HÆGRI GRÆNIR skera sig úr í Evrópumálum.


   Vert er að vekja athygli á kynningarfundi Hægri grænna
26 apríl n.k kl.14 í Múlakaffi. Þar sem flokkurinn, stefna
hans og forysta verða formlega kynnt. Athygli mun vekja
að flokkurinn mun skera sig úr í Evrópumálum. Gildir það
bæði miðað við Fjórflokkinn og nýju framboðin.

  Þannig hafnar flokkurinn ALFARIÐ aðild Íslands að ESB
af pólitískum ástæðum. Vill því draga ESB- umsóknina tafar-
laust til baka. Flokkurinn vill uppsögn á Schengen-ruglinu.
Og endurskoðun á EES-samningi með tvíhliða viðskiptasam-
ing í huga við ESB sbr. Sviss.  Flokkurinn hefur ÆTÍÐ hafnað
Icesave og mun aldrei samþykkja slík þjóðarsvik.

   Í dag kalla mjög margir þjóðhollir Íslendingar eftir slíku
afdráttarlausu framboði í Evrópumálum sem þeir geta 100%
treyst. Og ekki sakar að hér er einnig um frjálslyndan borg-
araflokk  að ræða, sbr. athyglisverð og skýr stefna og hug-
sjónir þessa nýja flokks sem kynntar verða 26. apríl n.k.

  ÁFRAM HÆGRI GRÆNIR!  ÁFRAM ÍSLAND!

 


mbl.is Danir sitja hjá á makrílfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Guðmundur

Sama og þegið :-)

Mitt atkvæði fer annað.

Kveðja

Jóhannes 

Jóhannes B Pétursson, 22.4.2012 kl. 01:29

2 identicon

Heill og sæll Guðmundur Jónas; æfinlega !

Gangi ykkur; hið bezta, Guðmundur minn.

Þó svo; ég muni ekki kjósa ykkur - fremur en aðra, þar sem ég vil afnám alþingis, og alls þess óþverra, sem það hefir stðaið fyrir, frá 1845, minn gamli fornvinur.

Jóhannes B Pétursson; er heilaþveginn attaníossi vinstra ruslsins, og því skaltu ekki taka alvarlega, þó svo sé, Guðmundur minn.

Með kærri Falngista kveðju; úr Árnesþingi - í anda Francós Ríkis marskálks Spánar - og þeirra Gemayel feðga, í Líbanon /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.4.2012 kl. 01:42

3 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Óskar

Afhverju kallar þú mig vinstra ruslsins.

Þú hefur allavega tekist að læra að vera dónalegur ;-) well done !

Hefur þú hugmynd hvað ég mun kjósa ?

Eitt er allveg öruggt þá verður það aldrei öfga hægrir :-)

Það nægir að horfa til Noregs og þess dómsmáls sem er þar í gangi.

Kveðja

Jóhannes

Jóhannes B Pétursson, 22.4.2012 kl. 01:51

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Bara góð sumarkveðja til þín Óskar Helgi  og takk fyrir veturinn.

Tek ekki þessi skrítnu skilaboð Jóhannesar allavega ekki til mín og minna!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.4.2012 kl. 02:00

5 identicon

Sælir; á ný !

Jóhannes B Pétursson !

Sýnzt hefir mér; sem þú hafir samþykkur víða verið, síðuhöfum vinstra trosins hér á Mbl. vef, að minnsta kosti - og tekið undir sönginn, um ágæti skrifræðis Nazismans (ESB) suður í Brussel, ágæti drengur.

Náir þú; að leiðrétta mig, þar um, skal ég forláts þig biðja, fyrr ekki, Jóhannes. 

Með; sízt lakari kveðjum - en hinum fyrri /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.4.2012 kl. 02:06

6 identicon

Þökk fyrir Veturinn; sömuleiðis, Guðmundur minn.

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.4.2012 kl. 02:07

7 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Guðmundur

Var ekki að segja að Hægri grænir væru öfga flokkur :-)

Annars gangi ykkur vel.

Þegar maður les að leggja eigi alþingi niður, þá er það farið ansi langt til hægri og mun aldrei styðja svoleiðis rugl :-)

Eina sem ég sagði að mitt atkvæði færi ekki til Vinstri græna og styð ekki það sem þú settir á prent :-)

Svo hafa aðrir aðrar skoðanir ykkur sem þeir geta stutt, bara hið besta mál.

Kveðja

Jóhannes 

Kveðja  

Jóhannes B Pétursson, 22.4.2012 kl. 02:11

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Vinstri Græna?  Hvern andskotann kemur umræða um þá hér upp Jóhannes?  Þú ert ekki í jafnvægi!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.4.2012 kl. 02:16

9 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Óskar

Þú ert nokkuð þungur á pennann :-)

Að líkja ESB við Nazista, hvar fannst þú það samhengi.

Slóvenar og Austuríkismenn eru slást um nafn á pyslu :-)

Það er sett fyrir dómstóla ESB og þar fara þessi lönd með rök í málinu.

Hver vinnur það er þá í höndum á dómsvaldi eins og í öllum siðuðum löndum.

Kveðja

Jóhannes 

Jóhannes B Pétursson, 22.4.2012 kl. 02:18

10 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Guðumdur

fyrirgefðu átti við hægri Græna.

Mín mistök biðst afsökunar.

Kveðja

Jóhannes  

Jóhannes B Pétursson, 22.4.2012 kl. 02:20

11 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hlaut að vera Jóhannes. Því haf og himininn er á milli HÆGRI GRÆNA og VG
í ÖLLUM málum!   Pólarnir í íslenzkum stjórnmálum í dag!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.4.2012 kl. 02:28

12 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Guðmundur

Eins og ég segi gangi ykkur vel.

Alltaf gaman að hrista upp í fjórflokkunum.

Kveðja

Jóhannes

Jóhannes B Pétursson, 22.4.2012 kl. 02:32

13 identicon

Sælir; enn !

Jóhannes B Pétursson !

Þarf ég nokkuð; að rifja upp fyrir þér, sögu mestu Bastarða, á megin landi Evrópu, Þjóðverja;  ágæti drengur ?

I. Ríkið / ríki Ottós I. Keisara þeirra, á 10. öld.

II. Ríkið / þeirra Vilhjálms I. Keisara - og Bismarcks Kanzlara hans, á öldinni 19.

III. Ríkið / hins Austurríska fáráðlings og heimskingja, Adólfs Hitler, sem lagði hið kyrrláta Austurríki í rústir einar, fyrir Þýzka drambið og frekjuna, Helvízkur.

IIII. Ríkið / þeirra Merkel Austur- Þýzku kerlingarinnar - og Sarkozýs, hins Fransk - Ungverska, hvoru tveggju létta Kindur Obama, og hinnar Bandarísku Heimsvaldastefnu, Jóhannes.

Endilega; lestu þér betur til, um sögulegan bakgrunn Þjóðverja - hyskis; sem hefir til leiðinda og ama verið, allt; frá Þjóðflutninga tímabilinu mikla, á 4. - 6. öldum, ágæti drengur.

Með; fjarri því lakari kveðjum - en hinum seinustu /  

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.4.2012 kl. 02:34

14 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sérstaklega frá hægri Jóhannes:)  Kveðja. GJK

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.4.2012 kl. 02:35

15 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Óskar

Ég gæti haft gaman af þér sem uppistandara.

Þú fengir allavega mitt atkvæði sem besti grínistinn :-)

Má benda á að Austuríki drotnaði nú yfir þýsku sambandsríkjunum um aldir.

Ég er stoltur af Þjóðverjum hvernig þeir hafa drifið sig upp miðað við tvær heimstyrjaldir.

Líklegt að seinni heimstyrjöldi hafi aldrei farið af stað ef það hefðu ekki verið settar svona harkalegar aðgerðir settar á Þjóðverja og þar af leiðandi Hitler aldrei komist til valda.

Eins er ég líka stolltur af Japönum að hafa rifið sig upp eftir að hafa tapað stríðinu.

Eins er ég líka stoltur af mörgu sem Bandaríkjamenn hafa gert, þó svo að mikið sem þeir gera hugnast mér ekki. En það er bara þannig, þú ert aldrei 100% sammála næsta manni.

Eins er líka Bandaríkin stórveldi og litlir Íslendingar geta blásið eins og þeir vilja og þeim er nákvæmlega sama :-)

Kveðja

Jóhannes 

Jóhannes B Pétursson, 22.4.2012 kl. 02:50

16 identicon

Komið þið sælir; á ný !

Jóhannes B Pétursson !

Hafðu þína hæðni; mér til handa, á þá vegu, sem þér líkar bezt - þó svo; aumleg þyki mér röksemdafærzlan, að reyna að draga persónu mína inn í umræðuna, án málefnis þess, sem til umræðu er.

Þér; fremur til vanza - en mér, ágæti drengur.

Jú; reyndar láðist mér, að geta þess í síðasta ritlingi, að megin glópska, hinna svonefndu sigurvegara styrjaldarinnar 1939 - 1945 - Breta / Bandaríkjamanna / Frakka og Sovétmanna var sú, að tvístra ekki Þjóðverjum, í frumeindir sínar - og dreifa þeim, út um Heimsbyggð alla, og gefa síðan : Hollendingum - Ungverjum - Tékkum og Pólverjum kost á, að skipta Þýzkalandi í bróðerni, sín í milli.

Hefði að minnsta kosti; útilokað tilkomu Evrópusambands óskapnaðar ins, Jóhannes.

Reyndu svo; að halda þig við málefnalega umræðu - í stað ''uppistands'' orðaleppa uppnefna, ágæti drengur.

Ekki hvarflar að mér; að minnsta kosti, að uppnefna þig, persónulega.

Sömu kveðjur - sem seinustu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.4.2012 kl. 03:06

17 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Guðmundur

Ef ég gæti kosið menn en ekki flokka þá væri ég mjög hamingjusamur.

Þá færi atkvæðið mitt líklega þvert á flokka, en það má ekki í dag.

Þá geta menn ekki falið sig á bak við flokkana í næstu kosningum.

Kveðja

Jóhannes

Jóhannes B Pétursson, 22.4.2012 kl. 03:13

18 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Óskar

Hvernig er hægt að málefnarlegar umræður við þig þegar þú vilt afleggja alþingi og ræna Þjóðverjum land sitt :-)

Ættu þá bara ekki Danir koma aftur og sækja litla Ísland ?

Öfgar eru aldrei góður málstaður heldur beint hættulegur lýðræði.

Kveðja

Jóhannes 

Jóhannes B Pétursson, 22.4.2012 kl. 03:26

19 identicon

Sælir; á ný !

Jóhannes B Pétursson !

Að endingu; þessa málskrafs okkar, ráðlegg ég þér, að fara inn á mína síðu; hér, á Mbl. vefnum, og kynna þér mín viðhorf nánar, í stað þess að vera með einhverjar ágiskanir, um mín sjónarmið, ágæti drengur.

Þar; sérð þú meðal annarrs, að lítt gef ég, fyrir hið hjákátlega lýðræði - en styð fremur, fámennisstjórn sterkra manna, sem eru vanari Glussa og Gírolíu umgengni, fremur en ilmvatnalið alþingis, sem við höfum nú orðið all dýrkeypta reynslu af, gegnum tíðina, Jóhannes minn.

Hygg; að ég muni litlu hér við bæta, á hinni gestrisnu síðu, míns mæta fornvinar; Guðmundar Jónasar, að sinni. Nema; spánýrra kæmi til, að nokkru.

En umfram allt; sértu velkominn á mína síðu Jóhannes, þoli ásjóna þín, hina skæru birtu Falangismans, þar; um slóðir.

Ekki síðri kveðjur - en þær fyrri; og áður / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.4.2012 kl. 03:39

20 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Guðmundur/Óskar

 Takk fyrir spjallið, áhugavert og gangi ykkur vel.

Kveðja

Jóhannes  

Jóhannes B Pétursson, 22.4.2012 kl. 04:27

21 identicon

Sælir; sem fyrr !

Jóhannes B Pétursson !

Þakka þér jafnframt; fyrir orðræðuna, sömuleiðis.

Hinar sömu kveðjur - sem síðustu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.4.2012 kl. 14:16

22 identicon

Hefði mætt á  fundinn þ. 26.apr nk. Er fastur í lyfjameðferð þennan dag hjá LSH.  Vonandi annar fundur fljótlega. Með baráttukveðju.

Aðalbjörn Steingrímsson (IP-tala skráð) 23.4.2012 kl. 00:07

23 identicon

Óskar Hlegi Helgason, þú skammast í JBP fyrir "að reyna að draga persónu mína inn í umræðuna, án málefnis þess, sem til umræðu er ..."

Sjálfur segir þú um hann í þínu fyrsta innleggi:

"Jóhannes B Pétursson; er heilaþveginn attaníossi vinstra ruslsins ..."

Fannst þér það málefnalegt?

Ertu ekki pínulítið að sjá flísina þarna í stað bjálkans?

Birgir Gíslason (IP-tala skráð) 23.4.2012 kl. 09:52

24 identicon

Sælir; á ný !

Birgir Gíslason !

Nei; það held ég ekki - Jóhannes hvorki; neitaði né játaði, minni málafylgju þar um, svo gjörla, enda urðum við dús, að lokum.

Þó; vart fylgi ég hér málum eftir frekar, á síðu gestrisins fornvinar míns; Guðmundar Jónasar Kristjánssonar, væri nú ekkert úr vegi, að þú gerðir betur grein fyrir þér Birgir, - og fyrir hvað, þú standir, því hvorugur okkar Jóhannesar nefndum þig á nafn; persónulega, ágæti drengur.

Með; ekkert síðri kveðjum - en þeim fyrri, vitaskuld /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.4.2012 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband