Blaðamannafélagið stjórnað af Vinstri grænum !
26.2.2010 | 21:24
Blaðamannafélagið virðist nú vera stjórnað úr herbúðum Vinstri
grænna. Allir muna þegar stjórn þess mótmælti harðlega þegar
ritstjóraskipti urðu á Morgunblaðinu í fyrra. Davíð Oddsson var
ráðinn í stað Ólafs Stephensen. Blaðamannafélagið reis þá upp
á afturfæturna og fór þar fremst Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, nú-
verandi formaður Blaðamannafélagsins og nú nýr ritstjóri vef-
málgagns Vinstri grænna, Smugan.is. Nú bregður svo við að
hvorki stuna né hósti heyrist frá Blaðamannafélagi Þóru, þótt
Jón Kaldal hafi verið rekinn sem ritstjóri Fréttablaðsins, en
Ólafur Stephensen fyrrv.ritstjóri Mbl. ráðinn í staðinn, og það án
auglýsinga. Þvert á móti skein gleðin í augu Þóru í kvöld í Kast-
ljósinu, en þar var sessunautur hennar enginn annar en Ólafur
Stephensen nýráðinn ritstjóri Fréttablaðsins. Enda voru þau
skötuhjú innilega sammála í Icesave-málinu, en sem öfga-ESB-
sinni vill Ólafur að Íslendingar hafi fyrir löngu samþykkt Icesave,
inngöngumiðann að ESB. Enda mun ráðning Ólafs vera liður í
því að styrkja áróðursherferð ESB og Evrópusinna á Íslandi fyrir
aðild Íslands að sambandinu. Nokkuð sem Vinstri grænum eins
og Þóru hugnast afar vel.
Múgæsingin sem greip um sig meðal róttæklinga til vinstri og
ESB- trúboðsins er Davíð var ráðinn ritstjóri var móðursýkisleg
í meira lagi. En sem betur fer hefur Mogginn það umfram Frétta-
blaðið, að honum er hægt að segja upp hvenær sem er. En
Fréttablaðið er nauðgað inn um dýralúguna hjá manni á hverjum
degi alfarið gegn vilja manns og ósk. ÞVÍLÍK SKOÐANAKÚGUN!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ekki fær ég skilið hvernig þú getur dregið Blaðamannafélag Íslands niður í þá lágkúru sem þú virðist þrífast í. Formaður félagsins sinnir sínum störfum óháð því sem félagið er að sýsla við hverju sinni. Fyrrverandi formaður félagsins er nú í vinnu hjá Viðskiptablaðinu og var á sínum tíma starfandi á Morgunblaðinu. Ég minnist þess ekki að hún eða Morgunblaðið hafi þá verið til umræðu á þeim nótum sem greinarhöfundur leggur upp með nú.
Eiríkur Stefán Eiríksson (IP-tala skráð) 26.2.2010 kl. 23:21
Erikur. Í mínum huga er Blaðamannafélagið á mjög miklu lágkúru plani hafandi þessa róttæku virku vinstrisinnaða manneskju í forsvari!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 27.2.2010 kl. 00:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.