ESB er strax farið að kaupa Íslendinga til fylgilags


    Áróðursmaskina ESB er í þann  veginn að fara  á   fullt. Er
þegar farin að bjóða  völdum  fulltrúum  hagsmunasamtaka
úr viðskiptalífinu  til  Brussel, að sögn Bændablaðsins. Þetta
er  alveg í samræmi við það sem gerðist í ríkjum sem sóttu
um aðild að sambandinu. ESB tjaldaði öllu til og gerði allt til
að hafa áhrif á niðurstöðuna í viðkomandi umsóknarríki. Því
ESB virðir að sjálfsögðu engin landamæri og telur sig mega
íhlutast um innanríkismál ríkja strax  og  þau hafa sótt um
inngöngu í sambandið.  Þetta er í  meiriháttar anda Sovét-
skipulagsins forðum.  - Frægar voru  boðsferðir hérlendra
kommúnista til Kremlar þegar Sovétríkin voru  upp  á sitt
besta. Sovét-trú  hérlendra  kommúnista  keimlíkist mjög
ESB-trúboðinu nú  á  Íslandi. Enda sjá ESB-sinnar ekkert
við íhlutun   ESB  í íslenzk  innanríkismál, ekki frekar en
kommúnistarni um  Sovétið  forðum. Og  ekki  einu  sinni
Vinstri grænir, forverar hérlendra kommúnista, sem sam-
þykktu umsóknina að ESB.   Enda alþjóðahyggja beggja
byggð á sama meiði.  - Afmáðs þjóðríkisins!

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
mbl.is Í boðsferð ESB til Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þakka þér fyrir Guðmundur, því að vinstri og hægri er enþá til í heiminum þó að múrin hafi verið brotin í Berlín. 

Sovét Evrópa má vera Sovét Evrópa vilji þau sem þar búa svo hafa,  en við þurfum ekkert endilega að tilheyra henni.  Við eigum nóg með okkar banka hrun svo rétt væri að láta það eiga sig að taka þátt í hruni Sovét Evrópu.

Hrólfur Þ Hraundal, 27.2.2010 kl. 03:33

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er löngu vitað að svona fara þeir að. Það sagði mér þýskur vinur minn fyrir mörgum árum, þeir plokka út aðila sem hafa einhverja vikt heima fyrir og kaupa til fylgilags.  Þessum bita meiga þeir einfaldlega ekki missa af.  Alltof mikið að náttáruauðlindum sem þarf að nýta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.2.2010 kl. 10:28

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Hrólfur og Áthildur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 27.2.2010 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband