Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Jóhanna undirbýr hatrömm pólitísk átök !


   Á erfiðleikatímum er hverri þjóð nauðsynlegt að standa saman,
og að sterkur leiðtogi og ábyrg þjóðholl pólitísk öfl leði þjóðina,
eins og Íslendinga í dag, upp úr öldudalnum til sigurs. Hvorugt
mun gerast undir stjórn og forystu Jóhönnu Sigurðardóttir for-
sætisráðherra, og forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar í kom-
andi kosningum.  - Þvert á móti mun Jóhanna og flokkur hennar
efna til mikilla pólitískra átaka eftir kosningar, ef hún og flokkur
hennar fái til þess styrk. - Því er afar mikilvægt að áform Jóhönnu
nái ekki fram að ganga, því þjóðin þarf á allt öðru að halda  en
pólitiskri Sturlungaöld á næstu misserum.

   Jóhanna Sigurðardóttir er afar lævís stjórnmálamður sem margir
átta sig ekki á. Eitt af lævísustu áformum hennar FYRIR kosningar
er að gera þá breytingu á stjórnarskránni, að auðvelt verði að sækja
um aðild að Evrópusambandinu, með tilheyrandi fullveldisafsali.  En
Evrópumálin eru ein mestu pólitísku hitamálin frá lýðveldisstofnun.
Þannig ætlar Jóhanna Sigurðardóttir  að  efna til  mikilla  hatrammra
pólitískra átaka bæði fyrir og eftir kosningar. Sundra þjóðinni  í tvær
mjög andstæðar fylkingar, er berjist nánast á banaspjótum. Jóhanna
er því í raun mjög lævís og hættulegur stjórnmálamaður, sem stefnir í
að kveikja  þá pólitísku elda, sem enginn mun sjá fyrir endann á.

   Því er afar mikilvægt að öll þjóðleg öfl haldi vöku sinni og samstöðu.
Og berjist hart gegn hinu óþjóðlegu ráðabruggi Jóhönnu Sigurðar-
dóttir og hennar landssöluliði.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband