Uppgangur róttækra múslíma og vinstri-öfgasinna á Ítalínu


    Það er eins og Páfagarður hafi haft yfir mikilli vitneskju
að geyma þegar hann varaði um daginn  við sókn múslima
í Evrópu. Skv frétt Mbl.is í dag er aukin hætta á árásum og
uppgangi múslima á Ítalíu, skv. upplýsingum ítölsku leyni-
þjónustunnar. Sagt er að mikil fjölgun hafi verið á samkomu-
stöðum múslima, moskum, undanfarin ár, þar sem  múslímskir
róttæklingar geta seilst til áhrifa, jafnvel þótt þessir staðir séu
aðallega skipulagðir af löghlýðnu fólki.

    Þá vekur athygli að í skýrslu ítölsku leyniþjónustunnar er
víkið að hættunni af stjórnleysingjum þar í landi, þrátt fyrir
að í febrúar hafi verið handteknir 15 manns grunaðir um
aðild að vinstri-öfgasamtökum.

   Allt eru þetta skilaboð um að við hér uppi á Íslandi þurfum að
halda vöku okkar, m.a með öflugri löggæslu og öryggiseftir-
liti. Bara síðustu misseri höfum við verið vitni að innrás öfga-
sinnaðra vinstriróttæklinga og stjórnleysingja inn í landið,
undir öfugmælanafninu Saving Iceland. 

   Hvenær, hvar og hvernig næsti ófögnuður birtist veit enginn.........

   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband