Bloggfærslur mánaðarins, júní 2012

Icesave-forysta Sjálstæðisflokksins svikur í Evrópumálum!

 
   Enn og aftur afhjúpar Icesave-forysta Sjálfstæðisflokksins
sitt sósíaldemókrataíska eðli! - Nú með því að samþykkja   að
Alþingi afgreiði IPA-mútustyrki ESB upp á 5 milljarða. En einmitt
stór hluti þessara styrkja VAR EINMITT AÐ FALLA Á TÍMA Í DAG
18 júní.  Það sama á við um Framsókn.

   Hér berskjaldar Sjálfstæðisflokkurinn  sig sem flokk sem ALLS
EKKI er hægt að treysta í Evrópumálum! Ekki frekar en í Icesave! 
Liggur HUNDFLATUR fyrir sósíaldemókrataískum vinum sínum í
Samfylkingunni í einni viðbjóðlegustu aðför ESB að fullveldi Íslands
með AÐLÖGUNARSTYRKUM að stjórnkerfi ESB!  Já HVERS VEGNA Í
ÓSKÖPUNUM var ekki hægt að tefja þetta stórmál fram á morgun-
daginn?  En þá  rann drjúgur þessara ESB-mútustyrkja út á tíma.

   Allt þjóðhollt borgarasinnað fólk hlýtur nú að sjá hversu ÖMUR-
LEGUR þessi Sjálfstæðisflokkur er. Stendur ekki einu sinni í lappir-
nar þegar fullveldis-og sjálfstæðismál þjóðarinnar eru annars
vegar.   

    HÆGRI GRÆNIR eru því FLOKKURINN Í DAG!  FLOKKUR FÓLKSINS!
FLOKKUR sem 100% er hægt að treysta í Evrópumálum. FLOKKUR
sem ekki mun leggjast hundflatur fyrir landssöluliði sósíaldemókrata
og kommúnista eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú gert!

    Hér með er skorað á ALLA þjóðholla íhaldssinna að koma til liðs
við HÆGRI GRÆNA!   

www.afram-island.is  www.xg.is

HÆGRI GRÆNIR: Svíkur Sjálfstæðisfl.í IPA-syrkjunum?


  Á heimasíðu HÆGRI GRÆNNA skrifar formaður flokksins,
Guðm.Franklín Jónsson eftirfarandi: ,,Drjúgur hluti IPA
mútufés (Evrópusambandsins) ESB fellur niður 18 júní.
Nú kemur í ljós hvort forysta Sjálfstæðisflokksins hefur
bein í nefinu til þess að draga málþófið fram á þriðjudag.
Ef ekki, þá vitum við um hug þeirra til ESB. Ef IPA betlis-
styrkirnir verða að veruleika í boði Sjálfstæðisflokksins
er forystan auðsjáanlega hliðholl inngöngu í ESB og
óhæf til þess að stjórna fullvalda og frjálsu ríki".

   Allt er þetta hárrétt hjá formanni HÆGRI GRÆNNA. Og
ekki bara það!  SÉRHVER ÞINGMAÐUR sem samþykkir
IPA styrkina eða situr hjá við afgreiðslu þeirra, er hreinn
og klár ESB sinni!  Því ENGINN andstæðingur ESB-aðildar
fer  að  samþykkja styrki  upp  á  5 milljarða til að aðlaga
Ísland stjórnkerfi ESB.  Og það löngu áður en svokallaður
samningur liggur fyrir!

   Afar fróðlegt verður að fylgjast með afgreiðslu þessa
máls. Hverjir ESB-sinnar koma út úr ESB-skápnum   og
hverjir ekki.  Hins vegar er stefna HÆGRI GRÆNNA 100%
heil og skýr!  Enda þjóðhollur flokkur á ferð!


   www.afram-island.is

Jóhanna! Jón Sigurðsson var Arnfirðingur !


   Um leið og vert er að óska Íslendingum til hamingju með
þjóðhátíðardag sinn 17 júní, er vert að minna Jóhönnu Sig.
er enn situr í embætti forsætisráðherra, að Jón Sigurðsson
þjóðfrelsishetja  Íslendinga   er  Arnfirðingur!  Fæddur  á
Hrafnseyri við Arnarfjörð 17 júní 1811. En Jóhanna sagði
hann Dýrfirðing í þjóðhátíðarræðu sinni 2010. (með fullri
virðingu minni fyrir Dýrfirðingum)

   Það að Jóhanna Sigurðardóttir skuli ekki hafa fæðingar-
stað þjóðfrelsishetju Íslendinga á hreinu á hins vegar ekki
að koma á óvart. Manneskjan sem vinnur nótt sem dag að
því að vinna gegn þjóðfrelsi Íslendinga og fullveldi, með því
að koma Íslandi undir erlend yfirráð valdhafanna í Brussel.
Hvað sem það kostar, sbr. Icesave!  ÞVERT Á ÞJÓÐFRELIS-
HUGSJÓNIR JÓNS SIGURÐSSONAR FORSETA!

   Það að þessi manneskja. Jóhanna Sig, skuli enn  halda
þjóðhátíðarræðu  við  Austurvöll  17  júní  er  meiriháttar
SKANDALL!  Sá skandall verður ALLS EKKI endurtekinn að
ári.

      Gleiðlegan 17 júní Íslendingar!  ÁFRAM ÍSLAND!

  

Árás sósíaldemókrata á 17 júní!


   Nú er hafin skipulögð herferð sósíaldemókrata á 17 júní,
þjóðhátíðardag Íslendinga, með  stuðningi  Gnarristanna í
Reykjavík. -  Engin kvöldskemmtun verður í Reykjavík á 17
júní í fyrsta skipti í áratugi.  RÚV greinir frá.

  Þarna er enn eitt dæmið um lítilsvirðingu sósíaldemókrata á
þjóðfrelsi og fullveldi Íslands, þjóðlegum viðhorfum Íslendinga
og gildum.

  Það að sjálfur 17 júní skuli nú vera orðinn helsta skotmark
landsöluliðsins í sjálfri höfuðborginni er MEÐ ÖLLU ÓLÍÐANDI!
En þetta er sami óþjóðalýðurinn sem gert hefur árás á kristin
gildi í skólum borgarinnar. Nú skal berja allt niður er höfðar
til íslenzkrar þjóðarvitundar í kjölfar þess að reynt er  að
troða Íslandi inn í hið gjörspillta deyjandi ESB. Hvað sem það
kostar. - ÞESSU ÞARF AÐ SVARA AF HÖRKU!

   Sem betur fer fara nú pólitísk átök mjög harðnandi  gegn
landsöluliði sósíaldemókrata, kommúnista og anarkista.
Í þeim átökum verður EKKERT gefið eftir!

    ÁFRAM FULLVALDA ÍSLAND!

    

Makrílsvik eins og Icesave-svik!


   Nú er í  undirbúningi  hjá  hinni  illræmdu  óþjóðhollu vinstristjórn
uppgjöf í makríldeilunni eins og í Icesave-deilunni.  Eins gott að á
Bessastöðum sitji áfram þjóðhollur forseti sem mun gripa fram fyrir
hendurnar  á því landssöluliði sem enn situr umboðslaust í stjórna-
ráði Íslands, þegar þjóðarsvik þeirra koma fram.

   Ljóst er að þjóðin VERÐUR með nú ÖLLUM ráðum að koma  hinu
sósíaldemókrataísku landsöluliði með stuðningi kommúnista frá
völdum þegar í stað.  Að frétt komi nú daginn fyrir þjóðhátíðardag
Íslendinga að Icesave-svikaliðið  ætli  líka  að  fórna  makrílveiðum
Íslendinga í sinni  EIGIN fiskveiðilögsögu, til að fá gott veður inn í 
hið deyjandi gjörspillta ESB, er kornið sem fyllir mælinn!! 

   BURT MEÐ LANDSÖLULIÐIÐ!  ÁFRAM FULLVALDA  ÍSLAND!
mbl.is Vilja lenda makríldeilunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri grænir heimta IPA-styrki! Gott að vera Hægri grænn!


   Nú liggur fyrir að eitt af forgangsmálum á óskalista
Vinstri grænna við þinglok eru IPA-styrkir ESB upp á
fimm-milljarða, svo að aðlögun Ísland að stjórnkerfi
ESB gangi fram. Frumforsenda ESB-aðildar! Og það
án þess að neinn samningur liggi fyrir og því síður
samþykki þjóðarinnar sem vill ESB-aðild ekki sjá!

  Með þessu hafa Vinstri grænir ENDANLEGA opin-
berað sig sem einlæga ESB-aðildarsinna eins  og
sósíaldemókratarnir í Samfylkingunni. ENGINN
MUNUR ÞAR Á!

   Þá á eftir að koma í ljós hversu margir sósíaldemó-
kratar annarra flokka munu styðja IPA-styrkina.

   Gott er að vera í þjóðhollum flokki. HÆGRI GRÆNIR, 
sem einn flokka hafnar ALFARIРESB-aðild, ESB-umsókn,
Schengen, IPA-styrkjum og vill endurskoðun á EES með
tvíhliða viðskiptasamning við ESB að leiðarljósi sbr. Sviss.

   www.xg.is  www.afram-island.is

Nú er þetta búið ESB-Þóra!


    Forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson nýtur
nú afgerandi fylgi. Með 58% fylgis skv. skoðanakönnun
Stöðvar 2 og Fréttablaðsins.  Meðan fulltrúi ESB-sinna
og sósíaldemókrata Þóra Arnórsdóttir hrapar í fylgi með
28%. - Gamli kommúnistinn Ari Trausti situr fastur með
sín 8% og aðrir komast varla á blað.

   Nú þegar aðeins 2  vikur eru til kosninga eru úrslitin
ráðin. FULLVELDIÐ sigrar ESB-sósíaldemókrataismann
með afgerandi hætti! Þó mega fullveldissinnar og aðrir
þjóðfrelsissinnar alls ekki láta deigan siga. Heldur  að
berjast af hörku fyrir sitjandi forseta fram á kjördag,
og senda þannig skýr skilaboð til Brussel og heimsins
alls að Íslendingar munu standa sterkan vörð um full-
veldi og sjálfstæði Íslands!  Bessastaðir verða ALDREI
stjórnað frá Brussel! 

   Já ESB-Þóra!  Þetta er búið!
mbl.is Ólafur Ragnar með 58%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfnum sósíaldemókrataisma Þóru! Verjum Bessastaði !


   Íslendingar eru komnir upp í kok af hinum óþjóðholla
sósíaldemókrataisma. Sem upphaflega dró lappirnar  í lýð-
veldistökunni 1944, og hefur allar götur síðan unnið gegn
fullveldinu og þjóðarhagsmunum Íslendinga.

   Hefðu sósíaldemókratar ráðið för hefði Ísland t.d aldrei
fært út sína fiskveiðilögsögu. Enda komu þeir því í kring að
Alþjóðadómstólinn í Hag hefði eftir 1961 úrskurðarvald um
frekari útfærslu ef Bretar og V-Þjóðverjar mótmæltu! Sem
síðar var sem betur fer hunsuð af þjóðhollum stjórnvöldum.

   Sósíaldemókratar hafa ALDREI tekið tillit til  íslenzkra
sérhagsmuna í erlendum samskiptum, og því síður til fá-
menni þjóðarinnar. EES-samningurinn er besta dæmi þess.
Án hans hefði t.d aldrei orðið bankahrun eða icesave! EES
er í besta falli fyrir milljónar þjóðir en ekki örþjóð eins og
Íslendinga.

   Grófasta altaga sósíaldemókrata að fullveldi og sjálf-
stæði Íslands er nú aðildarumsóknin að ESB með stuðningi
kommúnista.  ÖLLU er tilkostað til að sú aðild nái fram að
ganga þótt ESB og evra þess sé gjörsamlega á fallandi
fæti. BLIND öfgakennd alþjóðahyggja sósíaldemókrata
virðist engin takmörk sett!!!!

   Sósíaldemókrataisminn er þjóðhættuleg stjórnmálastefna
sem allt of lengi hefur fengið að grassera í íslenzkum stjórn-
málum. Jafnvel innan margra flokka. - Tími er því til kominn til
gagnsóknar!  Þannig mega Bessastaðir ekki undir nokkrum
kringumstæðum falla sósíaldemókrötum í skaut,  hafandi ESB-
umsókn og Icesave hangandi yfir þjóðinni.

   Einn hinna 6 forsetaframbjóðenda er yfirlýstur sósíaldemó-
krati frá blautu barnsbeini  og ESB-sinni. Þóra  Arnórsdóttir.
Þannig frambjóðandi með slík sósíaldemókrataísk viðhorf og
gildi hefur EKKERT á Bessastaði að gera. Þvert á móti ber að
verja Bessastaði fyrir slíku framboði. Því fullveldi Íslands  og
sjálfstæði er í húfi! 

    ÁFRAM FORSETA VOR HR. ÓLAF RAGNAR GRÍMSSON! 

    ÁFRAM FRJÁLST OG FULLVALDA ÍSLAND!  


ESB-trúboð Þóru með stuðningsmannamyndband!


   Til marks um þá miklu örvæntingu sem gripið hefur um sig
meðal ESB-trúboðsins kringum forsetaframboð Þóru Arnórs-
dóttir, er gerð stuðningsmannamyndbands, sem nú fer eins
og eldur í sinu um netið. Grunnstef þess er ,,sameinumst,
sameinumst, sameinumst".  Um hvað? Áframhaldandi sósíal-
demókrataisma með tilheyrandi vantrú á íslenzka framtíð ?

   Þá er einnig skiljanlegt að annað grunnstef myndbandsins
sé að horfa ekki til fortíðar.  En á ekki að fortíð að hyggja ef
framtíð skal byggja?  Og hvað er svona óþægilegt við fortíð
Þóru? Sterk tengsl hennar við hreyfingar sósíaldemókrata á
Íslandi? Og meiriháttar barátta Þóru við að koma Íslandi inn
í Evrópusambandið í félagsskapnum Evrópusamtökin? 

  Já greinilegt er að mikil örvænting og vonleysi er nú gripið
um sig í herbúðum ESB-Þóru.  Ekki síst þegar fortíð hennar
og ramm-pólitísk ferlisskrá liggur nú fyrir. En einmitt HÚN
segir ALLT um þennan frambjóðanda og fyrir hvað viðkom-
andi stendur!  Skrautkennt og nánast yfirspilað stuðnings-
mannamyndband BREYTIR ÞAR ENGU UM!

   Stríðið um Bessastaði stendur yfir. Annars vegar  milli  full-
veldissinnaðs forseta og íslenzkrar framtíðar,  eða fulltrúa
Brusselsvaldsins   og alþjóðasinnaðs sósíaldemókrata.

   Íslenzka valið er því auðvelt!  Hr.Ólafur Ragnar Grímsson!

   Svo einfalt er það!
  
 
mbl.is Lokað á stuðningsmyndband Þóru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þóra! Já þú ert ramm-ramm pólitísk!


    Það er með hreinum ólíkindum hvernig Þóra Arnórsdóttir
forsetaframbjóðandi,  skuli komast upp með það í hverju
viðtalinu á fætur öðru að vera ekki pólitísk. Nú síðast  á
Sprengisandi á Bylgjunni í gær. Því  í raun er hún  með
þeim alpólitísku sem eru í framboði í dag!

   Þannig hefur Þóra aðhyllst mjög sterka pólitíska grunn-
hugmyndarfræði frá blauti barnsbeini. Hinn alþjóasinnaða
sósíaldemókrataisma. Starfaði í ungliðahreyfingu sósíal-
demókrata um árabil  og var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn,
sem  nú  ber  nafnið  Samfylkingin. -  Þannig að hún er svo
sannarlega með sterkan pólitískan bakgrunn þegar þessa
er gætt. Og í ljósi þess FRÁLEITT að hún muni geta brúað
einher pólitísk bil og viðhorf. HELDUR ÞVERT Á MÓTI!

   Sem alþjóðasinnaður sósíaldemókrati og anti-þjóðfrelsis-
sinni gekk hún til liðs við Evrópusamtökin og sat í stjórn
þeirra. Samtök sem berjast gegn fullveldi og sjálfstæði
Íslands með því að innlima það inn í  Stórsambands-ríki
Evrópu, ESB. Hið pólitíska hugarfar Þóru til fullveldis- og
þjóðfrelsismála  liggur  því  fyrir, þótt  tækifærismennska
hennar NÚ setji upp tvær grímur gagnvart  hinu brenn-
andi ESB og upplausnarástandi þess í dag. Hræsni hennar 
þar er of augljós til að vera marktæk!

   Það að kjósa aljóðasinnaðan sósíaldemókrata sem forseta
í dag, hafandi ESB-aðildarumsókn hangandi yfir þjóðinni og
Icesave-drauginn líka, ásamt því að enn situr þjóðhættuleg
vinstristjórn, sem  vílar ekki  fyrir sér að  fórna  þjóðarhags-
munum, fullveldi  og sjálfstæði  þegar svo  ber  undir, sbr.
Icesave, hljóta ALLIR þjóðhollir kjósendur að  sjá og skilja
að gangi alls ekki upp!

    Komandi forsetakosningar eru því þær ramm-pólitísku
frá lýðveldisstofnun. Þar sem sjálft fullveldi Íslands og þjóð-
frelsi Íslendinga er í húfi!  ALLT ÍSLENZKT ÞJÓÐHYGGJUFÓLK
mun því enga áhættu taka og fylkja sér um hinn þjóðholla
forseta sinn, Herra Ólaf Ragnar Grímsson!

   ÁFRAM FORSETI VOR!  ÁFRAM ÍSLAND!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband