Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2011
Enn ein sósíaldemókrataísk þjóðarsvik
13.8.2011 | 00:36
Enn einu sinni ganga sósíaldemókratar fram fyrir skjöldu
í þjóðarsvikum. - Ekki bara í Icesave, og ESB-þjóðsvikum,
heldur nú í hvalamálum. Þannig var sósíaldemókratinn og
fyrrum kommúnisti Mörður Árnason, ekki bara tilbúinn að
samþykkja Svarvars-Icesave-drápsklyfjarnar ólögvörðu upp
á heila 700 milljarða til að fá gott veður inn hið gjörspillta
deyjandi ESB. - Heldur skal nú ekki hikað við að henda rétti
Íslendinga til hvalveiða til að þóknast sovéska miðstýringa-
veldinu í Brussel. ÖLLU SKAL FÓRNAÐ FYRIR AÐILD ÍSLANDS
AÐ ESB. Fullveldinu, sjálfstæðinu, auðlindunum! ÖLLU!
Þvílíkir öfgar! Þvílíkur rasískur hugsunarháttur gegn eigin
þjóð og hennar þjóðarrétti og hagsmunum!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB-AÐILD! EKKERT EES! EKKERT SCHENGEN!
![]() |
Gerir alvarlegar athugasemdir við framgöngu Marðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
ESB hefur grófa íhlutun í islenzk innanríkismál
12.8.2011 | 20:51
ESB er nú að hefja grófa íhlutin í íslenzk innanríkismál.
Með það að markmiði að innlíma Ísland inn í sitt gjörspillta,
deyjandi Sambandsríki Evrópu. Til þess hefur það fengið
hérlent kynningar-og markaðsfyrirtæki til að annast áróður
sinn. Fyrirtækið Athygli ætlar þannig að gerast einskonar
ESB-Pravda á Íslandi, eftir sovétskri áróðursfyrirmynd.
Í þetta ESB-trúboð á Íslandi hyggst ESB verja hvorki meir
né minna en 700.000 evrum á ári.
Hér er um að ræða VÍTAVERÐ AFSKIPTI ERLENDS STÓRRÍKIS
af innanríkismálum Íslands. Kapir innlendan aðila sem lepp
fyrir sínum pólitíska áróðri. Nákvæmlega eins og hinir sovésku
kommúnistar gerðu forðum með Þjóðviljann sáluga. Enda engin
tilviljun að þetta skuli gerast einmitt þegar kommúnistar sitja í
ríkisstjórn Íslands! Með dyggum stuðningi sósíaldemókrata
sem ólmir vilja innlima Ísland í hið nýja Miðstýringa- Sovét,
sem nú er nánast á brauðfótum og í upplausn.
Þjóðfrelsis- og þjóðhyggjumenn verða nú að bregðast við af
hörku! Slík VÍTAVERÐ AFSKIPTI ERLENDS STÓRRÍKIS af innan-
ríkismálum Íslands VERÐA ALLS EKKI LIÐIN! OG ALLRA SÍST
þegar markmiðið er hreint og klárt að binda enda á fullveldi
og sjálfstæði Íslands!
ÁFRAM ÍSLAND! ENGIN ESB-AÐILD, EKKERT EES og EKKERT SCHENGEN!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
64.5% Íslendinga andvígir ESB-aðild
11.8.2011 | 13:18
Hversu lengi á 35% andþjóðlegur sósíaldemókrataískur
minnihluti að halda 65% meirihluta Íslendinga í pólitískri
ESB-aðildar- gíslingu?- En skv. nýrri Gallupkönnun fyrir
Heimsýn er 65% Íslendinga algjörlega andvígur ESB-aðild
og fer ört vaxandi.
Hverskonar ofur-aula-kúgunar-stjórnarfar ríkir eiginlega
á Íslandi, þegar lítill hópur öfga-alþjóðahyggju sósíaldemó-
krata með dyggum stuðningi óþjóðhollra kommúnista tekst
að ná slíkum heljartökum á íslenzkri þjóð? Öfl sem bera
nær alla ábyrgð á bankahruninu með innleiðingu hins stór-
gallaða EES-samnings. Og sem vilja nú kóróna afglöpin
með því að troða Íslandi inn í hið GJÖRSPILLTA, DEYJANDI,
ESB-OFUR-AULASAMFÉLAG.
Hvernig má þetta vera? Augljóslega þurfa nú öll sönn
þjóðfrelsis- og þjóðhyggjuöfl að rísa upp og taka völd.
Það eitt virðist borðleggjandi í dag!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKERT ESB, EKKERT EES OG EKKERT SCHENGEN!
ESB! Úr ösku í eld!
3.8.2011 | 00:16
Stjórnmálalegur aulaháttur og efnahagskrísa hefur verið
og er enn á Íslandi. En horfi menn til ESB og evru þessa daga
er stjórnmálalegur aulaháttur, efnahagskrísa, spilling og stjórn-
leysi enn meira þar, og sem enginn sér fyrir endann á. Að ganga
í ESB og missa þar að auki fullveldið og yfirráð yfir okkar helstu
auðlindum, er því að fara úr ösku í eld!
Á Íslandi hefur skort í stjórnmálin íhaldssöm ráðdeildarsemi og
stjórnlyndi í þágu almennings og íslenzkra þjóðarhagsmuna. Sem
viðurkennir sérstöðu Íslands, fámenni þjóðarinnar, og sem leggur
höfuðáherslu á að ekki sé eytt um efni fram, að hagvöxtur byggist
á aukinni framleiðslu, og að þjóðin sníði sér ætíð stakk eftir vexti.
Undir slíkri íhaldssamri þjóðhyggjustjórn yrði gott að búa á Íslandi.
Undir slíkri íhaldssamri þjóðhyggjustjórn hefði efnahagshrunið árið
2008 ekki orðið. Enda ekkert EES-ofurrugl í gangi, sem passar
engan veginn fyrir ör-ríki eins og Ísland og þess litla hagkerfi.
OG ALLRA SÍST AÐILD AÐ ESB!!!!!!!
Burt með hið andþjóðlega sósíaldemókrataíska stjórnleysi og
aulahátt ! Áfram íhaldssöm þjóðhyggjuöfl, er vilja að Íslandi sé
STJÓRNAÐ í þágu lands og þjóðar!!!!!!!!!!
ÁFRAM ÍSLAND!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)