Forysta Sjálfstæðisflokksins bregst í Evrópumálum - Nýtt afl komi fram!
29.5.2009 | 00:28
Forysta Sjálfstæðisflokksins hefur gjörsamlega brugðist í Evrópumálum.
Þvert á flokkssamþykktir beitir hún nú sér fyrir aðildarviðræðum að
Evrópusambandinu með hinum ESB-sinnaða Framsóknarflokki. Til að
kóróna afstöðu sína lýsti svo varaformaðurinn yfir AFDRÁTTARLAUSUM
vilja til að sótt verði um aðild að ESB. Þvert á samþykktir flokksins. Sem
þýðir að Sjálfstæðisflokknum er ALLS EKKI lengur treystandi í Evrópu-
málum. Hefur svikið grasrót flokksins og samþykktir landsfundar um
Evrópumál nú í vetur.
Þessi ESB-sinnaða afstaða forystu Sjálfstæðisflokksins hlýtur að kalla
á klofning flokksins. Sannir þjóðfrelsissinnar innan hans og andstæðingar
ESB aðildar hljóta nú að yfirgefa flokkinn í hópum. Sem í raun þýðir mikla
uppstokkun í íslenzkum stjórnmálum. Því allflestir flokkar utan Samfylk-
ingarinnar virðast meir og minna klofnir í þessu langstærsta pólitíska
hitamáli lýðveldisins. Virðast ekki getað höndlað þetta stórpólitíska
mál. - Nýr vettvangur virðist því borðleggjandi fyrir ÞJÓÐLEGT BORGARA-
LEGT stjórnmálaafl, til að stíga fram og sameina alla þjóðfrelsis- sjálf-
stæðis-og fullveldissinna í SAMEIGINLEGA baráttu til varnar fullveldi og
sjálfstæði Íslands.
Vert er í þessu sambandi að vekja athygli á Samtökum fullveldissinna,
sem nú í maí stofnuðu formlega stjórnmálasamtök, og hyggjast boða
til lokastofnfundar í ágúst. Mikil áhersla er lögð á að sem flestir þjóð-
frelsissinnar komi að undirbúningi stofnunar þessa stjórnmálaflokks,
og hafi áhrif á alla stefnumótun og uppbyggingu flokksins.
Sem þjóðfrelsissinni og stuðningsmaður þjóðlegra viðhorfa og gilda
lýsi ég yfir stuðningi við Samtök fullveldissinna, og hvet alla þjóðfrelsis-
sinna að gera hið sama. Hér er einstakt tækifæri til að byggja upp sterkt
þjóðlegt afl á mið/hægri kannti íslenzkra stjórnmála, sem hafi KJARK og
ÞOR til að takast á við landssöluöflin. - Því tómarúmið þar í íslenzkum
stjórnmálum virðist ALGJÖRT ef marka má hin ömurlegu viðbrögð og
umræður á Alþingi Íslendinga í gær.
Þjóðfrelsissinnar! Baráttan er hafin um fullveldi og sjálfstæði Íslands,
og þjóðfrelsið sjálft!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur eru með sýndarleik í gangi til að fela raunverulega ætlun sína, sem er að hoppa upp í vagninn hjá St. Jóku og keyra þjóðina í ánauð Brüsselveldisins.
Ísleifur Gíslason, 29.5.2009 kl. 13:42
Rétt Ísleifur. Þörfin á þjóðlegum borgaralegum flokki hefur því aldrei verið
eins brýn og nú, auk KRÖFTUGRAR andsstðu allra þjóðlegra afla gegn
landssöluliðinu!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.5.2009 kl. 14:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.