Ríkisstjórnin áfram og ekkert bull


   Ríkisstjórnin helt velli og á því að halda áfram.
Annað stjórnarmynstur yrði ekki farsælt fyrir
þjóðina. Fylgistap Framsóknarflokksins skrifast
á gömul flokksvandamál en alls ekki á þátttöku
í núverandi stjórnarsamstarfi. Nýr formaður
hefur náð heildarsátt í flokknum á þeim fáu
mánuðum sem hann hefur gengt formennsku.
Það var hins vegar ekki nægur tími til að skila
sér í auknu fylgi að þessu sinni. Jón Sigurðsson
er eini maðurinn í dag sem getur hldið flokknum  
saman og byggt hann upp. Það gerir Jón alls ekki
utan skákborðs stjórnmálanna. - Þess vegna er
áframhaldandi ríkisstjórnarþátttaka lykilatriði
með Jón sem ráðherra og aðgengi að umræðum
á Alþingi Íslendinga, ef meiningin er að byggja
flokkinn upp á ný,

   Grasrótartal og naflaskoðun eru kannski góðra
gjalda verð. En að slíkt gerist í áhrifalausri stjórn-
arandstöðu með flokksleiðtogan nánast úti á túni
er pólitískt út í hött!

   Svokölluð ,,Viðeyjarstjórn" yrði ekki góð stjórn
fyrir Ísland. Reynslan sýnir það.  Vinstri-stjórn
yrði alverst. - Því á núverandi ríkisstjórn að halda
áfram, það yrði Íslandi fyrir bestu eins og dæmin
sanna s.l 12 ár.  - Það er lykilatriðið, og ekkert
bull með það lengur!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Náð heildarsátt í flokknum....hmm. Hvað með Landsvirkjun og allt hitt ruglið sem allir hafa fylgst með að undanförnu? Það er nokkuð öruggt að stjórnarþáttaka í svo veikri stjórn gerir útaf við þá og sennilega tekur það ekki 4 ár.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 15.5.2007 kl. 13:52

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sókn er besta vörnin. Skip í öldusjó er glatað falli skipstórinn fyrir
borð.  Veikleika er styrkleiki líka. Ríkisstjórn með knappan meirihluta
eflir samheldni og samstöðu þeirra sem að baki henni standa.
Allt er betra en að fá krata og komma í ríkisstjórn Íslands. Um það
vitnar sagan. Þess vegna ber ríkisstjórninni að halda áfram þjóð
og landi til heilla.........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.5.2007 kl. 14:34

3 Smámynd: Sigríður Laufey Einarsdóttir

Sammála. Eftir að Ingibjörg Sólrún stökk úr borgarstjórninni hefur henni ekki gengið vel enn eitt dæmi.

Jón Sigurðsson getur ekkert annað gert en að halda áfram og reyna til þrautar. Ef hann fellur þá fellur hann með sæmd.

Með kveðju. 

Sigríður Laufey Einarsdóttir, 15.5.2007 kl. 16:20

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Guðni Ágústsson...

Er ekki komið nóg í bili, er ekki óhætt að taka hlé og draga andann....?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 15.5.2007 kl. 16:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband