Framsókn getur ekki múlbundið sig Tjarnarkvartetti


   Yfirlýsingar oddvita Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna
í Silfri-Egils að fyrrverandi meirihluti myndi sjálfkrafa taka
við ef núverandi borgarstjórnarmeirihluti spryngi hljóta
að teljast á veikum grunni byggðar, svo ekki sé meira
sagt. Í pólitík getur allt gerst, eins og dæminn sanna úr
borgarstjórn Reykjavíkur síðustu misseri. Og í ljósi alls
þess sem á undan er gengið væri það nánast pólitískt
sjálfsmorð fyrir Framsóknarflokkinn, ef hann fyrirfram
færi að tryggja pólitíska valdaframtíð Samfylkingarinnar
og Vinstri-grænna í einskonar R-lista módeli. Módeli sem
nánast þurrkaði Framsóknarflokkinn út á höfuðborgar-
svæðinu eftir 12 ára setu í síku hræðslubandalagi vinstri-
manna.

   Í borgarstjórnarpólitíkinni virðst þver á móti allt geta
gerst. Alversta yrði á fá enn eina villuráfandi og stefnu-
lausa vinstristjórnina yfir sig..  Sú fyrri í 100 daga var
degi of míkið........
mbl.is Ekki ástæða til að ræða við Vilhjálm og Björn Inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, þú meinar...etja Óskari á foraðið?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 14:51

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Gísli. Fyrrverandi meirihluti var gasprandi stjórnlaust rekald...Rekald
sem borgarbúar þurfa síst á að halda í dag...

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.2.2008 kl. 14:57

3 identicon

Guðmundur, að mínu mati er það alveg klárt að slæm útkoma Framsóknar í tvennum síðustu kosningum bæði til sveitastjórna og alþingis er um að kenna hægri sveiflu flokksins undir stjórn Halldórs Ásgrímssonar.  Langvarandi samstarf flokksins við íhaldi er að því komið að ganga frá flokknum dauðum og því fyrr sem flokkurinn aðskilur sig frá hægrisinnuðum sjónarmiðum því betra.

Ævar (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 15:07

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ævar. Algjörlega óssamála þér. Fylgistap Framsóknarflokksins á
höfuðborgarsvæðinu er út af því að hann lét sig HVERFA í heil 12
ár undir pílsfaldi Ingibjargar Sólrúnar og vinstragengis hennar.
Á landsvísu hrundi fylgið vegna Evrópussambandsdaðurs Halldór
Ásgrímssonar og stuðnings hans við Íraksstríðið. Samstarfið í
ríkisstjórninni í 12 ár með Sjálfstæðisflokknum var hins vegar bæði
þjóð og flokki til farsældar, enda Framsókn miðjuflokkur en ekki
vinstriflokkur.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.2.2008 kl. 15:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband