Hvað segir Þorgerður Katrín nú ?
1.2.2008 | 15:12
Staksteinar Mbl. spyrja þessarar spurningar í dag, og vísa
til skoðanakönnunar Fréttablaðsins, þar sem Samfylkingin
virðist á góðri leið með að ná Sjálfstæðisflokknum í fylgi á
landsvísu.
,, Hvað veldur?" spyrja Staksteinar, og virðast í engum vafa.
Jú, ,,það er augljóst. Sú ákvörðun forystumanna Sjálfstæðis-
flokksins að leiða Samfylkinguna inn í ríkisstjórn er nú að sækja
þá heim með afdrifalegum hætti."
Og Staksteinar halda áfram. ,,Sjálfstæðisflokkurinn hefur með
þessu stjórnarsamstarfi skapað helzta keppinaut sínum í ís-
lenzkum stjórnmálum mjög sterka vígstöðu og sóknarfæri."
Í lokin spyrja Staksteinar. ,, Hvað segir helzti talsmaður sam-
starfs við Samfylkinguna, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins, um þessa stöðu?".
Vangaveltur og áhyggjur Staksteina eru afar skiljanlegar. Hvað
kom fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins eftir síðustu kosningar? Í
stað þess að mynda áframhaldandi borgaralega ríkisstjórn með
Framsókn og Frjálslyndum, og skapa þannig tvær blokkir í ís-
lenzkum stjórnmálum til frambúðar, kaus forystan að leiða Evrópu-
sambandsinnaða sósíaldeókrata til vegs og virðingar í stjórn-
málum á Íslandi. Lykilmanneskjan í því ráðabruggi var Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Tengsl
hennar við Ingibjörgu Sólrúnu við myndun núverandi ríkisstjórnar
eru öllum kunn. Því er krafa Staksteina um að Þorgerður tjái sig
um stöðu mála nú skiljanlegar.
Það er eins og núverandi forysta Sjálfstæðisflokksins skilji ekki
hlutverk sitt í íslenzkum stjórnmálum. Að standa fyrir borgaraleg-
um viðhorfum á þjóðlegum grunni. Ef framheldur sem horfir fer að
verða spurning um stofnun Þjóðlegs Íhaldsflokks, til að halda uppi
þeim fána og merki í íslenzkum stjórnmálum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Góður pistill. Sammála. Afleikir forystu Sjálfstæðisflokksins hafa verið alveg ótrúlegir undanfarin misseri.
Magnús Þór Hafsteinsson, 1.2.2008 kl. 15:17
Mikil eru völd Sjálfstæðisflokksins. Bara með því að fara í samstarf við flokk þá verður hann stór. Hefði Vg þá ekki orði eins. Þetta er náttúrulega bull hjá Styrmi. Og ekki virkaði þetta fyrir framsókn.
Magnús Helgi Björgvinsson, 1.2.2008 kl. 21:33
Þú skilur ekki hugsunina í þessu Magnús minn. Við þessir þjóðlegu
íhaldsmenn viljum hreinar línur í íslenzka pólitík, og það sem fyrst.
Myndun núverandi ríkisstjórnar voru hrapaleg mistök, hugarfóstur
Þorgerðar Katrinar og fárra krata kringum hana.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.2.2008 kl. 22:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.