Bloggfærslur mánaðarins, september 2010

Einn komminn í viðbót !


   Ekkert breytist við breytta ráherraskipan í vinstristjórninni
í dag annað en það, að enn einn kommúnistinn bætist þar í
hópinn. Sama afturhaldið og sömu hin andþjóðlegu viðhorf
munu halda áfram að grassera, hér eftir sem hingað til.  Þá
verður unnið  að kappi að aðlögun Íslands að ESB. Icesave-
skuldaklafa útrásarmafíuósa verður reynt að þröngva upp á
þjóðina að kröfu nýlenduveldanna í ESB. Til að fá gott veður
inn í ESB með tilheyrandi fullveldisafsali og atlögu að íslenzku
þjóðfrelsi. Og áfram mun EKKERT gerast í atvinnumálum vegna
umhverfisöfga Vinstri grænna. Enda nærist vinstrimennska
ætíð á eymd, fátækt og volæði.  

   Nei. ENGAR heillaóskir til þessarar ömurlegu óþjóðhollu
vinstristjórnar Jóhönnu og Co!   Bara BURT MEÐ HANA! STRAX!

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Hrein pólitísk vinstristjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Máttlaus stjórnarandstaða. Þörf á nýjum hægriflokki !


   Skv. nýjustu skoðanakönnun þjóðarpúlsi Gallups stendur
stjórnarandstaðan í stað. Þrátt fyrir ömurlegustu ríkisstjórn
frá upphafi. Sem hlýtur að vera mikill áfellisdómur yfir stjórn-
arandstöðunni.

   Þetta hlýtur að valda öllum þjóðhollum borgarasinnuðum
kjósendum áhyggjum. Ekki síst þegar horft er upp á upp-
lausnina í þjóðfélaginu, agaleysið, stjórnleysið, og að enn
skuli stjórnsýslan spillt og máttlaus. Þá ganga útrásarmafíu-
ósanir enn lausir, og eru ekki bara verðlaunaðir með fleiri
hundruð milljörðum í afskriftum í bankakerfinu. Heldur skal
þjóðin  greiða Icesave-glæp þeirra líka að mati stjórnvalda,
til að þóknast nýlenduþjóðunum í ESB. En aðförin að full-
veldi og sjálfstæði Íslands hefur aldrei verið eins mikil  og
nú. Studd að hinni andþjóðlegri vinstristjórn kommúnista
og sósíaldemókrata! - En þrátt fyrir þetta skal  stjórnar-
andstaðan á engan hátt sækja í sig veðrið. Virðist algjör-
lega máttlaus og veikburða. Með eindæmum!

   En hvernig á annað að vera? -  Trúverðugleikinn á Sjálf-
stæðisflokknum  bar mikla hnekki við bankahrunið. Ímynd
hans er því stórlöskuð, og það mun taka hann mörg ár að
bæta það, ef það tekst nokkurn tímann. Framsókn virðist
steingeld á miðjunni, virðist ekki vita hvort hún sé að koma
eða fara. Og báðir virðast flokkarnir klofnir í stærsta póli-
tíska hitamáli lýðveldisins í dag, Evrópumálum. Sbr. út-
tekt  DV í gær á blindum ESB-sinnum innan þingflokka
þessara  beggja  mið/hægri flokka. 

   Því er þörfin á nýjum borgaralegum flokki á þjóðlegum
grunni orðin afar brýn. Hér skal því enn og aftur vakin
athygli á hinum nýstofnaða flokki HÆGRI GRÆNUM. En
hann var stofnaður 17 júní s.l og kominn með á annað
þúsund félagsmenn á þessum stutta tíma.

  Þörfin á  FLOKKI ER BERST FYRIR HAGSMUNI LANDS OG
ÞJÓÐAR, ÞJÓÐFRELSI, EN GEGN HVERSKINS SPILLINGU,
AGALEYSI OG STJÓRNLEYSI, er það sem þjóðin þarfnast
í dag. FLOKK er HVETUR ÞJÓÐINA TIL DÁÐA og BJARTSÝNI
Á ÍSLENZKA FRAMTÍÐ!

  ÁFRAM ÍSLAND!
mbl.is 16% myndu skila auðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virkar lýðræðið ekki lengur í ESB-ríkinu Svíþjóð?


    Formaður Danska þjóðarflokksins Pia Kjærsgaard hyggst
kæra framkvæmd þingkosninganna í Svíþjóð til ÖSE, Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu. Þar sem hinn hægrisinnaði
Sverigedemokraterne séu beittir ritskoðun. En þingkosning-
arnar í Svíþjóð eiga að fara fram 19 sept.nk. RÚV.greinir frá.

   Formaður Danska þjóðarflokksins segir að sænsk skoðana-
systkin sín fái ekki að tjá sig sem skyldi í kosningunum eins
og hennar áhrifamikli flokkur í Danmerkur fær að gera.

   Hér skal ekki lagður neinn dómur á þennan sænska flokk.
Sjálfur er sá sem þetta ritar ÞJÓÐFRELSISSINNI, og óskar
ÖLLUM þjóðum ÞJÓÐFRELSI, og lítur á alla kynþætti á jafn-
réttisgrundvelli. Hins vegar veldur svona frétt óhug hvað
lýðræðið varðar. Ekki síst þar sem þetta er ESB-ríki. Því svo
virðist að ÖLL öfgaöfl til vinstri fái blessun innan ESB. Ekki
síst séu þau gagntekin af alþjóðlegri öfgahyggju. Rasisma
gegn eigin þjóðum.  Enda gengur ESB-hugsjónin út á að
hefta þjóðfrelsi þjóða  sem mest undir miðstýringarkúgun-
inna í Brussel.


   ÁFRAM FRJÁLS ÍSLAND!  ÞJÓÐFRELSI OG LÝÐRÆÐI  TIL
HANDA Ö L L U M ÞJÓÐUM HEIMS ÁN TILLITS TIL ÞJÓÐERNIS
EÐA KYNÞÁTTAR!   

  

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband