Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011
HÆGRI GRÆNIR: N E I VIÐ ICESAVE!
15.3.2011 | 17:46
Formaður Hægri grænna, Guðmundur Franklín Jónsson,
skrifar mjög góða grein í MBL. í dag um Icesave. Þar
hafnar hann algjörlega Icesave 111 á ótal forsendum.
Hér er um mjög ábyrga borgaralega afstöðu að ræða
með tilliti til þjóðarhagsmuna.- Sannkölluð þjóðholl
borgaraleg afstaða í einu mesta pólitíska hitamáli lýð-
veldisins.
Gagnstætt þessu var eins ömurlegt að hlusta á for-
mann Sjálfstæðisflokksins í þættinum á Sprengisandi á
Bylgjunni s.l sunnudag. Verja Icesave-svikin eins og
sannkallaður sósíaldemókrati á leiðinni í ESB.
Umhugsunarvert fyrir allt borgarasinnað þjóðhyggju-
fólk.
tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.....
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eru Icesave-sinnar þjóðfjandsamlegt fólk?
15.3.2011 | 00:12
Ekki skrítið þótt spurt sé. Að vilja að þjóðin greiði
himinháar skuldir glæpamanna, án þess að glæpurinn
sé rannsakaður, og því síður að glæpamennirnir sjálfir
hafi þurft að svara til saka, er svo absúrd leikhús fár-
ánleikans, að ekki fá orð lýst!!!!
Vitandi auk þess það, að fjárhæðirnar gætu reynst
svo stjarnfræðilegar, að ekki einasti möguleiki væri
fyrir hina fámennu íslenzku þjóð að rísa undir þeim.
Nema þá með meiriháttar lífskjaraskerðingu langt
umfram það sem orðið er, langt fram eftir öldinni.
Hafandi einnig þá staðreynd frammi fyrir sér, að
krafa hinna óvinveittu nýlenduvelda er án neinna
lagastoða, er myndi auðveldlega vinnast fyrir ís-
lenzkum dómstólum. Kæmi til þess.
Já. Því á sú spurning fyllilega rétt á sér hvort þeir
sem vilja að þjóðin greiði skuldir stórglæpamanna,
er þýddi stórskerðingu á lífskjörum almennings á Ís-
landi næstu áratugi, séu ekki þjóðfjandsamlegt fólk?
Því ENGIN KVÖÐ, og því síður lagaleg og ALLRA SÍST
siðferðisleg rök mælir svo um að slíkt verði gert.
Á Íslandi býr langflest þjóðhollt þjóðhyggjufólk.
Þess vegna mun þjóðin kolfella Icesave 9 apríl n.k.
Upphaf uppgjörsins mikla gegn hrunglæpalýðnum!
Kominn tími til!!!!!!!!!!!!
Hlutlaust kynningarefni verði útbúið um Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9 apríl tækifæri uppgjörs og mótmæla !
14.3.2011 | 00:14
Það er alveg ljóst að í þjóðaratkvæðagreiðslunni 9 apríl
n.k gefst þjóðinni einstakt tækifæri til allsherjar uppgjörs.
Uppgjörs gagnvart þeim sem ollu mesta efnahagshruni
Íslandssögunar, og sem nær alfarið lenti á almenningi,
sem kom þar hvergi nærri. Bankamönnum, stjórnmála-
mönnum, embættismönnum, að ógleymdum öllum útrásar-
mafíuósunum, er enn ganga lausir, gefst þjóðinni nú loks
kærkomið tækifæri til að ganga til uppgjörs við. Og ekki síst
þeirra sem eftir hrun brugðust svo þjóðinni algjörlega, að
ástand mála er enn eins skelfilegt eins og raun ber vitni.
Öllu þessu liði þarf og VERÐUR þjóðin nú að refsa með
AFGERANDI HÆTTI með því að segja STÓRT N E I við
Icesave-svikunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 9 apríl
n.k. Með því EINA MÓTI ver hún þjóðarheiður sinn og sjálfs-
virðingu, ekki síst gagnvart umheiminum, og sendir þangað
skýr skilaboð og verðugt fordæmi, sem eftir verður tekið.
JÁ! VIÐ ERU ÞJÓÐ, SEM LÁTUM ENGAN KÚGA OKKUR!
ÁFRAM ÍSLAND!
Ömurlegt! Bjarni Ben ver Icesave á Sprengisandi!
13.3.2011 | 16:06
Það var vægast sagt ömurlegt að hlusta á formann
Sjálfstæðisflokksins í þættinum á Sprengisandi í dag
verja Icesave-svikin. Alveg hreint með ólíkindum að
svona maður með slíkar þjóðfjandsamlega afstöðu
skuli nú leiða Sjálfstæðisflokkinn . Enda kætast nú
vinstriöflin mjög, og ekki síst ESB-sinnar, en Icesave
er nú helsta hindrunin í aðlögunarferlinu að ESB. Auk
þess mun hin andþjóðlega vinstristjórn falla með NEI
við Icesave!
Því er eins og formaður Sjálfstæðisflokksins vilji verja
vinstristjórnina falli alveg fram í rauðan dauðann. Sem er
enn sönnun þess hversu sterkur hinn sósíaldemókrata-
íski armur flokksins er orðin undir forystu Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttir.
Ótrúleg þessi Icesave-manntýpa
13.3.2011 | 00:24
Já hún er ótrúleg þessi Icesave-sinnaða manntýpa!!!
Er hyggst vakna snemma þann 9 apríl n .k í misjöfnu
verði. Ræsa bílinn sinn og aka honum ómælda km. fram
og til baka á kjörstað, á rándýru bensíni, bara til að setja
X-já við Icesave. Já pælið í þessu. Já við stórskuld sem
viðkomandi skuldar ALLS EKKI, og því síður þjóðin. Já við
ólögvarinni KRÖFU óvinveittra nýlenduvelda er glæpamenn
skópu, og sem samtímis breytist í lögvarða SULD. Og það
án þess að glæpurinn sé á nokkurn hátt rannsakaður, og
því síður að glæpamafíuósarnir séu handteknir og látnir
svara til saka. Reikningurinn sendur bara sísvona á kjós-
endur, - skattgreiðendur. Óútfylltur vixill til framtíðar. Hang-
andi yfir Icesave-sinnanum og þjóðinni næstu áratugi.
Já Icesave-sinnum, sem þó virðast alls ekki tilbúnir til að
greiða skuldir annara í einkalífinu. Skrítið!
Já hún er ótrúleg þessi Icesave-sinnaða manntýpa er
hyggst vakna upp grjótsyfjuð að morgni þess 9 apríl til
að geta sett sitt STÓRA JÁ við Icesave með bros á vör.
Vitandi um áhættuna að rústa íslenzku velferðarkerfi til
frambúðar. Og veitt þar með nýlenduveldunum Bretum
og Hollendingum ALGJÖRT sjálfdæmi í Icesave. Því í dag
verða þeir að lúta íslenzkum dómsstólum, en eftir JÁ-ið
erlendum gerðardómi, er alfarið mun lúta vilja Breta og
Hollendinga, sem ekki verður hægt að vísa til æðra dóms-
stígs.
En ótrúlegust er þó sú Icesave-sinnaða manntýpa ef hún
segist vera bæði á móti hinni vonlausri ríkisstjórn og ESB-
aðild, en ætlar samt að samþykkja Icesave. Því falli Icesave
þann 9 apríl n.k fellur bæði ríkisstjórnin og ESB-aðildarum-
sóknin. Já, þessi Icesave-manntýpa og hennar furðulegu
sálarkomplexar eru með ÖLLU óskiljanlegir. GJÖRSAMLEGA!
Algjört absúrd fyrirbæri!!!!!
Skýrt dæmi um fullveldisafsalið innan ESB
12.3.2011 | 13:43
Deilan um makrílveiðarnar innan ÍSLENSKRAR fiskiveiðilögsögu
er bara eitt dæmi en samt stórt um hversu fullveldisafsal þjóða
er mikið innan ESB. Sem fer dag vaxandi. Ekki einu sinni sjálfir
Bretar fyrir hönd Skota koma nálægt samningarviðræðunum um
makrílveiðarnar á norður Atlantshafi. Þar sem Skotar hafa mikla
hagsmuni að gæta. Nei. ESB fer með fullveldisrétt Breta og sam-
ningahagsmuni Skota. Í ÖLLU ER VARÐAR FISKVEIÐAR! ÖLLU!
Og inn í þetta Sambandsríki Evrópu ætla hérlendir ESB-sinnar
að troða Íslandi, með tilheyrandi stórkostlegu fullveldisafsali.
Geta slíkir tallist sannir Íslendingar?
Er nokkuð skrítið þótt spurt sé?
Skotar reiðir Íslendingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bankamafían enn á fullu ! Lifi byltingin 9 apríl!
8.3.2011 | 00:12
Svo virðist sem bankamafían sé enn á fullu.
Sjálftökuliðið eins og fyrir hrun. Lítið sem ekkert
hefur breyst. Gjörsamlega úr sambandi við það
sem gerðist. Gjörsamlega úr sambandi við það
hrunþjóðfélag sem það skóp. Gjörsamlega úr
sambandi við fólkið í landinu, sem nú á að gjalda
fyrir eitt af stærstu bankahruni heimssögunar.
Já bankamafían á Íslandi er enn á fullu. Enda
hefur ekki þurft að svara til saka fyrir glæpi sína
allt frá hruni. Sem er æpandi skandall, sem vekur
athygli um heimsbyggð alla. Icesave-glæpurinn
ekki einu sinni rannsakaður, hvað þá að þeir
seku séu látnir þar svara til saka. En þjóðin skal
kúguð til að greiða glæpinn, þótt það kosti hana
stórkostlegt skuldafangelsi fram eftir öldinni, með
tilheyrandi eymd og fátækt. Glæp, sem hún framdi
ALLS EKKI! Glæp sem þjóðinni er svo GJÖRSAMLEGA
ÓVIÐKOMANDI!
Mikið ROSALEGA verður gott að rísa upp gegn mafíu-
inni á Íslandi 9 apríl n.k og byrja á því að segja STÓRT
N E I við Icesave! Upphaf þjóðhyggjubyltingarinnar
gegn spillingu og andþjóðlegri glæpastarfsemi á Íslandi!
LIFI BYLTINGIN 9 APRÍL! LIFI ÞÁ NÝTT ÍSLAND!
Ótrúlegar fréttir af launum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hræsni Jóns Bjarnasonar í Evrópumálum yfirgengileg!
7.3.2011 | 00:10
Á setningu Búnaðarþings í gær ítrekaði Jón Bjarnason
landbúnaðarráðherra andstöðu sína við inngöngu Íslands
í ESB. En yfir 92% íslenzkra bænda er andvíkur ESB-aðild
skv. nýlegri könnun.
Hver trúir slíkri yfirlýsingu Jóns Bjarnasonar? Sem bæði
á sæti í stjórnmálaflokki sem ber HÖFUÐ ÁBYRGÐ á að
ESB-umsóknin var lögð inn í Brussel, og sem auk þess
situr í ríkisstjórn sem vinnur nótt og dag að koma Íslandi
þangað inn?
Þess utan kom skýrt fram í ræðu Haraldar Benediktssonar
formanns Bændasamtaka Íslands, að íslenzk stjórnvöld
hafi þegar játast landbúnaðarstefni ESB þótt annað sé
sagt. Stjórnvöld vinni leynt og ljóst að aðlögun að hinni
sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB, þótt annað sé
gefið í skyn til heimabrúks. Sem getur þá ekki þýtt annað
en það að allt fari þetta fram með samþykki landbúnaðar-
ráðuneytis Jóns Bjarnasonar.
Í ljósi þessa er yfirlýsing Jóns Bjarnasonar í gær yfir-
gengileg hræsni. Sem er algjörlega í samræmi við hræsni
og blekkingar Vinstri grænna í Evrópumálum. Flokknum
sem hratt Evrópulestinni af stað, og sem ber 100% póli-
tíska ábyrgð á ESB-aðlögunarferlinu í dag.
Já, lengra verður vart komist í hinni pólitískri hræsni í
Evrópumálum! - Og er þá mikið sagt!
tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.......
Ítrekar andstöðu við ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stjórnlagaráð nú óráð ! ESB-aðildin ástæðan!
