ASÍ sósíaldemókrataísk áróðursmaskína !


   Rétt hjá SAMSTÖÐU ÞJÓÐAR GEGN  Icesave að gera
alvarlegar athugasemdir við málflutning ASÍ varðandi
Icesave-samninginn. Því ASÍ er í raun ekkert annað en
sósíaldemókrataísk ÁRÓÐURSMASKÍNA. Bæði í Icesave
og varðandi aðild Íslands að ESB!

   Hvar í veröldinni þekkist það  að frjáls samtök launþega
blandi sér í hápólitísk hitamál? Þar sem afstaðan er aug-
ljóslega tekin gegn hagsmunum launaþega, eins og til-
fellinu um Icesave og ESB-aðildina. -  Því í Icesave á að
demba meiriháttar skuldaklafa á þjóðina með tilheyrandi
skattpíningu og velferðarskerðingu. Og í ESB-aðildinni
felst í raun stórskerðing á lífsgæðum þjóðarinnar  með
meiriháttar fullveldisafsali og framsali auðlinda til yfir-
þjóðlegs valds.

   Já hvenær verður almennt hætt að líta á ASÍ sem hluta 
af verkalýðshreyfingunni, heldur sem óaðskiljanlegri deild
sósíaldemókrataismans á Íslandi?  
mbl.is Gerir athugasemdir við málflutning ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Viðbjóðslegasti verknaður hrunsins var framinn af stjórnvöldum þegar þau settu á neyðarlög fyrir 2% þjóðarinnar á kostnað hinna 98% sem áttu ekki innistæður umfram tryggingar. Í raun var landið gert gjalþrota með þessum ólögum.

2% elítan fékk allt sitt greitt í topp og pöpullinn borgar fyrir það næstu 40 árin. Borgar hærri skatta, borgar stökkbreyttar skuldir. Borgar meira fyrir mikið skerta opinbera þjónustu. Borgar meira fyrir annars flokks heilsugæslu. Borgar meira fyrir annars flokks skóla og borgar meira fyrir stórlega skert tryggingakerfi. Borgar meira fyrir ónýtan lífeyri. Næstu 40 árin, borga meira fyrir minna. Í 40 ár eða svo fyrir 2% elítuna.

Og nú skal pöpullinn greiða viðbjóðinn erlendis líka á meðan 2% elítan hlær alla leið í bankann. Sömu ólög gerðu Hollendinga og Breta brjálaða því eins og eðlilegt er vilja þeir fá sömu fyrirgreiðslu.

Að samþykkja Icesave er að borga fyrir viðbjóð 2% elítunnar. Samþykkja skerðinguna næstu 40 árin eða svo. Það er að samþykkja neyðarlegasta viðbjóðin í hruninu og er þó af nógu að taka.

Að samþykkja Icesave er viðbjóðslegur verknaður og aðeins neyðarlögin frá haustinu 2008 eru viðbjóðslegri. Hafnið Icesave og hafnið viðbjóði 2% elítunnar.

sr (IP-tala skráð) 2.4.2011 kl. 19:58

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Guðmundur er eitthvað að því að nota Íslenska orðið jafnaðarstefna og jafnarmenn eða félög. Þetta "sósíaldemókrat" er dálítið þreytt. Og minni þig á að jöfuður er nú markmið flestra verkalýðsfélaga. Og hefur verið frá upphafi. Icesave kemur jafnaðarstefnunni bara ekkert við.

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.4.2011 kl. 01:43

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er leiðin að gagnrýna málfarið þegar málstaðurinn er enginn.  Þetta er svívirðilegt af ASÍ forystunni að gerast talsmenn fyrir einn hóp í svona hitamáli.  Hver hefur gefið þeim réttin til þess?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2011 kl. 10:19

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Hvað. Ertu farinn að pirrast á ykkar rétta ALJÓÐALEGU nafngift?
Sósíaldemókrati. Ja herna. En í Guðs bænum farðu ekki að tönglast á
einhverju jafnaðarmennsku-kjaftæði hér, sem þið sjálfir vita síst hvað
þýðir. Jú ASÍ-forystan er gjörspillt deild á vegum sósíalafdemókrata hérlendis. Hefur ALDREI hugsað um hag almennings og mun ALDREI gera
það.

Takk Ásthildur fyrir þitt innlegg þitt hér!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.4.2011 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband