Eru vinstriöflin að fara á taugum?

  
   Svo virðist að vinstriöflin séu að fara á
taugum. Þau sjá að allt getur gerst að
ríkisstjórnin haldi velli, enda er málefna-
staða hennar mjög góð. Á sama tíma
virðist stjórnandstöðinni skorta  öll hin
raunverulegu kosningamál. Enda ástand
efnahagsmála aldrei verið eins gott og nú.

   Í örvæntingu sinni er þá grípið til miður
ógeðfeldra aðferða til að hlekkja á ríkis-
stjórnarflokkunum. Jafnvel hreinar lygar og
skáldskapur eru notuð. Nýjasta dæmið var í
dag þegar framkvæmdastjóri Starfsgreina-
sambandsins sagði að búið væri að ákveða
einkavæðingu Landsvirkjunar,  og ekki bara
það, heldur væri búið að ákveða nýjan forstjóra.
Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins
kom fram í fréttum í kvöld og vísaði þessum
dylgjum alfarið á bug, enda lægi fyrir sérstök
flokkssamþykkt Framsóknarflokksins að ekki
kæmi til greina að einkavæða Landsvirkjun.
Þá er öllum í fersku minni aðförin að Jónínu
Bjartmarz, þar sem fyrrverandi kosningastjóri
Samfylkingarinnar misnotaði aðstöðu sína sem
fréttamaður hjá ríkissjónvarpinu með rakalausum
dylgjum og árásum á umhverfisráðherra í þeim
eina pólitíska tilgangi að grafa undan ráðherra
og stjórnmálaferli.

  Allt ber þetta að sama brunni. Stjórnarandstaðan
er að fara á taugum. Hún finnur engan hljómgrunn
meðal kjósanda enda hefur hún  EKKERT fram að
bjóða nema stöðnun á öllum sviðum þjóðlífsins.


  



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband