ESB-andstæðingar sýni nú miklu meri hörku!
5.9.2011 | 21:47
Þetta gengur ekki lengur! Að mikill minnihluti þjóðarinnar
haldinn öfga-einangrunarhyggju hafi þjóðina ár eftir ár
í pólitískri gíslingu ESB-aðildar. Samhliða hótunum frá
Brussel. Nú síðast varðandi landbúnaðarmál! Þetta ofríki
og kúgun hins ESB-sinnaða minnihluta verður nú að stöðva!
Plat-umsóknina að ESB verður þegar í stað að draga til baka!
Íslenzk þjóð er ALFARIÐ á móti því að gerast aðili að hinu
sökkvandi gjörspillta Evrópusambandi. Þar sem fyrir liggur
að bæði fullveldi og auðlindum Íslands verði fórnað. Og þar
með íslenzkri tilveru.
ESB-sinnar hafa allt of lengi komist upp með ótrúlegan
yfirgang og frekju, blekkingar og lygar. Þessi þjóðfjand-
sömu öfl þarf nú að berja á og uppræta. Alla vega gera
þau pólitískt áhrifalaus við þá óðgeðfelda iðju sína að
véla Ísland undir erlend yfirráð á ný. Iðju sem jafnvel
gat kostað þjóðargjaldþrot hefði Icesave-þjóðsvik þeirra
náð fram að ganga. ÞVÍLÍK ÞJÓÐFJANDSÖM ÖFL!
ESB-umsóknarferlið er eins og illkynjað mein sem þarf
að fjarlægja og útrýma svo þjóðarsálin fái bata á ný!
Til þess ber að nota öll meðöl ef með þarf! Því með illu
skal illt út reka! Ekki síst þegar sjálfstæði og tilvera
ÍSLENZKRAR ÞJÓÐAR er í veði!
ÁFRAM FRJÁLST OG FULLVALDA ÍSLAND!
TIL FJANDANS MEÐ ESB-UMSÓKNINA! N Ú N A !!!!!!
www.skynsemi.is Skrifið undir!
Sjálfstæðismenn vilja fund sem fyrst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Já Sigurður einu sinni en er ég sammála þér.
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 6.9.2011 kl. 00:17
Guðmundur á það að vera...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 6.9.2011 kl. 00:18
Spurningin er bara hver getur hengt bjölluna á köttinn?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.9.2011 kl. 10:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.