Loftárásunum á Dresden minnst.


   Í dag eru liđin 66 ár frá ţví ađ Bretar Og Bandaríkjamenn
létu sprengjum rigna yfir Dresden í seinni heimsstyrjöldinni.
Tölur um mannfall eru afar óljósar, en allt ađ 250.000 hafa
veriđ nefndar, mest allt saklausir borgarar og flóttafólk.
Enda var borgin nánast lögđ í rúst.

   Ţessar heiftarlegu árásir voru gerđar ţegar Ţýzkaland
var í raun gjörsigrađ. Ţví hafa margir spurt hvađa tilgangi
ţessar grimmilegu loftárásir á Dresden hafi ţjónađ, sem
ollu dauđa fleiri en fórust í kjarnorkusprengjuárás Banda-
ríkjamanna á Hiroshima. Borgin var yfirfull af flóttafólki
ţegar ósköpin dundu yfir, og var borgin lögđ í rúst  á
örfáum dögum. Engu var hlíft, hvorki saklausum borgur-
um né dýrmćtum menningardjásnum eins og Frúarkirk-
junni í Dresden. sem var endurbyggđ fyrir nokkrum
árum.

   Enginn  hefur ţurft  ađ  svara  til saka fyrir stríđsglćp
ţennan, ekki frekar en ţann sem framinn var í Hiroshima 
og Nagasaki..

   Vonandi eiga hörmungar seinni heimsstyrjaldarinnar
aldrei eftir ađ endurtaka sig.

   Aldrei!
  

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíđ Bergmann Davíđsson

já ţetta er ótrúlegt ţađ var enginn látinn sćta ábyrgđ fyrir ţetta hrćđilega grimmdarverk. Sumir vilja meina ađ ţetta hafi veriđ hefndarárás bara til ađ sína mátt sinn.

Davíđ Bergmann Davíđsson, 13.2.2011 kl. 20:48

2 Smámynd: Jón Magnússon

Ţakka ţér fyrir ţessa góđu fćrslu Guđmundur.  Ţetta minnir okkur á ađ sigurvegararnir setjast í dómarasćtiđ ađ stríđi loknu. Sagan kann ađ komast ađ annarri niđurstöđu.  Loftárásin á Dresden var fjöldamorđ. Í borginni voru engir hernađarlega mikilvćgir hlutir og fyrirfram vitađ ađ loftárás á borgina mundi ţýđa fjöldamorđ á almennum borgurum.  Ţađ er nokkuđ ljóst hverjir bera ábyrgđ á ţessu og hver ber höfuđábyrgđina.  Ţeir voru ađ sjálfsögđu svívirđilegir stríđsglćpamenn og fjöldamorđingjar.

Jón Magnússon, 13.2.2011 kl. 21:56

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Já stríđsglćpur var ţetta og ekkert annađ.

Ţađ hefur veriđ óumdeilt ađ árásin á Dresten breytti engu um endalok stríđsins og uppgjöf Ţjóđverja.

Ég tel ađ ţađ sé engan vegin hćgt ađ bera ţetta saman viđ Hiroshima og Nagasaki, ţau ósköp bundu ţó enda á Kyrrahafsstríđiđ. Miđađ viđ mannfall beggja ađila fram ađ ţeim tíma í sókn Bandamanna til Japans er fullvíst ađ ţađ hefđi kostađ mun fleiri mannslíf ađ leiđa stríđiđ til lykta međ hefđbundnum vopnum. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.2.2011 kl. 22:05

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband