Jóhanna og Össur skilja ekki þjóðfrelsisþrána


    Það að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra skulu ekki hafa séð sóma
sinn í að taka á móti þjóðfrelsishetju tíbensku þjóðarinnar,
Dalai Lama, við komuna til Íslands, þarf í raun ekki að koma
á óvart. Því þetta eru þeir íslenzku stjórnmálamenn sem
einmitt hvað harðast beita sér nú fyrir einni mestu aðför að
íslenzku þjóðfrelsi, allt frá fullveldi Íslands árið 1918. Engir
stjórnmálamenn íslenzkir hafa lagst eins lágt og Jóhanna
og Össur að koma íslenzku þjóðinni undir erlend yfirráð. 
Í ljósi þessa ber að skoða fjarveru þeirra og neitun viðtala
við heimsók Dalai Lama í gær. Þau skilja hvorugt þjóðfrels-
isþrána!
mbl.is Fjölmenni á friðarstund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Félagsmálaráherra Árni Páll Árnason og umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir voru gestir á friðarstundinni. Ömmi heilbrigðisstuð og Ásta Ragnheiður forseti Alþingis funda með honum ásamt utanríkismálanefnd. Við hverju býstu eiginlega þegar hingað kemur gestur á vegum einkaaðila með stuttum fyrirvara? Það er ekki eins og hann sé hérna í boði íslensku þjóðarinnar!

Páll Geir Bjarnason, 2.6.2009 kl. 01:18

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Og þú með þennan ÖMURLEGA kattaþvott líka Páll fyrir forsetann, forsætis-
ráðherrann og utanríkisráðherrann, endi ertu á móti þjóðfrelsi og sjálfstæði
þjóða í anda sósíaldemókratistmans.  Ætti ÖLL að hafa vit á að SKAMMAST
YKKAR. Heimsókn Dalai Lama var LÖNGU ákveðinn, og EKKERT sem afsakar
þessa EINSTÖKU frunta-framkomu æðstu manna gagnvart þessum þjóðar-
leiðtoga einnar kúguðusti þjóðar heims.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.6.2009 kl. 09:13

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þú veist vonandi Guðmundur að Dalai Lama vill ekki að Tíbet verið sjálfstætt? Hann vill að það verði sjálfstjórnar ríki í ríkjasambandi undir Kína. Og í orði kveðnu er Tíbet sjálfstjórnarsvæði þó að Kínverjar geri allt til að útrýma sérkennum Tíbet.  Held að Jóhanna og Össur þekki þetta ágætlega enda eru þau að reyna að vinna að þvi að Ísland haldi sjálfstæði sínu til frambúðar en verði ekki gjaldþrota og þar af leiðandi dæmt til að ganga inn í annað ríki. Þau vita að leiðin til þess  er að ganga til nánara samstarfs við Evrópu.

Dalai Lama er trúarleiðtogi. Hann boðar það aðallega að hann sé andlegur leiðtogi Tíbeta. Auðvita skilur maður ekki að Kínverjar vilji ekki ljúka þessu með samningum um sjáfsstjórn. En minni líka á að ástandið í Tíbet var nú ekki til að hrópa húrra fyrir áður. Þar ríkti lénskerfi þar sem að fjöldi munkaklaustra kúgaði alla tíbeta og þeir lifðu við algjöra örbirgð.

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.6.2009 kl. 19:50

4 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Jahá, auðvitað var setning smáþjóðaleikanna plönuð af forsetaembættinu til að losna undan því að hitta Lama! Mér finnst þessi færsla þín öll hin geðveikislegasta og óska ég þér góðs bata!

Páll Geir Bjarnason, 2.6.2009 kl. 20:25

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Að ræða við sósíaldemokrata um fullveldi og þjóðfrelsii, hvort sem það
varðar þjóð þeirra eða annara þjóða, virðist algjör hebreska fyrir þeim.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.6.2009 kl. 20:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband