ASÍ forystan á algjörum villigötum !


   ÁSÍ forystan er á algjörum villigötum. Hefur gjörsamlega
brugðist alþýðu þessa lands. Er algjörlega úr takt við land
og þjóð.  Það þarf því að hreinsa ærlega til á æðstu stöðum
innan ASÍ. Smúla út ! Hin lamandi sósíaldemókratiska ESB
elítía þar á bæ vinnur markvíst gegn íslenzkum þjóðarhags-
munum ásamt ESB-trúboðinu innan Samfylkingarinnar, og
verður því tafarlaust   að víkja. Er orðið einskonar útibú og
málpípa frá Brussel. Andstæð íslenzkri alþýðu og þar með
hagsmunum íslenzkrar þjóðar!

  Hvern fjandann hefur forseti ASÍ sér fyrir í því að upptaka
evru og innlimun Íslands í hið deyjandi ESB eigi eftir að bæta
kjör hins vinnandi manns á Íslandi? Ekki nokkurn skapaðan
hlut! Þvert á móti myndi upptaka evru hafa skelfilegar afleið-
ingar fyrir íslenzkt efnahagslíf til frambúðar og vera ávísun á
bullandi atvinnuleysi. Erlendur gjaldmiðill í jafn litlu og sveiflu-
kenndu hagkerfi eins og okkar, sem EKKERT tæki tillit þeirra
ytri og innri sveifla, með vaxtastígi og gengi, myndi leiða til
allsherjar stöðnunar hagkerfisins. Öll hagstjórnartæki á ÍS-
LENZKUM FORSENDUM yrðu ekki lengur fyrir hendi. Þá myndi
innganga í ESB hafa skelfilegar efnahagslegar afleðingar  í
för með sér. Okkar dýrmætasta auðlind, sjávarútvegurinn,
kæmist t.d í hendur útlendinga  með yfirtöku  kvóta  gegnum
frjálsar fjárfestingar í sjávarútvegi. Landbúnaður yrði lagður
í rúst og þúsunda starfa tengd honum. Og svona má lengi
telja.

   Krónan er ekki vandamálið Gylfi Arnbjörnsson. Heldur hrika-
leg óstjórn í efnahagsmálum á liðnum árum. Við þá óstjórn
bættist svo stórgallað regluverk ESB gegnum EES-samning-
inn, sem engann veginn passaði fyrir hið smáa hagkerfi á
Íslandi. Svo gallað, að örfáir ,,vikingamafíuósar" gátu sett
íslenzkt þjóðarbú á hausinn gegnum glufur þess. Lengra inn
í þetta svarthol vill nú Gylfi og félagar ganga. Slíkum mönnum
er alls ekki sjálfrátt ! Eru ekki treystandi, og eiga að hverfa
á braut!  -  Þegar í stað!  Alþýðu Íslands til heilla! Og ekki
sízt ÍSLENZKRI ÞJÓÐ!!!!!!!!!!!
mbl.is ASÍ vill bráðaaðgerðir á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Félög innan ASÍ kusu Gylfa sem formann.  SAMF. mann sem sér ekker nema ESB.  Síðan kaus þjóðin SAMF og VG og nú er allt í hnút.  Bjóst einhver heilvita maður við öðru?  Hvernig væri að þeir sem börðu potta og pönnur á Austurvelli fari að taka framm verkfærin að nýju og krefjast aðgerða ríkisstjórnar, sem þessir sömu aðilar kusu yfir landsmenn.  Ekki verra ef rétt er að Ólafur Ragnar hafi lagt hart að nýjum formanni Framsóknar að verja minnihlutastjórn VG og SAMF. falli, hvernig væri að forystumenn búsáhaldarbiltingarinnar, að þeir taki upp öll sín verkfæri og tól og þrammi niður á Austurvöll og krefjist svara.  Það hefur ekkert breyst síðan þeir börðu potta og kveiktu bálkesti.  Ekkert nema að vextir hafa hækkað og einstaklingar og fyrirtæki hafa orðið gjaldþrota og fleyri á leiðinni.  Engin lausn hefur fengist.

Guðrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.5.2009 kl. 02:18

2 Smámynd: Sigurbjörn Svavarsson

Það er eiginlega furðulegt að ASÍ sé hlynnt inngöngu í ESB, miðað við auðlindahagsmuni landsins. Ólíklegt er að félagsmenn þess fari til atvinnuleitar í 11,5% atvinnuleysi í sambandinu. Forysta ASÍ veit að vextir og verðbólga fara í 2-5% í lok ársins (með krónunni) hér á landi, hver er þá tilgangurinn að taka upp EVRU sem næst eftir  5-7 ár? Hverjir eru hagsmunir félagsmanna þeirra með inngöngu í ESB?

Ætli það séu ekki frekar ESB skoðanir ASÍ forystunar sem ráða, þar sem tildur mjúkra fundastóla í Brussel blindar þeim sýn.

Sigurbjörn Svavarsson, 6.5.2009 kl. 10:10

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er orðin dauðþreytt á þessari ESB ást Samfylkingarinnar.   Vil ekki sjá þetta apparat og tel að við séum langtum betur komin með okkar auðlindir í eigu þjóðarinnar og umsjón.  Það er ekkert sem bendir til að Evrópusambandið bjargi þjóðinni eins og þetta fólk hamast á allan daginn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.5.2009 kl. 10:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband