Breska þingmannanefndin óvelkomin !


    Bretar eru okkar versta óvinaþjóð! Hertóku Ísland á síðustu
öld og beittu okkur hervaldi í frægum þorskastríðum. Á þessari
öld settu þeir á Ísland hryðjuverkalög sem er einsdæmi í nú-
tímasamskiptum vestrænna ríkja, og beittu og beita enn okkur
fjárkúgun í Icesave. Koma svo núna smjaðrandi í búningi þing-
mannanefndar, augljóslega með sinni kunnu heimsvaldasinnaðri
ásælni horfandi á hugsanlega aðild Íslands að ESB,  og þar með
opnun íslenzkrar fiskveiðilögsögu fyrir bresku togaraauðvaldi.

   Höldum samskiptum okkar við Breta í lágmarki! Síendurtekin
óvild og yfirgangur þeirra í garð íslenzkra þjóðar, bæði á síðustu
öld og þessari, segir okkur það! 
mbl.is Bretar beittu of mikilli hörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband