Öryrkjar greiði fyrir ESB-umsóknina


   Í ræðu sinni  á aðalfundi  Öryrkjabandalags  Íslands lýsti Árni
Páll Árnason  félagsmálaráðherra  því  yfir, að framlög til öryrkja
á næsta ári myndu skerðast um 700.milljónir. Á  sama  tíma ætlar
þessi  sami  Árni Páll  og  vinstristjórn  hans  að henda  á annan
milljarð í tilgangslausa og þjóðhættulega  aðildarumsókn að ESB.
Þannig ætlar ríkisstjórn krata og kommúnista í raun að láta öryrkja
á Íslandi greiða stórs hluta  þessa kostnaðar af aðildarumsókninni.
Þess utan munu öryrkjar og allir þeir sem minna mega sín í þjóðfé-
laginu þurfa að horfa upp á stótskert lífskjör næstu áratuga, vegna
þjóðsvikasamninga og aumingjaháttar þessarar sömu vinstristjórnar 
útaf  icesave.

   Hef löngum verið and-vinstrisinni. En nú með hverjum deginum
blöskrar manni svo varðandi verk og gerðir þessarar vinstristjórnar,
gagnvart landi og þjóð, að það fer að verða ALLT réttlætanlegt í
huga manns til að koma þessum óþjóðaöflum frá sem allra fyrst.

  BURT MEÐ VINSTRISTJÓRN KRATA OG KOMMÚNISTA !

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB! EKKERT ICESAVE NÉ AGS!

  www.zumann.blog.is
 


mbl.is Nýr formaður ÖBÍ kosinn í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas !

Þetta er algjörlega; í samræmi við ÖLL önnur vinnubrögð kratanna, og þarf víst ekki að koma á óvart.

Það væri ígildi; risastórs happdrættisvinnings, Íslendingum öllum til handa, að losna við þennan mannskap frá völdum, svo sem.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.10.2009 kl. 15:05

2 identicon

Sammála burt með þetta landráðaglæpahyski

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 24.10.2009 kl. 20:09

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk kærlega Óskar og Helgi

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 24.10.2009 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband