Neyðarkall Steingríms hefur ÞVERÖFUG ÁHRIF !


   Neyðarkall Steingríms J formanns VG til flokksmanna um að
samþykkja skuldir glæpamanna hefur ÞVERÖFUG ÁHRIF. Bara
sýnir titringinn sem kominn er í raðir þeirra sem vilja kúga
þjóðina til að taka á sig ÓLÖGVARÐAR KRÖFUR óvinveittra
nýlenduvelda, byggðar á einkaskuld stórglæpamanna sem er
þjóðinni ALGJÖRLEGA  ÓVIÐKOMANDI. Og sem ganga enn
lausir í þokkabít.

   Og ekki síst munu þessi neyðarhróp og köll þessa SAMA
Steingríms sem ætlaði að kúga Svarvars-glæpasamningnum
upp á þjóðina, hvetja enn frekar ALLA ÞJÓÐHOLLA ÍSLENDINGA
til að rísa upp  og KOLFELLA Icesave-þjóðsvíkin 9 apríl n.k.

   SEGJUM NEI  VIÐ ICESAVE OG SENDUM ÚT SKÝR SKILABOÐ
UM AÐ REFSA BERI FJÁRGLÆFRAÖFLUNUM ÆRLEGA!!

    ÞJÓÐIN SEGIR ÞVÍ NEI VIÐ ICESAVE!
mbl.is Hvetja félagsmenn til að kjósa já
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

pottþétt NEI

gisli (IP-tala skráð) 3.4.2011 kl. 16:30

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Ég er ennþá harðari ef eitthvað er á að segja NEI vegna þess að þetta er orðið bull og vittleysa þetta Icesave mál og greinilegt að deilan er á milli loforða Ríkisstjórna en ekki hvort okkur ber lagaleg skylda eða ekki...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 3.4.2011 kl. 16:32

3 Smámynd: Jón Sveinsson

Já það er engu á hann logið hann Steingrím svo mikið er víst.

JÁ ÞJÓÐIN SEGIR NEI VIÐ ICESAVE ÞANN 9. APRÍL...

Jón Sveinsson, 3.4.2011 kl. 16:34

4 identicon

nei það er engu logið á steingrím , þurfti að skreppa suður og þurfti að fara yfir steingrím og hann var næstum ófær ferlegt að hafa þetta nafn á þessari heiði.segi NEI

gisli (IP-tala skráð) 3.4.2011 kl. 16:40

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þú veist væntanlega að þetta var bréf til Vg liða. Hverning getur þú sagt að þetta hafi þveröfug áhrif? Ert þú sem sagt að góðum tengslum við Vg og getur fullyrt bara strax að þetta hafi öfug áhrif á þá.

Ætli að það séu ekki fleiri eins og ég sem telja betra að leysa þetta mál strax en að hafa það yfir okkur næstu 4 til 5 árin. Og jafnvel ef vera kynni að þá þyrftum við ekki að ábyrgjast greiðslur úr Innistæðutrygginarsjóðnum til Breta og Hollendinga, hefðum við tapað sennilegga miklu hærri upphæðum vegan þess að ríkið, fyrirtæki og sveitarfélög hefðu þurft að borga hærra vaxtarálag á öll þau lán sem við þyrftum að endurfjármagna erlendis. Þannig held ég að 32 milljarðar vegna Icesave sé bara brandari ef horft er til t.d. að orkuveitan þarf að endurfjármagna bara 50 milljarða á næstu 3 árum. Skuldir þjóðarbúsins erlendis eru hvað um 2500 milljaraðar og hvert prósent í hærra vaxtaálagi þýðir tugi eða hundruð milljarða aukalega sem við þurfum að borga af þessum lánum til framtíðar. Þá væri nú lítill gróði af því að hafa Icesave óleyst í kannski 4 til 5 ár í viðbót. Og í raun gróði af því að semja núna.

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.4.2011 kl. 16:41

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Allar hótanir verka ÞVER-ÖFUGT. Gott hjá Steingrími að vera svona
grænn að hrópa svona og hóta.  Magnús minn. Er orðin hundleiður á þessu
Icesave, og vil ekki hafa það yfir hausnum á mér og þjóðinni næstu áratugi.
SEGI ÞVÍ  N E I  og málið dautt. En það dásamlega sem maður fær svo
í auka-BÓNUS við það er að ESB-umsópnin fer í endanlegt uppnám og verður úr sögunni, og þessi ÖMURLEGA vinstristjórn hrökklast frá.
Þannig að maður slær 3 lásí-flugur í einu höggi 9 apríl n.k.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.4.2011 kl. 16:50

7 Smámynd: Elle_

Steingrímur getur staðið þarna og logið um endalok okkar ef við ekki játumst undir kúgunarsamninginn þangað til hann er BLÁR Í FRAMAN.  Og líka Magnús Helgi.  Við segjum NEI við kúgun. 

Elle_, 3.4.2011 kl. 17:35

8 identicon

Afhverju kemur fólk alltaf með þessa gömlu runu "viljum bara klára þetta svo við þurftum ekki að heyra þetta í nokkur ár". En hafið þið ekki hugsað að ef við segjum já, hengur þetta mál yfir okkur í nokkra áratugi með tilheyrandi skattahækkunum og ömurlegheitum.

Agnar (IP-tala skráð) 3.4.2011 kl. 18:28

9 Smámynd: Elle_

Já, af hverju, góð spurning, Agnar.  Það er ætlunin að blekkja og svíkja og nokkrir sem skilja það ekki hafa trúað.   Við klárum EKKI NEITT með að sættast á kúgunarsamning sem mun svo vofa yfir okkur.

Elle_, 3.4.2011 kl. 19:47

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mitt svar verður NEI!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2011 kl. 20:06

11 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Bara takk fyrir þið þjóðholla fólk Elle, Agnar, og Ásthildur. 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.4.2011 kl. 00:41

12 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Auk Gísli, Ingibjörg og Jón!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.4.2011 kl. 00:43

13 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús minn. Þú átt bágt!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.4.2011 kl. 00:43

14 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Og ekki má gleyma sjálfum Davíð Oddssyni sem „mokaði“ 300 milljörðum út úr Seðlabankanum hausti 2008 í bankana. Það var litið á slíkt að sjaldan var jafnmiklu ausið áfram til „lána“ til sérstakra lánþega bankanna.

Og svo er verið að rífast um Æseif sem talið er vera innan við 40 milljarða!

Mætti biðja um þjóðaratkvæði: Var rétt af DO að veita bönkunum 300 milljarða haustið 2008 án trygginga né viðhlítandi veða?

Einnig mætti spyrja:

Hver ber ábyrgð: Þjóðin öll, Seðlabankinn, Sjálfstæðisflokkurinn eða persónulega Davíð Oddsson?

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 4.4.2011 kl. 00:46

15 Smámynd: Elle_

Og svo er verið að rífast um Æseif sem talið er vera innan við - - -

BLEKKINGAR, KJAFTÆÐI.  Skuldabréfið í kúgunarsamningnum er yfir 670 MILLJARÐAR og enginn veit endalok málsins.  Það er verið að blekkja af mönnum sem fá borgað fyrir það. 

Elle_, 4.4.2011 kl. 01:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband