Húrra! Loksins fjárfestingasamningur við Egypta !


    Já bara þrefallt húrra fyrir utanríkisráðherra vorum,
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttir.  Skv frétt MBl hefur nú
tveggja daga heimssókn utanríkisráðherra til Egypta-
lands borið þann mikla árangur að undirritaður hefur
verið gagnkvæmur frjárfestingasamningur Íslands og
Egyptalands. Og  í  kvöld  situr svo utanríkisráðherra
fund og sérstakan kvöldverð með Ahmed Abdoul Gheit,
utanríkisráðherra Egyptalands.

  Þvílík himnasending að fá svona meiriháttar jákvæðar
fréttir fyrir alla útrása-vikinganna okkar, einmitt nú þegar
blikur eru á lofti í utrásarheimi þeirra og fjárfestingum.
Þá hlytur heimsókn forseta vors að fylgja í kjölfarið þarna
í austurveg, þótt ekki væri nema til að skerpa á hin mikil-
vægu menningartengsl milli þessara tveggja vinaþjóða.

  Og í lokin er vert að taka undir með Staksteinum Mbl í
gær. ,, Það er gott að hafa bæði forseta og utanríkisráð-
herra, sem rækta garðinn svo vel fyrir okkur hjá öðrum
þjóðum"....... 
mbl.is Skrifað undir fjárfestingarsamning við Egypta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Já og hvað þetta verður ómetanleg lytfistöng fyrir íslenzkt viðskipta-
líf Erlingur, einmitt núna þegar við þurfum á slíku að halda. Þvílík
himnasending! Þvílík mótvægisaðgerð!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 8.1.2008 kl. 21:16

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já haleluja segir maður bara he he.... það hlýtur mikið að fylgja í kjölfarið.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.1.2008 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband