Vinstrimenn eru óvinir velferðarkerfisins !!!!!


   Icesave-þjóðsvikin í allri sinni mynd hafa afhjúpað eðli
vinstrimennskunar, og hve lítið er að marka fagurgala
vinstrimanna um umhyggju þeirra fyrir öflugu velferðar-
kerfi. Því með skuldadrápsklyfjum icesave-samningsins
er ríkisstjórn vinstrimanna að stórskerða lífskjörin  og
þar með íslenzka velferðarkerfið til margra áratuga. Og
það alvarlegasta er að allt þetta gera þeir vegna yfir-
gengislegs undirlægjuháttar gagnvart erlendri kúgun.
Láta íslenzka þjóð undirgangast hluti sem henni ber
engan veginn að samþykkja eða taka á sig. Og það
án neinnar mótspyrnu!

   Vonandi að sem flestir sem til þessa hafa litið á vinstri-
menn sem sérstaka umhyggjumenn fyrir velferð almúgans
og þeirra sem minnst mega sín í þjóðfélaginu, fari nú  að
hugsa sinn gang. - Það vantaði sem sagt HREINRÆKTAÐA
vinstristjórn til að gera mestu aðför að lífskjörum almenn-
ings  á  Íslandi  í  manna  minnum. Og  það  undir forystu
þeirrar mannseskju  sem  mest  hefur  þóttst  bera  fyrir
brjósti  hagsmuni  íslenzkrar  alþýðu,  Jóhönnu  Sigurðar-
dóttir. Sem nú stendur fyrir því rauðheit  að rústa íslenzku
velferðarkerfi til áratuga, á grundvelli sósíaldemókratisktar
öfgaalþjóðahyggju.  Sem einnig gerir eina mestu aðför að
íslenzku fullveldi og sjálfstæði frá lýðveldisstofnun. sbr.
umsókn vinstristjórnnar krata og komma að ESB.

  Er að furða þótt margur sé orðin bálreiður, og hugsi svona
and-þjóðlegu liði þegjandi þörfina? Og það VIRKILEGA!

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB! EKKERT ICESAVE NÉ AGS!

  www.zumann.blog.is
   www.fullvalda.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórólfur Ingvarsson

Sæll Guðmundur Jónas!

Ég vil þakka þér þessa færslu sem og allar sem á undan hafa farið, og þó að ég tjái mig ekki oft hér þá fylgist ég af athygli með því sem þú hefur fram að færa.

Ég vildi óska þess að sem flestir kyntu sér það sem Jón Þorláksson forsætisráðherra og fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins hafði um vinstrimennskuna að segja, allt sem hann sagði um hana í sinni tíð á við enn í dag, hún hefur ekki breyst og mun ekki breytast.

Þórólfur Ingvarsson, 22.10.2009 kl. 01:38

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Innilega sammála þér Guðmundur eins og svo oft áður, og telji menn að vinstri menn séu handhafar félagshyggju í landinu, þá ætti þessi stjórn að opna augu manna.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.10.2009 kl. 01:43

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Get svo sem skilið skoðun ykkar en spyr á móti, í boði hverra eru þessi ósköp öll sömul og hverjir komu okkur í þessi ömurlegu mál öll sömul?

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 22.10.2009 kl. 01:47

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ruglið varðandi EES-saminginn í boði sósíaldemókrata er upphafið og rót
þess hvernig komið er. Okkar ÖRSMÁA hagkerfi stóðst ekki ESB-regluverkið, samið fyrir milljóna manna samfélög. Áttum að gera tvíhliða viðskiptasamning við ESB á OKKAR forsendum sbr Sviss, Arinbjörn.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.10.2009 kl. 01:56

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk kærlega Þóólfur og Guðrún!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.10.2009 kl. 02:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband