Stofnun flughersþjónustufyrirtækis ber að skoða jákvætt


    Að sjálfsögðu  ber að  skoða  stofnun  flughersþjónustufyrirtækis á
Íslandi með  jákvæðum og  opnum hug. En hollenskt fyrirtæki vill skrá
hér 20 vopnlausar herþotur til æfinga fyrir heri NATO og herja annarra
vinveittra ríkja. Mikil atvinna myndi skapast við þetta fyrir Íslendinga,
auk þess myndi  mikill erlendur gjaldeyrir streyma inn í landið. En mikil
þörf er fyrir hvort tveggja í dag.

   Ekki kemur á óvart að Vinstri grænir séu á móti þessu eins og öllu
því sem til uppbyggingar og atvinnuskapandi verkefna horfir. Þá eru
Vinstri grænir  og  ótrúlega  margir hérlendir  vinstrisinnar  einstakir í
heiminum fyrir algjört ábyrgðarleysi í öryggis-og varnarmálum. Ábyggi-
lega einu stjórnmálasamtökin í heiminum  sem vilja  land  sitt  og þjóð
algjörlega óvarið, fyrir utan anarkista og aðra and-þjóðlega róttæklinga.  
mbl.is VG hafnar alfarið einkaflugher
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Að sjálfsögðu á að styðja við þetta mál með öllum ráðum.  Við höfum þörf fyrir vinnuna og lærdóminn.

Hrólfur Þ Hraundal, 18.3.2010 kl. 17:57

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Einmitt Hrólfur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 18.3.2010 kl. 21:48

3 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Sælir, verð að vera smmála ykkur og bæta við að það hlakkaði í mér þegar VG á suðurnesjum var ekki svo ósammála þessu verkefni. Í það minsta voru þingmennirnir jákvæðir.

Svo verður gaman að fylgjast með þessu verkefni hér og sjá þessa stórkoslegu smíð sem þessar Rússavélar eru.

Með kveðju frá Kef

Kaldi.

Ólafur Björn Ólafsson, 18.3.2010 kl. 23:20

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Ólafur!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.3.2010 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband