Það er kominn 17 júní !
17.6.2009 | 00:31
TIL HAMINGJU ÍSLENDINGAR! TIL HAMINGJU! Það er kominn 17 júní !
Heil 65 ár eru síðan íslenzk þjóð öðlaðist ÓSKERT ÞJÓÐFRELSI OG SJÁLF-
STÆÐI með stofnun lýðveldis á Íslandi. En sjálfstæðisbarátunni lauk
ekki þar. Sjálfstæðisbarátta fámennar þjóðar er eilífð ! Heldur látlaust
áfram. Og fyrir íslenzka þjóð kannski aldrei verið mikilvægari en einmitt
Í DAG. Því að fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar er nú fast sótt af
and- þjóðlegum öflum, sem vinna að því dag og nótt að koma Íslendingum
undir erlend yfirráð á ný. - Það má ALDREI TAKAST!!!
Því miður nú um stundarsakir býr þjóðin við þjóðhættulega vinstristjórn.
Stjórn sem hefur í hyggju að binda þjóðina á skuldaklafa til framtíðar.
Skuldaklafa (icesave) sem er þjóðinni GJÖRSAMLEGA ÓVIÐKOMANDI! Allt
til að þóknast erlendum valdhöfum, til að greiða fyrir inngöngu Íslands í
Evrópusambandið, sem þessi SAMA vinstristjórn kommúnista og krata
vill að hið FRJÁLSA ÍSLAND innlimist í. Það er því sorgarský sem hvílir
yfir 17 júní í ár. Ský, sem senn mun þó hverfa fljótt eins og DÖGG FYRIR
SÓLU. - Því landsölulýðnum mun EKKI takast hlutverk sitt. Því upp mun
rísa ÞJÓÐLIÐ í hverri sveit, bæ og borg til varnar voru fullveldi og sjálf-
stæði, og þeim dýrmætu auðlindum sem þjóðin á og hefur ENN yfir að
ráða.
ÍSLENDINGAR! ÁFRAM FRJÁLS OG FULLVALDA ÞJÓÐ! EKKERT ESB-
HELSI NÉ ERLENDUR FRJÁRKÚGUNARSAMNINGUR!
STÖNDUM VÖRÐ UM FULLVELDI VORT OG SJÁLSTÆÐI, OG VERUM TIL-
BÚNIR TIL AÐ VERJA ÞAÐ AF HÖRKU EF OG ÞEGAR ÞÖRF KREFUR!!!
Til hamingju með daginn, ÍSLENDINGAR!!!!!!!!!!!!!!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:36 | Facebook
Athugasemdir
Segjum okkur frá Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna! Látum ekki segja okkur hvernig við eigum að ala upp okkar glæstu ungu kynslóð, sem erfa mun land okkar og fósturjörð. Íslandi allt!
Gunnlaugur B Ólafsson, 17.6.2009 kl. 00:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.