6.3.2011 | 00:22
Skipun stjórnlagaráðs er óráð. Tímasetning kolröng
við kolvitlausar aðstæður. Enda setti þjóðin frat í kosn-
ingarnar til stjórnlagaþings í vetur, með aðeins 36%
þátttöku. Auk þess hefur Hæstiréttur ógilt kosningarnar,
Endurskoðun stjórnarskrárinnar nú í miðjum aðildar-
viðræðum að ESB eru út í hött! Því gerist Ísland aðili
að ESB myndi íslenzka stjórnarskráin víkja fyrir stjórn-
arskrá ESB. Sú íslenzka yrði einungis til málamynda.
Þess vegna er það algjör tímasóun og sóun peninga
að kalla til endurskoðunar nú. Bara táknrænt fyrir AULA-
HÁTTINN í íslenzku stjórnkerfi í dag.
Hins vegar er allur flumbrugangurinn í þessu máli sá
að búa í haginn fyrir ESB-aðild Íslands. Útþynna þannig
fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar að fullveldisafsalið
mikla standist stjórnarskrá gerist Ísland aðili að ESB.
ÞVERT Á EINA AF MIKILVÆGUSTU ÁLYKTUN þjóðfundar í
vetur um að FULLVELDIÐ verði varið!
Fullveldisákvæðið er því AÐAL ÁSTÆÐA þess hversu
ESB-sinnar sækja fast um endurskoðun stjórnarskrár-
innar. Þeim í Brussel var lofað þeim breytingum á þessu
ári. Enda frumforsenda þess að Ísland geti gerst aðili
að ESB.
Þess vegna er FURÐULEGT að sumir ESB-andstæðingar
á Alþingi Íslendinga skuli enn ekki hafa áttað sig á sam-
henginu. Því endurskoðun stjórnarskrárinnar EINMITT
NÚNA er SAMOFIN ESB- aðildinni NÁKVÆMLEGA eins og
ICESAVE!
Svo einfalt er það!
Ófætt stjórnlagaráð klýfur flokkana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sósíaldemókratinn Bjarni Ben!
5.3.2011 | 00:27
Þau grundvallar sinnaskipti Bjarna Benediktssonar formanns
Sjálfstæðisflokksins í Icesave, benda eindregið til þess að hann
hafi endanlega gengið til liðs við hinn sósíaldemókratiska arm
Sjálfstæðisflokksins. Náin pólitísk tengsl hans og Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttir, fyrrv. varaformanns, sem farið hefur
fyrir hinum sósíaldemókratiska armi, hafa nú borið ávöxt.
FROSTRÓSINA ICESAVE. - Næsta ÍSKALDA MAT formannsins
verður svo það að Ísland verði best borgið innan ESB. Enda í
samræmi við orð hans fyrir kosningar, þar sem ESB-aðild væri
alls ekki útilokuð. Allra allra síst af pólitískum ástæðum.
Þorgerður Katrín átti aðal þáttinn í því að pólitísk eyðumerku-
ganga Samfylkingarinnar lauk, og mynduð var ríkisstjórn með
henni. Nú eftir endurkomu í pólitíkina og uppreisn æru innan
flokksins, hefur pólitísk staða Þorgerðar styrkst til muna. Það
að hafa unnið formanninn á sitt band í Icesave segir allt sem
segja þarf í þeim efnum. Enda hefur hinn sósíaldemókratiski
armur nú enn einu sinni orðið ofan á, en með afgerandi hætti
en oft áður. Sem birtist m.a í því að geta komist upp með það
að senda landsfundinum langt stórt R A U T T nef. Áttarvitinn
hefur nú augljóslega verið endurstilltur, með stefnuna á nýja
kratastjórn. Kratastjórn, með stefnuna til Brussel!!!!!
Allt þetta mun óhjákvæmilega leiða til pólitískrar uppstokkunar.
Uppgjörs. Ekki bara í Sjálfstæðisflokknum, heldur ekki síst á
hægri kanti íslenzkra stjórnmála. Þar sem fullveldissinnuð
þjóðhyggjuöfl munu sameinast í nýrri borgaralegri hreyfingu.
Íslandi og íslenzkri þjóð til heilla!
tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)