Kratarnir: Framseljum kvótann á ESB-markað!!!
19.2.2008 | 00:09
Það er alveg með ólíkindum hvað Samfylkingin kemst
langt í HRÆSNI sinni varðandi íslenzk sjárvarútvegsmál.
Á sama tíma og Samfylkingin styður FULLT kvótaframsal.
Á sama tíma og Ingibjörg Sólrún talar um að selja veiði-
heimildir á almennan markað. Þá hefur Samfylkingin á
ÞESSUM SAMA TÍMA FULL ÁFORM að ganga í Evrópusam-
bandið. Sem þýðir hvað? ALLUR KVÓTI Á ÍSLANDSMIÐUM
MUN GANGA KAUPUM OG SÖLUM innan sambandsins.
Sem þýðir hvað ? Með tíð og tíma eignast útlendingar
kvótann á Íslandsmiðum, líkt og gerst hefur m.a á Bret-
landi. Virðisaukinn af Íslandsmiðum hyrfi smátt og smátt
úr landi eins og gerst hefur á Bretlandseyjum. Íslenzkur
sjávarútvegur yrði brátt rjúkandi rúst eins og á Bret-
landseyjum. Hið svokallaði kvótahopp milli landa yrði
allsráðandi eins og allstaðar er innan sambandsins.
Yfirráðin yfir fiskimiðunum yrðu endanlega úr sögunni.
Já það er alveg með ólíkindum hvað kratarnir og aðrir
Evrópusambandsinnar komast upp með það að þurfa ekki
að svara fyrir það að með aðlildinni að ESB missum við for-
ræðið yfir okkar mikilvægustu auðlind, fiskimiðunum um-
hverfis Ísland. Kratar og aðrir ESB-sinnar hafa ALDREI
getað útskýrt hvernig sú mikla auðlind falli ekki okkur úr
greipum með aðildinni að Evrópusambandinu.
Svo koma auðjöfrar eins og Jón Ásgeir fram fyrir alþjóð
með ESB-glýjuna án þess að gera minnstu tilraun til að
útskýra hvernig hin íslenzka þjóð haldi yfirráðum sínum yfir
fiskveiðiauðlindinni gangi Ísland í ESB. Slíkir menn halda
að ALLT sé falt. Líka sjálfstæði þjóða eins og Samfylkingin.
Svo tala kratar um að orkulindir og aðrar auðlindir eins
og fiskimiðin eigi að vera í ALMANNAEIGN. ÞVÍLÍK HRÆSNI!
JÁ ÞVÍLÍK LÝGI!!!!
Hvernig geta Íslendingar stutt svona flokk ?
Segir tímabært að endurskoða byggðakvóta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:12 | Facebook
Athugasemdir
Já það er ótrúlegt að hlusta á þetta.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 19.2.2008 kl. 00:20
Hún er að komast á svipaða línu og Halldór Ásgrímsson, sem vildi undir það síðasta fá að selja kvótann sinn til útlanda. Annars er þessi byggðakvótatillaga hennar ISG allveg milljón. Hún vill þykist ætla að koma til móts við álit mannréttindanefndarinnar með því að okra á 12000 tonnum þannig að útgerðin fái 10 íslenskar krónur pr. kíló til að reka sig. "Dýr yrði Hafðilið allur" Og varla minnkar brottkastið við það.
Sigurður Þórðarson, 19.2.2008 kl. 00:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.