Sósíaldemókratar yfirtaka borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins!
24.8.2013 | 00:20
Nú liggur það endanlega fyrir að sósíaldemókratar hafa yfirtekið
borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn gat ekki einu
sinni greitt atkvæði móti því að samstarfssamningi Reykjavíkurborgar
við Moskvuborg yrði endurskoðaður. Ekki frekar en að standa gegn
byggingu mosku í Reykjavík. En tvískinnungurinn flettast meiriháttar
saman í þessum tveim málum. Því á sama tíma sem meintir fordómar
eru fordæmdir gagnvart samkynhneigðum í Moskvuborg, hyggst öll
borgastjórnin leyfa byggingu mosku í Reykjavík, þar sem einn af
æðstu klerkum múslima hérlendis fór nýlega mjög niðrandi orðum um
samkynhneigða, tvíkynhneigða og transfólk. Tvískinnungurinn er þarna
ALGJÖR. Einmitt í anda Gnarristanna!
Þá liggur borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hundflatur í
flugvallarmálinu eins og allt hið sósíaldemókrataíska Gnarristalið.
Þvert á flokkssamþykktir! Það er engu líkara en Mr. Gnarr hafi tekist
að umbreyta fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í geimverur eftir sínu höfði,
svo gjörsamlega eru þeir komnir úr sambandi við öll borgaraleg við-
horf og gildi. Orðnir algjört viljalaust verkfæri Gnarr & Co!
Við komandi borgarstjórnarkosningar hlýtur að verða til alvöru framboð
til hægri. Upplausnin, skrípalætin og aulahátturinn við stjórn borgarinnar
er orðin slíkur, með þátttöku svokallaðs Sjálfstæðisflokks, að við verður
ekki unað lengur! - Uppreisnin í flugvallarmálinu talar þar skýrast!
Endurskoða samstarfið við Moskvu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.