Vonandi að danska ríkisstjórnin haldi velli

 

  Þingkosningar eru í Danmörku í dag og eru mjög tvísýnar.
Vonandi að ríkisstjórnin haldi velli, því hagsæld í Danmörku
hefur aldrei verið meiri. Frjálslynd borgaraleg ríkisstjórn  á
þjóðlegum  grunni hefur setið  að völdum s.l 6 ár. Vinstri-
blokkinn undir forystu krata sækir þó fast á. Athyglisvert
og umhugsunarvert er þó það að nýr flokkur undir forystu
múslima gæti komist í oddaaðstöðu með hvernig stjórnar-
far Danir koma til með  að búa við næstu árin. - Ef allt fer
á versta veg gætu frændir vorir Danir þannig  setið uppi
með múslimska vinstristjórn. - Þokkaleg blanda það ! 
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þeir verða bara að taka afleiðingum af því að hleypa öllum þessum múslimum inn í landið.  Ég man ekki betur en að þegar Magnús Þór Hafsteinsson var á sínum tíma að vara við óheftu flæði af erlendu fólki, þá var hann og Frjálslyndi flokkurinn kallaðir rasistar.  Nú hefur það skeð í fyrsta sinn að innflytjandi tekur sæti á Alþingi og það furðulega er að hann kemur frá Bandaríkjunum einu mesta íhaldsbæli heimsins og tekur sæti á Alþingi fyrir VG og miðað við óbreytta stefnu á þeim eftir að fjölga á Alþingi sem eru innflytjendur og við verðum komnir í sömu stöðu og Danir fljótlega.

Jakob Falur Kristinsson, 13.11.2007 kl. 14:47

2 Smámynd: Ásþór Sævar Ásþórsson

Þó ég sé enginn aðdáandi Nasers Khaders, sem hér er reynt að gera tortryggilegan á þeirri forsendu að hann sé islamstrúar, er alveg ótrúlegt að tala um að frjálslyndi og síðan gera lítið úr hófsömum múslima væntanlega verður kjörinn á þing. Ætti frekar að hafna hófsömum muslimum? Viljum við ekki að þeir séu þátttakendur í samfélaginu? Er "þetta fólk" líka hættulegt þegar það er af hófsama vænginum og aldrei hefur gert flugu mein?

Hugtakið "Múslimsk vinstristjórn" er hræðsluáróður af verstu gerð, sem gerir lítið úr Naser Khader (sem er miðjumaður, sem vill að hægristjórnin haldi áfram), og lýsir mikilli vankunnáttu á dönskum stjórnmálum.

Ásþór Sævar Ásþórsson, 13.11.2007 kl. 15:55

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ástandið í Danmörku væri hrikalegt ef sú ríkisstjórn sem nú situr
hefði ekki komið til og tekið í taumana með óheft flæði inn í landið.
Varðandi vara-þingmann VG þá er hann ábyggilega pólitískur flótta-
maður, því þeir gerast varla meira vinstrisinnaðir róttæklingar og hann með tilheyrandi and-þjóðleg viðhorf.......... 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.11.2007 kl. 15:56

4 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Borgaralegu öflin unnu og hættunni var bægt frá!

Magnús Þór Hafsteinsson, 14.11.2007 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband