Hættulegur ritstjóri
28.10.2013 | 21:46
Leiðari DV í dag ber heitið ,,HÆTTULEGUR FORSÆTISRÁÐHERRA".
Sem miklu frekar hefðu mátt bera yfirskriftina ,,HÆTTULEGUR
RITSTJÓRI". Því á DV eins og jafnan eru hlutirnir settir í hvolf. Og
oftar en ekki hafðir undir öfugum formerkjum.
Tilefni þessa hættumats ritstjóra DV á forsætisráðherra var viðtal
við forsætisráðherra í útvarpsþættinum á Sprengisandi s.l. sunnudag.
Hafði ritstjórinn allt á hornum sér, og eins og áður sagði taldi forsætis-
ráðherra hættulegan þjóðinni, og væri ekki á vetur setjandi.
Í þessu sambandi má minna ritstjóra DV á málflutning hans og blaðs
hans í Icesave. Ólíkt höfðust þeir að í því stórmáli hann og forsætis-
ráðherra. En með ákveðni og óbilandi trú á íslenskan málstað skipaði
núverandi forsætisráðherra sig í forystusveit þeirra sem hvað harðast
börðust gegn Icesave, með stuðningi forseta Íslands og síðar meiri-
hluta þjóðarinnar. Þjóðargjaldþroti var forðað! Ritstjóra DV væri holt
að rifja þetta stórmál upp áður enn hann fer að kalla Sigmund Davíð
hættulegan forsætisráðherra. - Maður líttu þér nær! Því hefði mál-
flutningur Icesave-sinna sigrað, hefði ritstjórinn ekki þurft að bera
fyrir sig þjóðarhag í dag, og því siður fjöregg íslenskrar þjóðar, því
hvort tveggja hefði fokið fyrir veðri og vindi, hefði þjóðarsvikin í
Icesave orðið að veruleika.
Þá má einnig vekja athygli á hvað mun þjóðhollari viðhorf forsætis-
ráðherra hefur í Evrópumálum, og varðandi fullveldi og sjálfstæði Ís-
lands, heldur en þjóðhættuleg viðhorf varðandi þau mál, sem DV og
ritstjóri þess hefur fylgt hingað til. Að ekki sé talað um öfga-upphróp-
arninar á þeim bæ um þjóðrembu og þjóðernisfasisma í hvert sinn
sem talað er um trú á íslenska framtíð og að staðið sé fast um íslenska
þjóðarhagsmuni.
Leiðari DV í dag er blaðinu til mikilla vansa og ekki í fyrsta skiptið!
Ómálefnaleg og gegnumsýrð hættulegum öfgaáróðri og dylgjum.
Hættuleg ritstjórn það!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Fjölmiðlar hafa ekki framkvæmdavald, hætta liggur hjá þeim sem völdin hafa.
Jón Ingi Cæsarsson, 29.10.2013 kl. 13:17
Fjölmiðlar hafa mikið skoðanamyndandi áróðursvald Jón sbr DV.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.10.2013 kl. 14:12
Eru þeir ekki 4.valdið?
Helga Kristjánsdóttir, 31.10.2013 kl. 00:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.