Ögmundur bullar um Icesave ! Býr sig undir Icesave-svik !


    Það er algjört bull í Ögmundi Jónassyni ráðherra VG  að
það hafi verið úrslitaatriði að fá bandaríska lögfræðinginn
Lee Buchhheit til að aðstoða hina óþjóðhollu vinstristjórn
kommúnista og krata í Icesave-deilunni. Því hefðu íslenzk
stjórnvöld aðeins staðið í lappirnar og einfaldlega VARIÐ
íslenska  hagsmuni og málstað eins og ÞEIM BAR SKYLDA
TIL  væri þetta Icesave-rugl löngu úr sögunni. En það er
einmitt vegna vítaverðs undirlægjuháttar hérlendra vinstri-
afla gagnvart erlendu kúgunarvaldi að Icesave fór á versta
veg.  Þökk sé forseta vorum og stjórnarandstöðu að stórt
þjóðarslys í Icesave varð ekki.

   En nú á aftur að reyna að troða þriðja Icesave-þjóðar-
svikum  upp á þjóðina. Sem er litlu skárri en þau fyrri ef
allir áhættuþættirnir og óljósu atriðin eru tekin til greina. 
En  greinilegt er, að kommúnistinn Ögmundur  Jónasson,
nú orðinn ráðherra í annað sinn  í Icesave-stjórninni, ætlar
nú að ganga  til liðs  við þjóðsvikaöflin í Icesave.  Þjóðsvika-
öflin  er  einnig vinna að aðild Íslands að ESB. En Icesave-
skuldadrápsklyfjarnar samtvinnast meiriháttar ESB-aðild-
inni, og skulu því greiðast HVAÐ SEM ÞAÐ KOSTAR íslenzka
þjóð að kröfu hinna þjóðfjandsamlegu sósíaldemókrata.
Með dyggum stuðningi hérlendra kommúnista, og ESB-trú-
boðsins á Íslandi.

  Aðkoma Lee Buchhheit var algjörlega óþörf og mikil  mistök.
Landaði gjörsamlega óásættanlegum samningi. Enda hrósaði
hann fjármálaráðherra og aðal Icesave-þjóðsvikaranum   í
hástert, Steingrími J  á fundi í gær.  Sem segir allt um þennan
bandaríska Buchheit og heilindi hans  gagnvart  íslenzkum
þjóðarhagsmunum og málstað Íslands í Icesave.

   ÁFRAM ÍSLAND. EKKI ESB né ICESAVE!

   tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.  
mbl.is Úrslitaatriði að fá Buchheit að borðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband