Er þeim lífsviðurværi fjölda fólks einskisvirði?


    Já hreinlega velti þessu fyrir mér þegar mótrökin eru
sett fram við stækkun álversins í Straumsvík.  Því þau
eru enfladlega ekki haldbær þegar rökin með stækkun
eru skoðuð.

    Sem áhorfandi úr fjarska horfi ég fyrst og fremst á
þá staðreynd að í dag hafa hátt á ANNAРþÚSUND 
manns lífsviðurværi sitt af starfsemi álversins. Stækkun
þess er forsenda áframhaldandi rekstri. Ríflega 800
íslenzk fyrirtæki eru birgjar og þjónustuaðilar álversins.
Á undanförnum misserum hafa fjölmörg störf í iðnaði
verið flutt úr landi. Við stækkunina í Straumsvík verða
til um  1200 ný og VARANLEG störf, þar af 350 bein
störf hjá fyrirtækinu og ríflega tvöfallt fleiri afleidd
störf vegna aukinna umsvifa að mati Rafiðnaðar-
sambands Íslands.

    Eins og áður sagði lifa hátt á ANNAÐ ÞÚSUND manns
á starfseminni í Straumsvík í dag . Með því að hafna
stækkun álversins er í raun verið að svifta öllu þessu
fólki lífsafkomu sinni.  

      Hvað er hægt að  kalla það annað en MANNVONSKU
hjá þeim sem fyrir slíkri lokun og atvinnumissi  tala og
berjast? Ekki síst þegar þeir hinir sömu sem hæst hrópa
búa utan Hafnarfjarðar  og hafa  því ENGA persónulega
hagsmuni að gæta. 

   Athyglisvert er  að það skuli einmitt vera vinstrisinnar
sem fara hér í fararbroddi. Að rústa lífsbjörg fjölda laun-
þega!



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband