Vinstri-öfgafréttir RÚV!


   ,,ÚLIT FYRIR AUKIÐ FYLGI HÆGRIÖFGAFLOKKA TIL
EVRÓPUÞINGSINS Í VOR" var meðal aðalfrétta RÚV í
kvöld. -  En þar  tiltók  RÚV  sérstaklega  hollenska
Frelsisflokkinn, Front National í Frakklandi, ausurriska
Frelsisflokkinn, breska Sjálfstæðisflokkinn UKIP og fleiri.
En sammerkt með þessum flokkum er að vera á móti ofur-
miðstýringunni í Brussel og yfirþjóðlegu valdi ESB yfir
þjóðum og einstaklingum innan sambandsins. 

   Það að vera andvígur yfirþjóðlegu valdi og ofurmiðstýringu
ESB ásamt mikilli spillingu og efnahagslegri kreppu með til-
heyrandi ofur-atvinnuleysi með eymd og fátækt innan ESB, er
að mati RÚV meiriháttar ÖFGAR! HÆGRI ÖFGAR! Það að vera  
á gagnstæðri skoðun eru hinsvegar ,,normal" viðhorf   enda 
fyrirfinnast hvergi í orðasafni RÚV VINSTRIÖFGAFLOKKAR
eða vinstrisinnaðir öfgamenn.  Hvað þá ÖFGA-ESB-SINNAR!

   Svona ofstopa rammpólitískur fréttaflutningur RÚV er með
hreinum ÓLÍKINDUM! Ekki síst í ljósi uppstokkunar á stofnun-
inni, þ.á.m. með nýjum útvarpsstjóra og fréttastjóra. EKKERT
hefur breyst varðandi stórpólitíska misnotkun vinstrisinna og
ekki síst ESB-trúboðsins þrátt fyrir þá uppstokkun. Ef eitthvað
er hefur misnotkunin farið vaxandi! Enda var aðal stjórnmála-
fræðingur ESB-trúboðsins Eiríkur Bergmann mættur enn einu 
sinni í viðtal til að krydda heldur betur hægri-öfgarnar í Evrópu
um þessar mundir.

   Uppstokkunin á RÚV hefur GJÖRSAMLEGA MISTEKIST! Vinstri-
ESB-öflin vaða þar uppi sem aldrei fyrr. Og komast upp með það
bersýnilega í  ljósi uppgjafar ríkisstjórnarflokkanna við að draga
ESB-umsóknina til baka. Sem er meiriháttar skandall og raggeita-
háttur gagnvart hávaðasömu en fámennu ESB-trúboði, en um leið
með  þeim alstærstu kosningasvikum lýðveldisins!

    Kosningasvikum gagnvart stórum meirihluta þjóðarinnar sem
vill áfram frjálst Ísland utan ESB! 

   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Guðmundsson

er ekki bara tími til kominn að kalla flokkinn þinn (sjálfstæðisflokkinn) isip (ukip). ukip er í miklu uppáhaldi hjá mörgum af sjálfstæðismönnum

Rafn Guðmundsson, 18.5.2014 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband