Lævís áætlun Jóhönnu stórskaðar þjóðarhag


    Það hversu gengið hefur veikst míkið undnfarin misseri og hversu
treglega hefur tekist  að  lækka vexti,  er allt í samræmi við vilja og
plön Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra. En hvort tvegga á að
styrkja pólitíska stöðu hennar með að sækja um aðild að ESB og taka
upp evru. - En til  þess að  þetta yrði  mögulegt, varð hún  að ráða  í
stöðu seðlabankastjóra erlendan ríkisborgara frá Noregi  með sömu
pólitíska sýn og hennar, auk breskan  prófessor í peningastefnunefnd
Seðlabankans. En báðar þessar ráðningar eru einsdæmi hjá fullvalda
þjóð, enda standast ekki ákvæði stjórnarskrár um háttsetta embættis-
menn ríkisins Auk þess sem að ráðning bresks ríkisborgara í svo veiga-
míkið embætti stjórnkerfisins er vítaverð ákvörðun og hneyksli, hafandi
yfir íslenzku þjóðinni á sama tíma  bresk hryðjuverkalög. ENGINN stjórn-
málamaður í seinni tíð hefur því lagst eins lágt og Jóhanna Sigurðardótt-
ir hvað þetta varðar.

   Síðan hinn norski seðlabankastjóri hefur hafið störf hefur gengið hrið-
fallið. Fram að þeim tíma styrktist gengið verulega. Tilviljun? Á þessum
sama tíma hefur gjaldeyrisvarasjóðurinn verið sáralítið notaður. En oftar
en ekki hefur velta á millibankamarkaði verið sáralítil, og hefði því  smá
inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði haldið genginu stöðugu  eða
styrkt það, eins og gerðist fyrir aðkomu hins norska seðlabankastjóra.
Tilviljun? 

   Ef og þegar aðildarumsókn að ESB  hefur verið samþykkt er það plan
Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra að Seðlabankinn beiti sér þá loks
á gjaldeyrismarkaði til styrkingu krónunar, og lækki vexti verulega.  Allt í
pólitískum áróðri fyrir ESB og upptöku evru. Því þá mun ,,heilög" Jóhanna
stíga fram og geta sagt. ,, Sjáið bara! Um leið og aðildarumsóknin er sam-
þykkt styrkist krónan  og vextir lækka. Nákvæmlega eins og ég hef alltaf
sagt.  Göngum því strax í ESB og tökum upp evru".

   En hvað hefur þetta ógeðfelda pólitíska ráðabrugg Jóhönnu Sigurðar-
dóttir kostað þjóðina fram til þessa? Bæði fólk og fyrirtæki? Stórskaðað
íslenzkan þjóðarhag! Er ekki kominn tími til að svona stjórnmálamaður
með jafn and-þjóðleg viðhorf og plön  og Jóhanna Sigurðardóttir víki?

    OG ÞAÐ SEM ALLRA ALLRA  FYRST!!!
mbl.is Tveir vildu lækka vexti meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara að benda þér á að Jóhanna hefur ekkert með gengi krónunar að gera. Það er Seðlabankinn sem hefur með peningamálin að gera. Ásamt því að fara eftir þeirri áætlun sem við lögðum fram við samninga við AGS. Af hverju heldur þú að Steingrímur sé nú í Svíþjóð að semja um lán þeirra til okkur. Það er sennilega vegna þess að við höfum ekki gjaldeyri til að verja krónuna í dag.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.5.2009 kl. 12:46

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Jóhanna hefur allt þetta í hendi sér og þetta er MJÖG djúphugsað
plan hjá henni. Ráða norskan KRATA og persónulegan vin sinn sem Seðlabankastjóra, sem er EINSTAKT að nokkuð fullvalda þjóð gerir.
Þetta er ALLT samantekin ráð og svo meiriháttar AUGLJÓST allt. Jóhanna
og hinn norski krati eru í daglegu sambandi, því það er með öllu óskiljanlegt að seðlabankinn skuli ekki einu sinni grípa inn í þá mörgu daga
sem millibankaviðskipti hafa verið mjög lítil.  Einmitt þá daga gæti Seðlabankinn haft veruleg áhrif á gengið.  Varðandi Steingrím þá eru þetta
lán sem Norðurlöndun lofuðu í haust og ekkert sem bendir til að við
þurfum að nota, en verður samt að ganga formlega frá. 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.5.2009 kl. 12:57

3 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

þú toppar allt í geðsjúkri paranoju þinni með þessari færslu. Haltu endilega áfram. Þú ert að rústa eigin málstað!

Páll Geir Bjarnason, 21.5.2009 kl. 13:46

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir hrósið Páll Geir. Meiriháttar gott að fá það úr þessari átt!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.5.2009 kl. 14:14

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Trúlega  er för Steingríms til að undirrita gjalderyslánin frá Norðurlöndum
liður í því plani Jóhönnu og sem vakið er athygli á í þessum písli mínum,
að strax og aðildarumsókn liggur fyrir, mun Seðlabankinn beita gjald-
eyrisvarasjóðum að krafti til að styrkja krónuna, nákvæmlega og ég held
því fram hér í psli mínum. Þannig á að blekkja þjóðina, að bara það að sækja um ESB hafi jákvæð áhrif á gengi og vexti.  - Þetta er svo augljós blekkingarleikur að manni gerir flökurt! í STAÐ ÞESS að nota gjaldeyris-
varasjóðinn til  styrkja krónuna eins og fyrrverandi Seðlabankastjórn
gerði með góðum árangri. 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.5.2009 kl. 14:27

6 Smámynd: Kommentarinn

Samsæriskenningarnar dafna vel hérna sé ég...

Kommentarinn, 21.5.2009 kl. 15:28

7 identicon

Þetta er það skemmtilegasta sem ég hef lesið. Trúiru þessu í alvöru sjálfur?

Baldur (IP-tala skráð) 21.5.2009 kl. 15:44

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Stundum er vont fyrir suma að heyra og lesa sannleikann...

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.5.2009 kl. 16:30

9 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

það er örugglega mikið til í þessum hugleiðingum þínum Guðmundur.

Kveðja.

Loftur Altice Þorsteinsson, 21.5.2009 kl. 23:21

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bíddu Guðmundur var þessi maður ekki ráðinn inn í gengum Steingrím. Það var Steingrímur sem á vinasambönd við ráðamenn í Noregi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 22.5.2009 kl. 00:41

11 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nei Magnús. Hann var ráðinn af Jóhönnu, enda ráðningin á hennar forræði.
Efast um að Steingrímur hefði farið að ráða norskan krata sem seðlabankastjóra, þótt ég trúi öllu upp á Steingrím í dag eftir að hafa
gerst ESB sinna að kröfu Jóhönnu.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.5.2009 kl. 10:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband