Á enn að fjölga sósíaldemókratískum flokkum ?
26.12.2010 | 14:27
DV. greinir frá því á heimasíðu sinni í dag, að Guðbjörn
Guðjónsson vinni nú að stofnun nýs hægri flokks á Íslandi.
Sagt er að hér sé um að ræða hægrisinnaðan MIÐJUFLOKK
með áherslu á inngöngu Íslands í ESB. Sagt er að flokkurinn
eigi að bera nafnið Norræni Borgaraflokkurinn, og gert sé
ráð fyrir stofnfundi í mars eða apríl.
Á nú enn að fjölga sósíaldemókrataískum flokkum á Íslandi í
dag? Nægir ekki einn stór móðurflokkur, Samfylkingin, svo og
ótal sósísaldemókrataískir hópar innan hins Fjórflokksins?
Nægir þar að nefna sósíaldemókratanna í Sjálfstæðisflokknum,
nú undir forystu Þorgerðar Katrínar Gunnardóttir, en þeir hafa
löngum átt mikil ítök í flokknum, sem skýrir kannski best hvernig
komið er fyrir þeim flokki í dag. Krataliðið í Framsókn er þekkt,
aðallega meðal þeirra er vilja Ísland inn í ESB. Og innan VG
sækja sósíaldemókratar sífellt í sig veðrið, enda sá flokkur
orðinn meir og minna ESB-flokkur.
Það er satt sem Þorsteinn Pálsson sagði á Bylgjunni í dag
að ,,stórt tómarúm hafi myndast til hægri í íslenzkum stjórn-
málum" . - Sjálfstæðisflokkurinn hefur þar algjörlega brugðist
frumskyldu sinni sem þjóðhollur borgaraflokkur, enda unnið
oftar en ekki til vinstri, nú í borgarstjórn, og í síðustu ríkisstjórn
sinni, með hörmulegum afleiðingum fyrir land og þjóð. Sá nýi
,,hægri flokkur" ESB-sinna sem nú er boðaður, mun ENGU breyta
um hið pólitíska tómarúm til hægri. Því þar virðist sama andþjóð-
lega sósíaldemókrataíska miðjumoðið vera á ferð, eins og
löngum hefur fengið að grassera í Sjálfstæðisflokknum.
Hins vegar er nú borðliggjandi grundvöllur fyrir ALVÖRU HÆGRI
AFL á Íslandi í dag til að fylla upp í tómarúmið á hægri kanti ís-
lenzkra stjórnmála. Flokk ALMENNING á Íslandi, ÍSLENZKRA
HAGSMUNA, ÞJÓÐFRELSIS og RÉTTLÆTIS. Í því sambandi er
vert að benda á flokk HÆGRI GRÆNA, sem nú bíða færist að
til kosninga komi.
Tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.......
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Facebook
Athugasemdir
Heill og sæll Guðmundur Jónas; æfinlega !
Nei; og aftur, nei. Nóg komið; af sýndar veruleika gerfi- lýðræðisins, fornvinur góður.
Með kveðjum góðum; úr Árnesþingi, sem jafnan - og fyrri /
Óskar Helgi
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 21:02
Annar landsöluflokkur, Guðmundur og Óskar Helgi. Kannski plús að þeir nái að veikja Jóhönnu-fylkinguna enn frekar og eyða þeim út. Skil annars ekki að nokkur flokkur fái að vinna að landsölu og ekkert ákværuvald eða dómsvald hafi stoppað þetta fólk.
Elle_, 28.12.2010 kl. 17:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.