Stöðugleikasáttmáli með Icesave brandari !


   Stöðugleikasáttmáli um efnahagsmál er mikilvægur. En
stöðugleikasáttmáli  með icesave hangandi yfir hausnum
er brandari. Því er svokallaður stöðugleikasáttmáli sem var
undirritaður í gær markleysa. Enn og aftur hefur Jóhanna
Sigurðardóttir ,,forsætisráðherra" blekkt þjóðina og teymt
ótrúlega marga á asnaeyrum.

   Forsenda stöðugleikasáttmálans var auðvitað eitt tvö og
þrjú að svokallaður ,,samningur" um icesave yrðu riftir.  Því
hann einn og sér mun skapa gríðarlega óvissu og óstöðug-
leika næstu áratugi.  Atburðir gærdagsins voru því einn
stór brandari í boði Jóhönnu Sigurðardóttir.

  Eina vonin í dag fyrir íslenzka þjóð er því að Alþingi Ís-
lendinga taki af skarið og HAFNI icesave-nauðunguasam-
ningnum. Frelsi þjóðina undan þeim ógnvænlega skulda-
klafa sem Jóhanna Sigurðardóttir og hennar ESB-hirðfifl
ætla að koma þjóðina í algjörlega að ósekju.

   Þá  fyrst yrði hægt að setjast niður og gera stöðugleika-
sáttmála um efnahagsmál til framtíðar.........

  Jóhönnu-óvísunni og hennar and-þjóðlegu áherslum þarf
því að eyða SEM ALLRA FYRST.   Íslandi til heilla!  
mbl.is Ný sókn í atvinnumálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þessar aðgerðir sem við ætlum að sameinast um, eiga að skapa skilyrði fyrir nýrri sókn í atvinnumálaum og þar með bættum lífsskilyrðum til framtíðar, okkur öllum til heilla. Jafnframt erum við hjá ASÍ sérstaklega ánægð með að hafa náð að framlengja okkar kjarasamning sem felur í sér hækkanir fyrir þá tekjulægstu,“ segir Gylfi.

Skiptir álit ES:EU og IMF á Íslandi. Kostnaður við endurreisn vaxtaskattakerfis [fjármálkerfis] að ES fyrirmynd myndi kosta almennt lægri lífskjör um aldur og ævi. Þar innfalið Islave styrkur handa Frökkum og Spánverjum?

Það á að lækka þá tekjulægstu minnst í raun, tekið tillit til skatta og verðbólgu.

Halda sumir að Íslenskur almenningur sé einhver fífl. 

Stöðugleika sjónarmið ES 1.i deildar meðlima ríkjanna eru ágæt fyrir elíturnar sem eru á fríu fæði.

Júlíus Björnsson, 26.6.2009 kl. 02:45

2 Smámynd: Elle_

P { MARGIN: 0px } UL { MARGIN-TOP: 5px; MARGIN-BOTTOM: 5px } OL { MARGIN-TOP: 5px; MARGIN-BOTTOM: 5px }
Já, bara brandari. Icesafe er ekki beint stöðugleika-valdandi fyrir okkur. Það verður ólíft fyrir reiði ef skrifað verður undir nauðung og þvingun fyrir annarra glæfra- og/eða glæpa-skuldir. Nóg eru hlutir óþolandi núna.  

Elle_, 28.6.2009 kl. 16:27

3 Smámynd: Elle_

Guðmundur, ég veit ekkert hvað slæddist þarna inn í fyrir ofan ´commentið´mitt.

Elle_, 28.6.2009 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband