Ríkisstjórnin klofin varðandi Helguvík


   Ríkisstjórnin virðist þverklofin varðandi Helguvík. Skv.frétt
RÚV eru þau Ingibjörg Sólrún utanríkisráðherra  og Árni Mat-
hisen  fjármálaráðherra  algjörlega  ósammála  um hvort
framkvæmdir skulu  hefjast við  álver í Helguvík á árinu eða
ekki. Árni Mathisen hefur réttilega sagt tímasetninguna mjög
góða miðað við stöðu  efnahagsmála og  horfur í  íslenzkum
þjóðarbúskap. Þá  sé mjög  jákvætt  að  slíkar framkvæmdir
sendi skýr skilaboð um  auknar erlendar fjárfestingar hér á
landi og geti aukið miklilvæga trú á  íslenzka hagkerfinu. Ingi-
björg telur hins vegar tímasetninguna slæma, og finnur fram-
kvæmdunum við Helguvík allt til foráttu.

  Það er alltaf að  koma betur og  betur í  ljós hversu  mikill
dragbítur Samfylkingin er að verða fyrir íslenzkt efnahagslíf.
Ef fram heldur sem horfir blasir við allsherjar kreppa á Ís-
landi eða a.m.k verulegur samdráttur og stöðnun. Það er
eins og Samfylkingin sé að vinna markvíst að slíku ástandi.
Ástandi, sem hún telur ákjósanlegt til að koma Íslandi inn
í Evrópusambandið. - Sterkt og öflugt Ísland þarf aldrei á
Brussel að halda!

  Slíkum óþjóðlegum afturhaldsflokki þarf að koma frá
völdum SEM ALLRA FYRST ! 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Gunnar. Hef Samfylkingin hundskast til að sækja um áframhald

á ÍSLENZKA ÁKVÆÐINU varðandi losunarheimildir þá er bæði

rúm fyrir Helguvík og Húsavík.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.2.2008 kl. 21:03

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll, Guðmundur, smá fróðleikur um vistvænaiðnað.

Fróðleikur um losun Co2 og árhif þess á umhverfið.

 

  • Um77 til 80% af þeirri orku sem er nú notuð í heiminum kemur frá jarðeldsneyti úr jörðu.    
  • Notkun jarðefnaeldsneytis er helsta uppspretta gróðurhúsaáhrifanna á jörðinni. Stern-skýrslan og IPCC-skýrslan leggja því áherslu á  nýtingu annarra orkulinda en jarðeldsneytis sem þátt í að draga úr gróðurhúsaáhrifunum á Hnattrærna vísu.
  • Losun koltvísýrings frá raforkuframleiðslu úr jarðeldsneyti til álvinnslu er rúmlega 110  milljón tonn af CO2 á  árið 2006.
  • Farþegaflug og vöruflug, þ.e. flug frá og til Íslands og innanlands nemur um 4.2 milljónum tonna af CO2, sem er svipuð og losun 17 álvera á CO2 eins og þau eru hér á landi. Hvert tonn af áli sem framleitt er á Íslandi með raforku úr vatnsorku eða jarðhita í stað raforku úr jarðeldsneyti sparar andrúmsloftinu 13,5 tonn af koltvísýringi. (  1.0 milljón x 13,5COs ) = 13.5 milljóna af CO2 sparnaður á hnattræna vísu.
  • Verði álframleiðsla á Íslandi  komin í 1,0 milljón tonn á ári .Til þess þyrfti nálægt 16 TWh/a (terawattstundir á ári), reiknað í orkuveri, t.d 12 úr vatnsorku og 4 úr jarðhita. Orkulindir okkar ráða vel við það. Sú álvinnsla sparaði andrúmsloftinu 13.5 milljón tonn á ári hnattrænt  borið saman við að álið væri framleitt með rafmagni úr jarðeldsneyti.
  • Og að 1,0 milljóna tonna álframleiðsla á Íslandi „sparaði andrúmsloftinu 13.5 milljón tonn á ári borið saman við að álið væri framleitt með rafmagni úr eldsneyti. 5-falda núverandi innanlandslosun á Íslandi og um 12% af núverandi losun í heiminum vegna raforkuvinnslu til álframleiðslu!".

 

Þetta sýnir hvílík endaleysa það er að taka álvinnslu á Íslandi með í Kyoto-bókunina; starfsemi sem stuðlar að markmiði bókunarinnar en vinnur ekki gegn henni! Álvinnsla á Íslandi á ekki heima þar inni. Hvers vegna er flugumferð á Íslandi ekki þar inni og ferðariðnaðurinn sem er

stærsta stóriðja íslands og mesti mengunarvaldurinn. Ferðaiðnaðurinn á Íslandi losar um 4.2 milljón tonn,af CO2, eins og 17 álver af þeirri stærða gráðu sem hér er í Straumsvík.

 

Heimildaskrá:

Center for the Study of Carbon Dioxide and Global Chang

 

http://www.Co2science.org

http://www.world-aluminium.org/Home

http://en.wikipedia.org/wiki/Stern_Review

http://www.world-aluminium.org/

http://www.azom.com/materials.asp

http://www.eaa.net/eaa/index.jsp

http://search.treasury.gov.uk/search?p=Q&ts=treasury&mainresult=mt_mainresult_yes&w=Stern+Review

http://search.unfccc.int/query.html?col=fccc&qt=aluminium

 http://search.unfccc.int/query.html?col=fccc&charset=iso-8859-1&ht=0&qp=&qt=IPCC&qs=&qc=&pw=90%25&ws=1&la=en&qm=0&st=1&nh=10&lk=1&rf=2&rq=0&si=0                      IPCC

http://www.world-aluminium.org/cache/fl0000107.pdf

 http://www.world-aluminium.org/cache/fl0000169.pdf

http://www.germanwatch.org/

http://en.wikipedia.org/wiki/Climate_change_and_agriculture

http://en.wikipedia.org/wiki/Fossil_fuel_power_plant

http://www.newstatesman.com/200712190004

http://www.pmel.noaa.gov/pubs/PDF/feel2899/feel2899.pdf

http://science.nasa.gov/newhome/headlines/ast22jul99_1.htm

http://www.cru.uea.ac.uk/

http://www.globalwarmingart.com/wiki/Category:Galleries

http://climatecare.org/

http://en.wikipedia.org/wiki/Solar_variation

 

 

Kv, Sigurjón Vigfússon

Sjá meira hjá,,, 

hallurmagg

Rauða Ljónið, 19.2.2008 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband