Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
Stórt áfall fyrir ríkisstjórnina !
28.11.2010 | 16:55
Hin litla þátttaka í kosningunum til stjórnlagaþings er stórt
áfall fyrir ríkisstjórnina. Sérstaklega forsætisráðherra, en aðal
tilgangur stjórnlagaþings átti að vera skv. ráðabruggi Jóhönnu
og hennar ESB-liði, að úthýsa fullveldisákvæðum hennar svo
Ísland geti gengið í ESB. Nú hefur fyrirhugað stjórnlagaþing
misst alla vigt vegna litillar kosningaþátttöku, og alveg sér-
staklega fyrir Jóhönnu og ESB-liðið, ef yfirlýsir ESB-andstæðingar
ná þar meirihluta. En það var eingöngu vegna þess sem sá er
þetta skrifar fór og kaus. -
Stjórnlagaþingskosningarnar voru afar illa skipulagðar, fóru
fram á kotvitlausum tíma með allt of litlum fyrirvara. Auk þess
allt of kostnaðarsamar eins og fjármálum þjóðarinnar er nú
háttað!
Enn eitt klúður vinstristjórnar Jóhönnu og Steingríms!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Verjum fullveldið! Verjum íslensku stjórnarskrána!
27.11.2010 | 09:22
Hvet ALLA þjóðfrelsis-og fullveldissinna til að fjölmenna
á kjörstað og kjósa SITT FÓLK á stjórnlagaþing. Til VARNAR
FULLVELDINU og STJÓRNARSKRÁ ÍSLANDS! Því ef Ísland
gerist aðili að ESB verður íslenska stjórnarskráin marklaust
plagg! Víkur fyrir þeirri í Brussel!
Því er afar mikilvægt að ALLIR þjóðfrelsis- og fullveldissinnar
grandskoði hvern frambjóðenda til stjórnlagaþings, áður en
honum er greitt atkvæði!
ÁFRAM FULLVALDA ÍSLAND! ÁFRAM ÍSLENSK STJÓRNARSKRÁ!
Kosning hófst almennt kl. 9 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þjóðin treystir á forsetann gegn Icesave-þjóðsvikunum
26.11.2010 | 13:36
Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti átti hrós skilið að
taka fram fyrir hendur hins andþjóðlega meirihluta Alþings
í Icesave-þjóðsvikunum s.l vetur, og vísa þeim í dóm þjóð-
arinnar. Enn eru Icesave-þjóðsvikararnir farnir á kreik og
stefna að öðrum Icesave-þjóðsvikasamningi, í von um að
hinn sami óþjóðholli meirihluti Alþingis samþykki hann.
En nú hefur hinn þjóðholli forseti Íslands talað. Lokaorðið
á að vera hjá þjóðinni. Þjóðin á að segja til um hvort hún
samþykkir ólögvarðar kröfur nýlenduvelda ESB vegna glæpa
útrásarmafíuósa, sem sjálft regluverk ESB segir íslenzka ríkið
BERI EKKI AÐ GREIÐA. Þannig fær þjóðin tækifæri til að kolfella
í annað sinn þjóðsvikin aftur, voga stjórnvöld sér til að bera
svikin á borð aftur.
Í kjölfarið, a.m.k þegar nýtt þing hefur verið kosið, yrðu öllum
þeim þjóðsvikurum, sem Icesace vildu samþykkja, kærðir fyrir
Landsdóm. Þar fremstir færu forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra............
Lokaorðið hjá kjósendum segir forseti Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Öfga-alþjóðahyggja vinstrimennskunar ógnar innnlendri velferð!
25.11.2010 | 00:20
Meiriháttar niðurskurður í velferðarkeflinu, þar sem aldraðir,
öryrkjar og sjúkir verða fyrir mesta áfallinu, byggist á hinni
alræmdu öfga-alþjóðahyggju vinstrimennsku stjórnarflokk-
anna. Því á sama tíma sem milljörðum á milljörðum ofan er
ausið í eindæmis ESB-rugl og kjaftæði, og til greiðslu í
ölmususjóði ESB án kvaða þar um, og þróunarsjóði út og
suður erlendis, sem litlu skila, auk þess sem ríkisstjórnin
rembist eins og rjúpa við staur að koma hátt í hundarð mill-
jarða á þjóðina vegna Icasave kúgunarkrafna ESB-nýlendu-
velda, SEM ALLS EKKI BER AÐ GREIÐA LÖGUM SAMKVÆMT,
er ráðist af meiriháttar grimmd og hörku á íslenzka velferð.
Já, VINSTRIMENNSKAN Í HNOTSKURN!
Á sama tíma og gengið er botnlaust erinda fjárplógsafla,
og útrásarmafíuósarnir ganga enn lausir, er EKKERT gert
fyrir skuldastöðu heimila sem máli skiptir. Í einu og öllu er
farið eftir þjóðfjandsamlegri efnahagsráðgjöf AGS ÞVERT
á íslenzkan raunveruleika og hagsmuni. Enda í anda vinstri-
mennskunnar að gera sem flesta öreiga, skapa sem mesta
eymd og fátækt, sbr. Icesave.
Já, VINSTRIMENNSKAN Í HNOTSKURN!
Og til að kóróna aðförina að þjóðinni er gerð grófasta til-
raun frá lýðveldisstofnun til að færa þjóðina á ný undir
ERLEND YFIRRÁÐ frá lýðveldisstofnun. En með ESB-aðild
mun þjóðin endalega glata fullveldi sínu og sjálfstæði, og
yfirráðum yfir sínum helstu auðlindum.
Já, VINSTRIMENNSKAN Í HNOTSKURN!
HIN ÞJÓÐFJANDSAMA VINSTRIMENNSKA!
Uppsagnir og rúmum fækkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fríverzlun við Rússa mikilvægt mótvægi gegn ESB-aðild
23.11.2010 | 21:17
Fagna ber ákvörðun utanríkisráðherra að vilja hefja viðræður
við vini okkar Rússa um fríverzlunarsamning. Því slíkur samningur
mun enn styrkja Ísland við að standa utan ESB. Auk þess að
staðsetja okkur enn frekar í hópi þjóða á norðurslóðum sem
ætla að gæta hinna miklu hagsmuna sinna þar í framtíðinni.
Þetta er kannski fyrsta sterka vísbendingin um að utanríkis-
ráðherra er loks að átta sig á að aðild Íslands að ESB eru
draumórar. Bæði vegna þess að þjóðin er alfarið á móti aðild
að ESB, og sú staðreynd að ESB er í raun á brauðfótum með
evrusvæðið í upplausn.
Fríverslun rædd við Rússa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Furðulegt eilíft vinstradaður Sjálfstæðisflokksins !
23.11.2010 | 00:23
Ekki ómerkari sjálfstæðismaður en Styrmir Gunnarsson veltur
þeirri spurningu upp á evrovaktin.is hvort ekki sé hægt að
byggja upp traust milli Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna? Svo
óheppilega vill til að þessari spurningu er varpað fram nær á
sama tíma og einn þingmanna Vinstri grænna upplifir flokk sinn
sem kommúnistaflokk. Enn oftar en ekki hefur einmitt Sjálfstæðis-
flokkurinn unnið til vinstri, einkum með sósíaldemókrötum, með
skelfilegum afleiðingum. Og nú vill viss kjarni innan Sjálfstæðis-
flokksins bæta um betur, og vinna enn lengra til vinstri, og það
með sjálfum kommúnistum.
Er að furða að fjölmargir borgarasinnaðir kjósendur og þjóð-
hollir hægrisinnar séu ráðvilltir gagnvart þessu furðufyrirbæri
Sjálfstæðisflokkur? Sem raunar setti þjóðina á hausinn vegna
yfirgengilegs aulaháttar, agaleysis og umfram allt stjórnleysi.
Í nánu samstarfi við vinstriöflin og miðjumoðið í íslenzkum
stjórnmálum.
Og enn kalla virðulegir sjálfstæðismenn til vinstrasamstarfs.
Meir að segja til alræmda kommúnista, sem standa að mestu
aðför að fullveldi og sjálfstæði Íslands sbr. ESB-umsókn, og
vítaverðri árás á lífskjör almennings til tuga ára, sbr.. Icesave,
ofan á allt hrunið af mannavöldum í stjórnartíð Sjálfstæðis-
flokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur gjörsamlega brugðist sem hið
öfluga þjóðholla hægraafl í þágu almennings á Íslandi. Meir
að segja er haldið uppi skrípaleik trúða í borgarstjórn Reykja-
vikur í boði forseta borgarstjórnar úr röðum Sjálfstæðisflokk-
sins!!!!!!
Nýtt ALVÖRU þjóðhollt hægrisinnað stjórnmálaafl er því frum-
forsenda þess að nýtt öflugt Ísland rísi með þjóð er hafi óbil-
andi trú á íslenzka framtíð. OG SÉ HVÖTT TIL ÞESS! Hvort það
verða HÆGRI GRÆNIR eða aðrir, á eftir að koma í ljós, en samt
vel þess virði að framfarasinnaðir þjóðhollir hægrimenn líti nú
til þeirrar áttar....
Tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.....
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Grafarþögn Framsóknar um Evrópumálin
22.11.2010 | 20:44
Mesta athygli vakti á miðstjórnarfundi Framsóknar s.l. helgi
algjör grafarþögn um Evrópumál. Einu umdeildasta pólitíska
máli lýðveldisins. Og það svo, að einn þingmanna Framsóknar
læddist út af fundinum og kvartaði við fjölmiðla að flokkurinn
hefði enga stefnu í Evrópumálum.
Ekki að furða að Framsókn mælist lítið í skoðanakönnunum.
Flokkur sem hefur enga stefnu og því síður þjóðlega sýn í
einu stærsta sjálfstæðismáli Íslendinga, fyrr og síðar, á ekkert
lengur erindi við þjóðina. Öll þjóðhyggju-ímynd Framsóknar er
horfin, og fylgið með.
Á sömu helgi heldu kommúnistarnir í Vinstri grænum líka fund.
Á þeirra flokksráðsfundi var þó Evrópumálin rædd, og komist
að þeirri endanlegri niðurstöðu, að Vinstri grænir væru ESB-
flokkur. Aðildarumsókninni og ferðinni til Brussel skyldi haldið
áfram.
Spurning hvenær Vinstri grænir sækja um aðild að Samfylk-
ingunni?
Þingmaður Vinstri grænna líkir flokknum við kommúnistaflokk
21.11.2010 | 16:26
Sjálfur hefur sá er þetta skrifar margoft líkt Vinstri grænum
við kommúnistaflokk. Enda forverar þeirrar alræmdir kommún-
istar! En nú hefur einn af þingmönnum VG stígið fram og seg-
ist upplífa Vinstri græna sem kommúnistaflokk. eftir flokksráðs-
fund VG um helgina.
Vert er að óska Lilju Mósesdóttir þingmanni VG til hamingju
með að hafa uppgötvað kommúnistanna í Vinstri grænum. Sem
hugsa fyrst og síðast um ráðherrastóla sína og völd fremur en
hag okkar almennings, og því síður þjóðfrelsi og þjóðarhagsmuni,
sbr. Icesave-þjóðsvikin, og fullveldis- og þjóðfrelsissvikin með ESB-
umsókninni.
Vonandi að Lilja haldi áfram á sömu braut og yfirgefi vinstri-
mennskuna fyrir fullt og allt. Enda algjör tímaskekkja í dag í
upphafi 21 aldar, enda virkileg þjóðfjandsamleg hverri þjóð,
eins og ótal dæmi sanna á Íslandi í dag!
Líkjast kommúnistaflokkunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Vinstri grænir 100 % flokkur ESB-sinna !
20.11.2010 | 13:38
Auðvitað feldi kommúnistakjarninn í Vinstri grænum tillögu
um að hætta ESB-ferlinu! Hvað annað? Flokkurinn sem kom
sjálfu ESB-umsókninni og ESB-ferlinu af stað. Í náinni sam-
vinnu við hina öfga-aljóðasinnaða vini sína, sósíaldemókrata.
Við hverju öðru mátti búast úr herbúðum kommúnista? Sem
ALDREI hafa verið treystandi í þjóðfrelsis-og fullveldismálum.
Enda hatur þeirra á öllu er telst til þjóðlegra viðhorfa og gilda
alþekkt. Sem nú kristallast einmitt í aðför þeirra að fullveldi og
sjálfstæði Íslands með ESB-aðildarumsókninni og ICESAVE
þjóðsvikunum, sem beintengd eru aðild Íslands að ESB.
Þarf lengur vitnanna við ?
ÁFRAM ÍSLAND. EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESANE né AGS!
tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.
ESB tillaga felld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Auðvitað munu Vinstri grænir áframtryggja ESB-ferlið sitt!
19.11.2010 | 21:05
Auðvitað segist kommúnistaleiðtoginn Steingrímur J. vera
bjartsýnn á að sátt verði meðal sinna félaga að ESB-ferlið
haldi áfram. Þó það nú væri! Sjálfir lykilgerendur í því að
Brussel-lest þeirra og sósíaldemókrata fór loks af stað!!
Að blautustu draumar ESB-sinna rættust.
Og ekki sakar að allt þetta gerðist undir TÆRRI TÆRRI
VINSTRISTJÓRN. Hinni alsönnu og algóðu vinstrisinnaðri
alþjóðahyggju. Já í sameiginlegu bræðrabandi sósíalista og
sósíaldemókrata í fyrstu hreinræktuðu vinstristjórn á Íslandi. -
Þvílíkur heiður! Þvílíkt stolt!
Þvílík vinstrimennska í hnotskurn!
Bjartsýnn á að sátt náist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |