HÆGRI GRÆNIR gera sig klára!


   HÆGRI GRÆNIR gera sig nú klára í kosningar. Sóttu um 
listabókstafinn G í gær.  Hin frábæra og ýtarlega stefnuskrá
flokksins liggur fyrir, sbr www.xg.is Meiriháttar vel og fag-
lega unnin stefnuskrá.  Já virkilega skýr valkostur til hægri í
dag.  Í raun eini ALVÖRU hægriflokkurinn síðan gamli góði
þjóðholli Íhaldsflokkurinn var og hét. 

  HÆGRI GRÆNIR eru kærkominn flokkur fólksins sem  vill
byggja upp nýtt og betra Ísland. Fyrir fólkið í landinu  og
fyrirtæki þess. Fyrir ÍSLENZKA FRAMTÍÐ og FULLVALDA
ÍSLAND!  UTAN ESB! Að sjálfsögðu!

   Hér með er skorað á alla þjóðholla hægrisinna að koma
til liðs við hinn eina sanna hægriflokk í dag. Ekki síst hina
fjölmörgu óánægðu hægrisinna í Sjálfstæðisflokki og þjóð-
holla íhaldsmenn í Framsóknarflokki. En í báðum þessum
flokkum  hafa  sósíaldemókratar  haft  allt  of mikil  ítök
gegnum tíðina, og skemmt ímynd þeirra! Með skelfilegum
afleiðingum fyrir land og þjóð eins og dæmin sanna. Sbr.
bankahrun og ömuleg óþjóðholl vinstristjórn.

   HÆGRI GRÆNIR gefa FRAT í FJÓRFLOKKINN! Gefum 
Fjórflokknum  frí og kjósum nýtt leiðandi þjóðholt afl til
framfara fyrir íslenzka þjóð og uppbyggingar Íslands!   

   www.afram-island.is
mbl.is Vilja listabókstafinn G
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Guðmundur

Ég sendi þér nokkrar spurningar á tölvupóstfang þitt um miðjan apríl s.l. þegar mér sýndist þú vera einhverskonar málpípa þessa áhugaverða framboðs. Þetta var áður en Hægri grænir opnuðu vefsíðu sína. Þú virtir þann vefpóst reyndar ekki viðlits og við það varð mér þá reyndar hugsað til þeirrar sígildu umsagnar um þann atvinnuveitanda sem svarar ekki atvinnuumsókn, að hann sé þá líklega hvort eð er ekki þess verður að vinna fyrir. Ég vona að það eigi þó ekki almennt við um ykkur hjá xg.

Eftir að hafa rennt lauslega yfir langan og ítarlegan lista stefnumála ykkar, sem mörg ef ekki flest eru hreint ágæt, þá vildi ég ráðleggja þér/ykkur að einfalda stefnumálin og skera þau niður í örfá kýr skýr megin stefnumál, sem verður síðan kappkostað að standa við, hvað sem það kostar. Þó svo að Hægri grænir gætu með góðum meðbyr náð í oddastöðu í næstu kosningum, þá verður að halda stefnunni staðfastri í gegnum þær og líklega næstu kosningar að auki, til þess að ávinna sér þann nauðsynlega trúverðugleika sem heldur nú um stundir t.a.m. hinum hinn rotna gerspillta "fjór flokki" á lífi. Að lokum óska ég ykkur góðrar ferðar á Þingvöll í sumarblíðunni.

Jónatan Karlsson, 2.6.2012 kl. 12:42

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæll Jónatan. Bið þig að afsaka að hafa ekki svarað tölvupósti þínum. Hann
hefur þá hreinlega farið framhjá mér því það er dónaskapur að svara ekki
slíku.

   Ég lít á HÆGRI GRÆNA sem eina ALVÖRU hægriflokkinn í dag. Hefur skýra
og ákveðna stefnu sem ég vil trúa að hann sé reiðubúinn til að láta
brjóta á. Sé t.d EKKI og ALDREI fyrir mér  samstarf HG til vinstri, eins
og Sjálfstæðisflokkurinn hefur ótal sinnum gert gagnvart sósíaldemókrötum. HÆGRI GRÆNIR eru helsti andstæðingur vinstriaflanna í dag og á að vera það ÆTÍÐ!  Þess vegna styð ég HÆGRI GRÆNA! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.6.2012 kl. 16:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband