Stoppið sigraði í Hafnarfirði! Hvar næst?


  Kom alls ekki á óvart. Í Hafnarfirði er samansafn mestu vinstri-
mennskunar á Íslandi. Kratar eru þar í algjörum meirihluta í
bæjarstjórn og Vinstri-grænir vinir þeirra eiga þar rík ítök. Í
ljósi þess eiga þessi úrslit ekki að koma á óvart. 

  Þótt  vinstrimennskan hafi aldrei verið  holl frjálsum fyrir-
tækjarekstri er það Íslandsmet í íslenzkri atvinnusögu að eitt
langstærsta fyrirtæki í einu bæjarfélagi skuli fá slík neikvæð
skilaboð og álverksmiðjan í Straumsvík fékk í gær. Alveg með
ólíkindum að meirihluti bæjarbúa skuli kjósa í burtu meginstoð
atvinnulífsins í sinni heimabyggð. - Mest finnur maður til með
þeim fjölda launþega og smáfyrirtækja sem eiga allt sitt undir
starfsemi álversins.   Það er algjört aukaatriði þeirra sem kusu
á móti, enda hafa þeir engra atvinnulegra hagsmuni að gæta
þótt fyrirtækið hverfi á braut. Dæmigert fyrir hroka og tillitsleysi
vinstrimennskunar gagnvart hinum vinnandi manni.

    Stoppið í Hafnarfirði liggur nú fyrir. Spurning hvort það eigi
eftir að breiðast út um land allt, með sigri STOPP-flokkanna í
vor?   Eða mun hið gagnstæða gerast, og ríkisstjórnarflokkarnir
fari með sigur af hólmi, þegar þjóðin hefur séð í hverju rauða
stoppinu felst.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Umhyggja fyrir komandi kynslóðum og vitund um að þungiðnaður á engann veginn heima í miðri borg virðist sem betur fer hafa ráðið afstöðu nógu margra. Það fer betur á því til lengri tíma litið að einbeita sér að flestu öðru en að hrúga niður eiturspýjandi verksmiðjum alþjóðlegra auðhringja...hvað þá í þéttbýli, leyfum þeim að maka krókinn sinn á öðrum stöðum en fyrir utan garðinn okkar...börnin okkar eiga meiri virðingu skilið en slíkan undirlægjuhátt við gróðapunga stórfyrirtækja og leiguþý þeirra.

Georg P Sveinbjörnsson, 1.4.2007 kl. 13:56

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það stoppaði nú ekkert. Alacan heldur áfram eins og ekkert hafi í skorist að reka þarna stærstu verksmiðjunna sína.

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.4.2007 kl. 14:32

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Já Magnús það stoppar ekkert á morgun. En þetta hefur mjög neikvæð áhrif á reksturinn samt og hann mun að lokum stöðvast
innan ekki svo margra ára eins og svo margorft hefur komið fram
hjá stjórendum fyrirtækisins. Og hvert ár er fljótt að líða.

Og þú Georg ert einn af þessum róttæku sem hugsar EKKERT um
framtíðaröryggi þess stóra hóps launþega sem þarna vinnur.
Þetta mengunarkjaftaði er einhver rosa meinloka sem búið er
að gegnmenga hugarfar allof margra. Og alveg dæmigert fyrir
vinstrisinnaða róttæklinga að vera fjandans sama um allt og
aðra ef hin sósíaliska hugmyndarfræði er annars vegar.

  Þetta er ekkert annað en mannvonska og hroki á hæðsta stígi
vinstrimennskunar.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.4.2007 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband