Vinstri-hræsni Lílju Móses vegna Ekvador-sendiráðs !


   Lilja Móses leiðtogi Samstöðu vill að utanríkismálanefnd
Alþingis fordæmi bresk yfirvöld  að  hóta  því  að  ráðast inn
í sendiráð Ekvador í London vegna stofnanda Wikileaks, sem
þar dvelur. Gott og vel!  Bara mjög gott mál!

   En hvar var þessi sama Lilja Móses, þá þingmaður Vinstri
grænna, og stuðningsmaður núverandi vinstristjórnar, þegar
hin sömu bresku yfirvöld beittu Íslandi hryðjuverkalögunum
illræmdu?

  Furðaði hún sig ekki þá á því að hvorki utanríkismálanefnd né
vinstristjórn hennar hreyfði hvorki legg né lið til að mótmæla
kröftuglega  hinni   forkastanlegu  hryðjuverkaáras  Breta  á
Ísland?  Hvers vegna óskaði Lilja Móses ekki eftir tafarlausum
fundi Íslands hjá NATO um kröfu um að slíkri  árás NATO-ríkis
á annað  yrði tafarlaust hætt?  Og heyrðist nokkurn tíman ósk
frá Lilju Móses um stjórnarslit við Breta meðan hryðjuverka-
lögunum var beitt ?  -  Néi!  Hvorki stuna né hósti frá þessari
Lilju Móses!

   Alveg dæmigerð OFURHRÆSNI hinnar öfga-alþjóðahyggju
vinstrimennsku Lilju Móses og félaga....... 

mbl.is Vill að utanríkismálanefnd fordæmi hótun Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Réttmæt athugasemd Guðmundur.  Sendiráð njóta ákveðinnar friðhelgi, en hún er siðferðileg og þarmeð ekki algjör frekar en lúpinu eða nauta. 

Hrólfur Þ Hraundal, 17.8.2012 kl. 01:02

2 Smámynd: Ómar Gíslason

Góð athugasemd! Það virðist eins og þessi ömuglega stjórn geti alltaf varið alla aðra en okkar eigið land eins og með hryðjuverkalög Breta á okkur.

Ómar Gíslason, 17.8.2012 kl. 09:56

3 identicon

Var ekki önnur ríkisstjórn við völd þegar Bretar beittu okkur hryðjuverkalögum?  Af hverju skammastu ekki út í þá flokka sem þá sátu í ríkisstjórn og þeirra þingmenn (xS og xD)?  Lilja Mósesdóttir sat ekki á þingi þá Guðmundur.  Hefur þessi grein þín eitthvað með Samstöðu að gera?  Þessi andúð þín á vinstrifólki er með ólíkindum!

Skúli (IP-tala skráð) 17.8.2012 kl. 10:17

4 identicon

Skúli, það er ekki til neins að koma með staðreyndir í málinu.  Þetta er ekki beint rétti vettvangurinn til þess.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 17.8.2012 kl. 11:50

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hruðjuverkalögin voru í gildi eftir að Móses kom á þing. Hún hefur ALDREI
fordæmt þau. Það er staðreynd málsins. ER HÆGRI GRÆNN en ekki
sjálfstæðismaður, og því síður í Samfylkingunni.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 17.8.2012 kl. 16:53

6 identicon

Æ mig grunaði það svosem, H.T.Bjarnason...

Og hvernig veistu að Lilja hafi aldrei sagt orð um málið, Guðmundur? Hefur þú útprentaðar allar hennar ræður, bloggfærslur, umræður í spjallþáttum o.fl.? Eða er þetta bara innihaldslausar upphrópanir og andúð á henni, Samstöðu, vinstrimönnum o.fl. sem ekki eru alveg eins og þú sjálfur sem rekur þig til að skrifa svona furðulega færslu?  Því miður fyrir þig þá hugsa ég að svona ómálefnalegur málflutningur eins og "OFURHRÆSNI hinnar öfga-alþjóðahyggju vinstrimennsku" og "vinstrisinnaðir róttæk-
lingar, sem hafa það sem sitt æðsta markmið að sverta og smána
öll  grunngildi íslenzks samfélags"
auki ekki fylgi Hægri grænna, sem ekki er hægt að segja að sé mikið fyrir...

Skúli (IP-tala skráð) 19.8.2012 kl. 18:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband