
ástamt fleirum úr forystu VG lýst því yfir að VG styðji
að sótt verði um ESB með þjóðaratkvæðagreiðslu. Allt
í nafni svokallaðs lýðræðis. Þannig að Evrópumálin munu
ekki standa í vegi fyrir rauðgrænu bandalagi. Enda VG
afar aljóðasinnaður og andþjóðlegur flokkur eins og allir
aðrir sósíaliskir flokkar. Enginn munur þar á og sósíal-
demókrötum Samfylkingar.
Vinstristjórnir hafa alltaf reynst þjóðinni illa. Hafa ætíð
leitt eymd og volæði yfir þjóðina, enda helst á slíku sem
vinstrimennska nærist og byggist á...
Kosningar óumflýjanlegar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Heill og sæll; Guðmundur minn, og þakka þér liðnu árin, sem allt annað, gamalt og gott !
Þetta gæti farið; eins og mig hefir grunað, um hríð. Ekki einu sinni; Vinstri hreyfingin - Grænt framboð, gat staðið í lappirnar, öllu lengur, gegn Evrópu sambands glýjunni, Guðmundur minn.
Sannast hér; sem fyrr. Það er sami bakhlutinn, undir öllu þessum flokkum, þá á hólminn er komið.
Við ESB andstæðingar; látum hvergi deigann síga, samt.
Með baráttukveðjum góðum, sem fyrr /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 16:02
Sveinn. Er ekki sjálfstæðismaður og því síður krati og ber því ekki ábyrgð á ástandinu. Þvert á móti hef ég margsinnis hér hvatt til allsherjar uppstokkunar í þjóðfélaginu og í stjórnmálunum. Gagnstætt vinstrimennsku
þinni vill ég að sú uppbygging fari fram á borgaralegum grunni undir forystu
nýs þjóðlegs borgaralegs flokks. Alls ekki undir kommúniskum formerkjum,
því þá fyrst yrði voðinn vís Sveinn minn.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.1.2009 kl. 17:02
Vinstristjórnir hafa verið allt of margar gegnum áratugina. Óðaverðbólga,
stjórnleysi var þeirra aðalsmerki. - Og það sem þær eru mjög andþjóðlegar,
þá yrði 100% að slík vinstristjórn myndi innlima Ísland í ESB á svipstundu.
ESB-glýan er eins og sovétglýjan í augum vinstrisinna hér í denn.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.1.2009 kl. 17:07
Jú enda frjálskyggju/kratismi í boði!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.1.2009 kl. 01:04
Jú enda frjálshyggju/kratismi í boði!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.1.2009 kl. 01:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.