Hver er afstaða Kristjáns Þórs í Evrópumálum ?



   Senn líður að landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Þrír hafa boðið sig
fram til formanns. Bjarni Benediktsson, sem vill aðildarumsókn að
ESB. Loftur A Þorsteinssin sem er andvígur aðildarumsókn að ESB.
Og svo síðast Kristján Þór Júlíusson. En hver er afstaða Kristjáns
Þórs til Evrópumála? Með eða móti aðildarviðræðum? En til þess
að fara í aðildarviðræður þarf fyrst að sækja um aðild að ESB. En
ENGINN andstæðingur aðildar vill sækja um slíka aðild.

   Kristján Þór hlýtur í dag að greina skýrt og klárt frá afstöðu
sinni til Evrópumála, nú eftir að hafa tilkynnt um framboð sitt
til formanns Sjálfstæðisflokksins. Bæði landfundarfulltrúrar og
kjósendur hljóta að eiga skýra kröfu á að Kristján Þór upplýsi
þá nú í dag um afstöðu sína til aðildarviðræðna og umsóknar
Íslands að ESB.

   Hér með er skorað á fjölmiðla að ganga eftir skýrri afstöðu
Kristjáns Þórs til þessa stórpólitíska hitamáls. Og það strax í
dag!
mbl.is Kristján Þór í formannskjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Þetta er eðlileg krafa, sem þú setur fram Guðmundur. Hins vegar er líklega erfitt fyrir Kristján Þór að verða við þessari ósk. Ástæðan er sú, að hann hefur enga skoðun á málinu. Þrátt fyrir að hann hefur verið í stjórnmálum í einhverja áratugi, er hann ennþá að leita hins rétta tóns varðandi Evrópusambandið.

Ég vil leggja áherðslu á, að ég er ekki blaðafulltrúi Kristjáns Þórs heldur keppinautur um formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Hann verður sjálfur að svara spurningu Guðmundar, svo að mark sé á takandi. Hins vegar spurði ég Kristján Þór sömu spurningar fyrir tveimur mánuðum og skildi svar hans á framangreindan hátt.

Eins og Guðmundur greinir réttilega frá, er ég andvígur umsókn að Evrópusambandinu(ESB) og ég vil taka til endurskoðunar samninginn sem er í gildi um Evrópska efnahagssvæðið(EES). Þar með er ekki sagt, að ég vilji segja þeim samningi upp. Endurskoðunin á að leiða í ljós kosti hans og galla, auk samanburðar við kosti og galla tvíhliða fríverzlunar-samnings. Við höfðum slíkan tvíhliða fríverzlunar-samning við Efnahagsbandalag Evrópu(EB) frá 1972. Það höfðu Svisslendingar líka, en ólíkt okkur höfðu þeir vit á að viðhalda þeim samningi og þróa.

Þeir sem hafa áhuga, geta fundið meira um afstöðu mína til Evrópusambandsins á blogginu mínu.

Loftur Altice Þorsteinsson, 23.3.2009 kl. 11:41

2 Smámynd: Sigurbjörn Svavarsson

Það eru ekki miklar líkur á því að Kristján Þór gefi upp afstöðu sína til ESB fyrr en Samherji er búinn að gefa upp sína. Forstjóri Samherji sagði fyrir áramót að haldin yrði umræða innan fyrirtækið um málið. Síðan hefur ekkert heyrst og líklega bíður Kristján Þór eftir þeirri niðurstöðu.

Sigurbjörn Svavarsson, 23.3.2009 kl. 12:59

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæll Loftur. Jú mig grunaði þetta. Það litla sem ég heyrt í Kristjáni um þetta
stórmál er í hálf kveðnum vísum. En komast menn upp með þetta í jafn
miklu pólitísku hitamáli lýðveldisins, að bjóða sig fram til formanans í stærsta
flokki þjóðarinnar án skoðunar í þessu langstærsta pólitíska máli lýðveldisins? Svo tek ég eftir að mjög miklir ESB-andstæðingar hér á blogginu úr Sjálfstæðisflokknum eru að lýsa stuðningi við Kristján.
Sem reynist svo eldheitur ESB-sinna eftir að þeir hafa kosið hann. Þess
vegna segi ég að það VERÐUR að kýja fram hreina og klára afstöðu
Kristjáns í Evrópumálum strax í dag.  Annað er ekki boðlegt landsfulltrúarfulltrúm flokksins og kjósendum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.3.2009 kl. 13:01

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þar sem þú ætlar ekki að fara á landsfund eða kjósa Sjálfstæðisflokkinn þá þarft þú kannski ekki að hafa áhyggjur. Geri ráð fyrir að formaður XD fylgi því sem flokkurinn ákveður. Hvort sem það verður Bjarni eða Krístján. Og sem ESB sinni er ég ekki bjartsýnn á ákvörðun Sjálfstæðisflokks.

Tel að á endanum verði að bera það undir þjóðina hvort að við eigum að sækja um að komast í umsóknarferlið. Það mundi spara okkur átök núna ef að þjóðin greiddi atkvæði um það núna. Ef meirihluti þjóðarinnar vill það ekki nú þá er ekkert um það að segja í bili.

En þá verða menn líka að benda okkur á aðrar leiðir t.d. til að við fáum stöðugt gengi sem menn geta ekki leikið sé að fella eða styrkja að vild, niðurflellingu á verðtryggingu og að einhverjir vilji eiga viðskipti með krónur.

Og eins að finna einhverja sem eru til í að eiga lánaviðskipti við okkur í framtíðinni eftir að allt traust á krónunni er farið.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.3.2009 kl. 13:38

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

P.s. Loftur þessi tvíhliðasamningur Sviss við ESB er að kosta þá alveg gríðarlega!

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.3.2009 kl. 13:39

6 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Þú gefur þér Magnús, að nærsti formaður Sjálfstæðisflokksins muni lifa í samræmi við samþykktir flokksins. Ekki er ástæða til að ætla annað, en eitthvað hljóma yfirlýsingar sumra Sjálfstæðismanna um ESB undarlega í ljósi gildandi samþykktar flokksins:

Gildandi samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokks um ESB: Sjálfstæðisflokkurinn telur aðild að ESB ekki þjóna hagsmunum íslensku þjóðarinnar eins og málum er háttað. Mikilvægt er að sífellt sé í skoðun hvernig hagsmunum Íslands verði best borgið í samstarfi Evrópuríkja. Áfram skal unnið að gerð tvíhliða samninga um fríverslun við önnur ríki og rækt lögð við eflingu ábatasamra viðskiptatengsla um allan heim.

Hvar hefur þú verið að undanförnu Magnús, ef þú veitst ekki af beztu leiðinni til að öðlast sterkan gjaldmiðil ? Þetta er ég þó búinn að útskýra í 5 mánuði. Við öðlumst efnahagslegan stöðugleika á 60-90 dögum, með upptöku innlends gjaldmiðils sem hefur bakstuðning af alþjóðlegri stoðmynt. Fyrirkomulagið er kennt við Myntráð.

Hvað varðar kostnað Svisslendinga þá veit ég ekki til, að þeir hafi áhuga á inngöngu í Evrópska efnahagssvæðið, sem myndi kost þá ennþá meira. Öll samskipti smáríkja við ESB er bara kostnaður og niðurlæging, eins og Íslendingar þekkja manna bezt.

Loftur Altice Þorsteinsson, 23.3.2009 kl. 19:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband