Guðni Ágústsson ver krónuna
19.9.2007 | 09:40
Það er alltaf mikill kostur þegar stjórnmálamenn koma fram og
tala hreint út um hlutina. Það gerir Guðni Ágústsson formaður
Framsóknarflokksins í Blaðinu í dag. Þar gagnrýnir hann réttilega
viðskiptaráðherra fyrir að verja ekki krónuna, og segir það graf-
alvarlegt mál að viðskiptaráðherra ,,skuli vera í bóndabeygju
hjá bankakerfinu, sem óttist fall krónunnar og sitt eigið gengis-
tap. " Guðni bendir einnig réttilega á að innganga í ESB og upp-
töku evru sé margra ára ferli sem bjargar ekki íslenzku efnahags-
kerfi út úr því þennsluástandi sem nú ríkir.
Formaður Framsóknarflokksins á hrós skilið að tala hér tæpi-
tungulaust um jafn mikilvægt mál og hvort við eigum að kasta
okkar þjóðargjaldmiðli eða ekki. Að taka upp evru án þess að
ganga í ESB er rugl. Hins vegar væri það mun málefnalegri
afstaða þeirra sem eru á móti fljótandi gengi í dag eins og
krónan hefur verið síðustu ár, að binda hana við ákveðinn
gjaldmiðil, með ákveðum frávikum (t.d 5%) til eða frá. Með því
gæfist kostur á að íslenzkt hagkerfi og samfélag aðlagaði
sig slíku föstu gengi, sem t.d upptaka evru myndi þýða.
Kosturinn við slíka bindingu er sá, að hana má alltaf breyta
eða afnema, ef mál þróast á verri veg, sem ekki væri hægt
tækum við upp erlendan gjaldmiðil eins og evru.
Hvers vegna tala menn ekki fremur fyrir þeim kosti en þeim
að kasta krónunni og taka upp evru? Því sá kostur gætum
við framkvæmt strax í dag !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er því fæstir sem tala fyrir evrunni eru að spá í hana. Þeir eru nær allir miklir fylgjendur þess að við göngum í ESB og verðum að hreppi þar með 3 þingmenn af einhverjum ótal hundruðum.
Fannar frá Rifi, 19.9.2007 kl. 11:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.