Schengen ótraust og hættulegt !

 

   Skv frétt Mbl stöðvaði ítölsk strandgæsla 226 ólöglega
innflytjendur við suðurströnd Sikilyjar, en hátt í 17.000
manns hafa reynt að smygla sér til  Ítalíu frá  Afríku árið
2007.  Þetta er sem vitað er um. En hversu mörg þúsund
tókst að komast inn ólöglega til Ítalíu árið 2007? Sama er
að segja um Spán og Möltu. Öll þessi ríki eru innan ESB og
eru  í  Schengen. Sem þýðir að jafnskjótt og allar þessar
þúsundir ólöglegra  innflytjenda  takast að komast  inn á
Schengen eru þeir  þá um leið komið innfyrir landamæri Ís-
lands, en sem kunnugt er þá er Ísland illu heilli aðili að þessu
Schengen-rugli. Eyjaskeggjarnir Bretar og  Írar prísa hins
vegar sig sæla yfir að hafa ekki álpast inn í þetta Schengen
rugl, ekki  síst  nú  þegar 9 ríki fyrrum  austantjaldsríkja
gerðust aðilar að  Schengen um s.l  áramót. Ríki  eins og
Þýzkaland óttast nú mjög stór aukna glæpatíðni vegna
aðildar þessara ríkja að Shengen.

   Þeir stjórnmálamenn sem samþykktu Schengen-aðildina
á sínum tíma ættu að endurskoða þessi mistök og frelsa
Ísland undan þessu rugl-samningi. Ef eyþjóðirnar Bretar
og Írar sjá ENGAN kost að tengjast Schengen, hvers vegna
ætti Íslendingar þá að gera það úti að miðju Atlanatshafi?
Fyrir utan þann mikla kostnað sem þessu fylgir.

  Stundum fer maður í illt skap þegar stjórnmálamenn blindast
og samþykkja jafn augljósa vitleysu og RUGL og það að gera
Ísland að aðila að Schengen......


mbl.is Ítalir stöðva bát með 226 ólöglegum innflytjendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Nákvæmlega!  Algjörlega sammála þessum pistli.

Sigurður Þórðarson, 14.1.2008 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband