Icesave. Nei takk engann Versalasamning !


   Allt virðist benda til að ríkisstjórnin muni ganga að þeim
ofurkostum að samþykkja ábyrgðina á icesave-reikningunum,
sem einkaeigendur Landsbankans bjuggu til. Samfylkingin
virðist þar sem oftar ráða för. Þjóðin skuli taka á sig meiri-
háttar skuldaklafa til næstu áratuga ÁN NEINNAR SKÝRRAR
LAGASTOÐAR þar um. Hvorki gagnvart íslenzkum lögum
eða EES-samningnum.

  Fari svo að ríkisstjórnin lúffi fyrir breskum stjórnvöldum,
og falli einnig frá ákæru vegna hryðjuverkalaganna, þá
hlýtur Alþingi Íslendinga að hafa síðasta orðið um slíkan
and-þjóðlegan gjörning. - Hver einstakur þingmaður
hlýtur þá að eiga það við sína sannfæringu hvort hann
samþykki slík ólög eða ekki.  Þjóðin mun fylgjast vel með
þvi.  Því þjóðin mun ALDREI rísa undir þeim skuldaklafa
sem þarna er á ferðinni. Auk þess að krefjast skýlausra
málaferla gegn hinum ósvifnu hryðuverkalögum Breta,
sem beitt voru gegn íslenzkri þjóð augljóslega með vel-
þóknun valdhafanna í Brussel.

   Þjóðin mun einfaldlega gera uppreisn gegn slíkum
Versalasamningi! Íslenzk þjóð  lætur aldrei kúga sig!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Heyr, heyr! og heill þér, samherji. – En af hverju er þetta ekki fremsta krafan á útifundunum í Reykjavík og víðar um land? – Af því að þessu ríkisstjórnarfólki og skilanefnd Landsbankans hefur tekizt að telja mörgum trú um, að greiðslubyrðin verði ekki nema 150 milljarðar kr., en hún verður sennilega margfalt meiri – um 250 milljarða vaxta- og lántökukostnaður af 640 milljörðunum (telur Atli Gíslason hrl., alþm.) og trúlega vart minni en 350 milljarða kr. lokareikningur sem mismunur þessara 640 milljarða og þeirra eigna, sem Icesave/Landsb. á handbærar í Bretlandi og víðar (m.ö.o. allt vart minna en um 600 milljarðar, þ.e. 8 milljónir kr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu). – Við áttum aldrei að samþykkja neitt umfram þessa ca. 19 milljarða, sem til voru í Tryggingasjóði inneigna – um það voru t.d. Jón Daníelsson hagfræðiprófessor og Björg Thorarensen lagaprófessor sammála – og það var einungis minnihluti þingmanna, sem samþykkti smánarsamninginn, sbr. Fréttablaðsgreinina á altice.blog.is (setjið inn nánari vefslóðir, einhverjir, vinsamlegast). – Kær kveðja til þín, Guðmundur, tala við þig með nýjum degi.

Jón Valur Jensson, 5.1.2009 kl. 03:42

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara að minna á að við erum búin að semja um þetta að öðruleiti en því hvað vaxtakjör varðar. Við gerðum það í byrjun nóvember. Og eins að það eru eignir á bakvið mestan part af þessu. Bretar og Hollendingar eru búnir að greiða út þetta fé skv. samningi við okkur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.1.2009 kl. 08:55

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Míkið ROSALEGA mátt þú og þið kratar þá vera stoltir af því. Flatmaga gjörsamlega fyrir hinu erlenda kúgunarvaldi og kyssa vöndinn. Þannig að
komandi kynslóðir Íslendinga verða nánast öreigar. Einmitt í anda
VINSTRIMENNSKUNAR og ESB-trúboðsins.

Alþingi samþykkti því miður að ganga til samninga um icesave. En eins og
einn stjórnarþingmanna sem greiddi á móti því Halldór Blöndal benti á að
Alþingi gæti ALDREI samykkt óútfylltan vixil. Það stæðist ekki stjórnarskrá.
Þannig að Alþingi hlýtur að eiga síðasta orðið í þessu ÞEGAR málið liggur
skýrt og endanlega fyrir.

Takk þitt innlegg hér Jón Valur.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.1.2009 kl. 09:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband