Icesave-vörnin í höndum icesave-sinna. SKANDALL!


   Hvar í veröldinni gæti þetta gerst annars staðar en á
Íslandi ?  Að Icesave-sinnar yrðu látnir verja hagsmuni
Íslands í Icesave fyrir erlendum dómstóli?  Sem vörðu
þjóðarsvikin í Icesave  með kjafti  og  kló  fyrir nokkrum
misserum.

   Enginn munur er á Össuri  og Árna  Páli  hvað þetta
varðar. Báðir gengu  erinda  Breta og Hollendinga, og
vildu meir að  segja  samþykkja  Svavars-landráðin, er
hefði gert Ísland gjaldþrota í dag. Báðir eru því vanhæfir
eins og ríkisstjórnin ÖLL í máli þessu! Enda ætti allir
þessir aðilar  fyrir  löngu að vera búnir að segja af sér,
og ákærðir fyrir Landsdómi. Tapandi auk þess í tvígang
í þjóðaratkvæðagreiðslum í máli þessu.

   Aumkunarvert er þó að horfa upp á stjórnarandstöðuna
lýsandi stuðningi sínum á Árna Pál Icesave-sinna. Eins og
hann sé eitthvað skárri en hinn Icesave-sinninn Össur.
Þó á það ekki að koma á óvart fyrst icesave-flokksforysta
Sjálfstæðisflokksins á hér hlut að máli.

   Fjórflokkurinn í allri sinni mynd!  SKANDALL!
mbl.is Össur fer með Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband