Sósíaldemókratisminn heldur áfram að rústa Íslandi
5.11.2009 | 00:20
Sósíaldemókratisminn heldur áfram að rústa Íslandi. Skipuð
hefur verið svokölluð samninganefnd Íslands í aðildarviðræðum
við Evrópusambandið. Þrátt fyrir yfirgnæfandi andstöðu þjóðar-
innar. Og þrátt fyrir að eitt mesta efnahagshrun þjóðarinnar,
megi einmitt að stærstum hluta rekja til hins stórgallaða EES-
samnings og regluverka hans. Sem einmitt sósíaldemókartis-
minn kúgaði upp á þjóðina fyrir margt löngu. En nú á sem sagt
að ganga leiðina á enda. Fara úr ösku í eld. Afsala fullveld-
inu að stærstum hluta Brusselvaldinu á hönd, og yfirráðum yfir
helstum auðlindum þjóðarinnar, sbr. hinum dýrmætu fiskimiðum.
Allt á altari hinnar öfgakenndu alþjóðahyggju sósíaldemókrat-
ismans á Íslandi.
ESB-aðgöngumiðinn, icesave-þjóðsvikasamingurinn, skal svo
íslenzkur almenningur kúgaður til að greiða næstu áratugi fyrir
útrásarmafíósa. Með tilheyrandi eymd, fátækt og veikburðu
velferðakerfi. Virkileg móðuharðindi af MANNAVÖLDUM í boði
sósíaldemókratismans á Íslandi, og með dyggum stuðningi
kommanistanna í Vinstri-grænum.
Sjálfstæðisbarátta íslenzkrar þjóðar er hafin á ný. Sjálfstæðis-
barátta gegn hinum and-þjóðlegum öflum íslenzka lýðveldisins.
Stríðið um Ísland er hafið!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB! EKKERT ICESAVE NÉ AGS!
www.zumann.blog.is
Samninganefnd vegna ESB skipuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:23 | Facebook
Athugasemdir
Þetta pakk er ógeðslegt,það verður munað eftir landráðum Steingríms og Jóhönnu. Flokkar þeirra munu finna fyrir reiði landsmanna í næstu kosningum. Svo á að draga þetta landráðapakk fyrir landsdóm.
Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 16:53
Ég er enn að spekulera !
Guðmundur !
Ef þú værir fugl hvers konar fugl værir þú ?
Þú værir ekki farfugl eða hvað ?
JR (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 21:17
Takk Árni.
Nei JR. Ekki farfugl eins og þú! Myndi aldrei yfirgefa Ísland eins og þið
ESB-sinnanir!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.11.2009 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.