Vinstri græn undirstrika ESB-ást sína !


    Sérstök ráðherranefnd  um Evrópumál hefur  verið  skipuð,
til að sjá  um  framkvæmd  ESB-umsóknarinnar. En sem kunn-
ugt er samþykkti Alþingi umsókn að ESB eftir að Vinstri græn
gerðust ESB-flokkur eins og Samfylkingin. Athygli vekur hversu
Vinstri græn hafa alfarið fallið fyrir ESB-trúboðinu. Því svo er að
sjá að hinn ESB-sinnaði Steingrímur J taki mun frekar mennta-
mál fram yfir sjávarútvegs- og landbúnaðarmál  í komandi sam-
ningum við ESB. Skipar menntamálaráðherra með sér í ráðherra-
nefndina, en ekki sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, en
allir eru sammála um að í þeim málaflokki fari mestu hagsmunir
Íslands.

   Enn ein sönnun þess hversu VG hafa gjörsamlega kúvent í
Evrópumálum. Hnífurinn gengur ekki milli þeirra og Samfylkar-
innar í Evrópumálum. Þessir tveir vinstriflokkar hljóta því að
sameinast innan skamms.

   Þessi skipan mála lofar ekki góðu. Minnir á pólitísk afglöp
Steingríms J í icesave-málinu. Þar sannaðist að honum er ekki
fremur en öðrum vinstrisinnum  treystandi fyrir að halda á og
verja íslenzka þjóðarhagsmuni. Enda hafa kommúnistar og
kratar ALDREI gert það, enda í fullu samræmi við þeirra öfga-
fullu alþjóðahyggju. - Verst er þó að þessir and-þjóðlegu og
óþjóðhollu vinstriflokkar fara nú ÞVERT gegn vilja þjóðarinnar
í Evrópumálum skv. nýlegri skoðanakönnun. Nákvæmlega eins
og þeir gerðu í icesave-málinu.  SANNKALLAÐIR ÞJÓÐSVIKA-
FLOKKAR báðir tveir.  

      Vert er að minna á að Samtök fullveldissinna sem nú eru
að fullu að móta sig og byggja upp, eru einu stjórnmálasam-
tökin sem eru á öndverðum meiði við þessa illræmdu vinstri-
flokka í þessum stærstu pólitísku deilumálum lýðveldisins.
ESB-umsókn og icesave.........

     www.zumann.blog.is
     www.fullvalda.is
mbl.is Ráðherranefnd um Evrópumál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas, æfinlega !

Eins; og ég tek fram, í minni nýjustu grein, eru benzín sprengjur - sem og önnur viðlíka þing, næsta andsvar okkar þjóðernissinna, gegn valda stéttinni.

Við höfum; sýnt þessum mannskap - of mikla gnægð þolinmæðinnar, til þessa, gamli góði félagi.

Með beztu kveðjum; sem jafnan og áður /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.9.2009 kl. 01:34

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Mæl þú manna heilastur, Guðmundur Jónas. Þessi gjörð Steingríms (eða hans auma meðvirkni með yfirgangi Össurar og Jóhönnu) er atlaga að hagsmunum grunnatvinnuvega Íslands. Katrín hefur ekkert að gera í þessa nefnd; Jón Bjarnason átti vitaskuld að fá þar sæti. En það er spurning hvort hann hafi kannski sjálfur gott af að vera utan þessara spillingaráhria.

En það vantar fleiri ný stjórnmálasamtök en Samtök fullveldissinna.

Jón Valur Jensson, 17.9.2009 kl. 01:35

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Óskar og Jón Valur. Jú Jón það þarf ný stjórnmálasamtök. Hef hér
á bloggi mínu margoft kallað eftir stjórnmálaflokki á borgaralegum og
þjóðlegum grunni. Samtök Fullveldissinna eru einu starfandi stjórnmálasamtökin Í DAG sem geta uppfyllt þetta. Veit að í þeim fer fram
mikil undirbúningsvinna að uppbyggingu og stefnumörkun sem lagt verður
fyrir lanadsfund í haust. Að henni geta allir komið og haft áhrif. Þegar liggur
fyrir að Samtök fullveldissinna vilja 100% standa vörð um þjóðfrelsið og
fullveldið, hafna ALFARIÐ ESB-aðild, og vilja endurskoða EES-samninginn,
þ.a.m Schengen því það rugl tengist honum, auk þess að standa vörð
um ÍSLENZKA ÞJÓÐMENNINGU. Meðan annað og betra hefur ekki komið
fram hef ég ákveðið að styðja Samtök Fullveldissinna, og reyna að hafa
þar áhrif til góðs fyrir Ísland og ÍSLENZKA framtíð.......

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 17.9.2009 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband