Icesave var hafnað af þjóðinni. Skilja stjórnmálamenn það ekki ?
13.5.2010 | 00:34
Þjóðin hafnaði alfarið Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslunni í mars
s.l. Með AFGERANDI HÆTTI! Enda ENGIN lagaleg stoð fyrir því að
íslenzka þjóðin taki þann skuldaklafa á sig, sbr. rannsóknarskýrsla
Alþingis, og tilskipanir ESB. - Málið ætti því að vera dautt og grafið
á Íslandi. - Þess vegna er það algjörlega óskiljanlegt ef íslenzk
stjórnvöld, og það AF FYRRA BRAGÐI, ætla að fara að banka upp
á hjá Bretum og Hollendingum í dag, og biðja þá náðsamlegast
að semja um Icesave. Um hvað á að semja? Og í hvers umboði
ætla stjórnvöld að semja? Alla vega EKKI í umboði þjóðarinnar!
Fjármálaráðherra segir það verða sitt FYRSTA VERK nú eftir
kosningarnar í Bretlandi að hitta Bretanna og ræða við þá um
Icesave. Utanríkisráðherra hrósar stjórnarandstöðunni eftir
fund með henni í gær, fyrir að gefa grænt ljós á áframhaldandi
samninga. ,,Hún taki hagsmuni Íslands og þjóðarinnar fram yfir
skæklatog". Enda hafi glufa í glugga myndast.
Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hversu handónýtur
og gjörspilltur fjórflokkurinn er. Alla vega þarf að gerast meiri-
háttar uppstokkun á mið/hægri kanti íslenzkra stjórnmála. Því
þaðan er uppbyggingu á þjóðlegum grunni helst að vænta.
Fráleitt úr vinstrinu, sem sífellt leitar leiða til þjóðsvika, sbr.
Icesave og ESB-aðildin
Það þarf því róttækan þjóðlegan borgaralegan flokk með
kristileg siðgæðsviðhorf í íslenzk stjórnmál í dag. Flokk sem
ALLIR þjóðfrelsissinnar geta treyst, sbr. í Evrópumálum. Flokk
HEILDARHAGSMUNA á íslenzkum forsendum!!!!!!!!!!!!!!!!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Framkoma núverandi stjórnvalda í icesavemálinu sem og varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu mun bera ævarandi vott um loddarahátt í íslenskri pólitík fyrr og síðar.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 14.5.2010 kl. 01:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.